Heimsmynd - 01.08.1994, Page 90
Veislumatur
Þegar tekiö er á móti gestum er yíirleitt boriö fram; forréttur, aðalréttur og eftirréttur. Hér er hugmynd að einum slíkum
matseðli sem Sigurður L. HaU gerði í sjónvarpsþáttum sínum sem eru sýndir á Stöð 2.
Bleikjurúlla fyllt með
hrísgrjónum ogNori
Uppskrift f. 6 manns
600 g bleikjuflök
2 dl hrísgrjón
3 plötur Nori (japanskar pangplötur)
rauð, græn og gul paprika,
1/4 af hverri, skornar í litlateninga
1/2 dl sweet Mirim {japanskt hrís-
vín)
Sósa með bleikju
1 dl Tamari (japönsk sojasósa)
2 msk. asapi (japönsk piparrót)
1/4 agúrka
Sjóðið hrísgrjónin í 4 dl af
vatni. Þegar grjónin eru
soðin og á meðan þau eru
enn heit, þá bætið í papr-
ikuteningumun og sæta
Mirim-víninu. Kæhð vel.
Skerið bleikjuna í þunnar,
ailangar sneiðar.
Leggið þær á álpappír,
sem er svipaður á stærð
og A4- bréfsefni.
Saltið aðeins og piprið með
hvítum pipar.
Leggið eina þangplötu of-
an á bleikjusneiðarnar.
Látið síðan 3 sm þykka
rönd af soðnum hrísgrjón-
unum þar ofan á. Vefjið og
rúllið bleikjuflökun og ál-
pappírnum utan um. Snú-
ið vel upp á endana. Látið
heitt vatn í djúpa ofn-
skúffu eða eldfast form.
Setjið rúilumar þar í og
sjóðið í ofninum við 200
gráður í 10-12 mín, allt
eftir þykkleika. Kæhð.
Sósan
Hrærið saman japönsku
Tamari-sojasósuna og
wasapi.
Kjarnahreinsið agúrkuna
og skerið í fína strimla.
Fjarlægið álpappírinn utan
af bleikjurúllunum og
skerið í 3 sm þykkar
sneiðar með skörpum hníf.
Athugið að skera varlega
og dýfa hnífnum ruidir
heitt vatn á milli.
90 ) Sælkerinn / Heimsmynd - ágúst / september