Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 128

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2004, Side 128
Tónlist því að skilin á milli hefðbundinnar menningar og dægurmenningar hafi smátt og smátt verið að fjara út. Það hafi verið að gerast með „mjög skýrum hætti í myndlist, leiklist, tónlist, bókmenntum og fleiri sviðum menningar síðustu ára- tugi.“ I leiðaranum var sagt að færa mætti rök fyrir því „að hin gamla skipting heyri fortíðinni til og eðlilegt sé að fjalla um menningarlífið og hina mismun- andi þætti þess í einni heild. Þau sjónarmið hafa verið uppi á menningarritstjórn Morgunblaðsins síðustu árin að með þeim hætti mundi Morgunblaðið endur- spegla betur raunveruleikann í menningarlífi okkar um þessar mundir.“ Því var ákveðið að sameina umfjöllun um alla þætti menningarlífsins á vettvangi einnar menningarritstjórnar á sama svæði aftast í blaðinu. Það er alveg rétt að tímarnir hafi breyst. Ég man eftir því þegar haff var við mig útvarpsviðtal þegar ég var tólf ára vegna þess að ég hafði verið svo duglegur að spila á píanó. Einhver karlfauskur tók viðtalið og spurði mig þessara venju- legu spurninga, hvort mér þætti gaman í skólanum, hvort ég væri nervus þegar ég kæmi fram, hvað ég æfði mig mikið og hvert væri uppáhalds tónskáldið mitt. Svo sagði hann: „Jæja, Jónas, nú ætla ég að spyrja þig samviskuspurningar. Hlustarðu á popp?“ Málrómur hans var eins og hann væri að spyrja mig hvort ég hefði átt sam- neyti við Satan. Ég man ekki hverju ég svaraði, en það kom fát á mig. Popp var lágmenning og ég gat auðvitað ekki verið bendlaður við það, þótt leynilega þætti mér poppið alveg ágætt. Ég held ég hafi svarað þessu á þann veg að poppið væri „ókei“, en það yrði samt að vera sæmilega vitsmunalegt til að ég fílaði það. Klass- ísk tónlist væri auðvitað miklu merkilegri. Frík í tónlistarskóla Á þessum tíma skiptust tónlistarmenn í tvær andstæðar fylkingar. Poppararnir voru vinsælu tónlistarmennirnir en við hinir vorum utangarðsmennirnir. I skól- anum þótti alveg ótrúlega hallærislegt að læra á píanó, og aðeins frík fóru í tón- listarskóla. Gufan var eina útvarpsstöðin og flestir hötuðu hana fyrir sinfóníu- gargið sem þar var spilað allt of off. Sinfóníuhljómsveit Islands hélt reglulega tónleika á fimmtudagskvöldum, yfirleitt tvisvar í mánuði, en þó sjónvarpið væri í fríi þessi kvöld var aðsóknin stundum dræm. Nú er öldin önnur. I hverjum mánuði eru haldnir ótrúlega margir tónleikar, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Tónlistarskólar skipta tugum og Sinfóníu- hljómsveit íslands er farin að keppa við erlendar ofurhljómsveitir. Klassíkin þykir ekki lengur asnaleg, og það er sjálfsagt mál að börn séu send í tónlistar- nám. Björk er orðin heimsfræg og enginn skammast sín fyrir rokkið lengur. Mörkin á milli dægurtónlistar og sígildrar tónlistar eru orðin óljós; Sigrún Eðvaldsdóttir og félagar spila með Björk og gamlir popparar á borð við Finn Torfa Stefánsson, Kjartan Ólafsson og Áskel Másson eru orðnir að virðulegum tónskáldum. Rokkararnir eru búnir að láta klippa sig og hámenningartón- skáldin Hjálmar H. Ragnarsson, John Speight og margir aðrir eru frjálslega síð- hærðir. Suður-amerískur popptaktur heyrist í píanókonsert eftir Atla Heimi 126 TMM 2004 ■ 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.