Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 4

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 4
Árið 2019 hefur verið mjög viðburðarríkt hjá félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og vísa ég þá til hvers viðburðarins á fætur öðrum sem haldinn hefur verið í tengslum við 100 ára afmæli félagsins. Þegar á heildina er litið finnst mér árið hafa tekist með eindæmum vel til og vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn til að svo hafi getað orðið. hjúkrunarfræðingar hafa flykkst á viðburðina og mæting alltaf farið fram úr björtustu vonum, hvort sem um er að ræða opnunarhátíðina í janúar, þar sem rúm- lega 800 hundruð hjúkrunarfræðingar glöddust saman á hótel nordica, eða hjúkr- unarráðstefnuna í hofi á akureyri í september, en þar var slegið aðsóknarmet þegar 450 hjúkrunarfræðingar mættu — og er það nær helmingi fleiri en áður. Áhugi félags manna á að koma saman, efla persónulegan og faglegan anda, gleðjast og hitta aðra hjúkrunarfræðinga hefur svo sannarlega einkennt þetta ár. að mínu mati endur - speglar þessi mikla þátttaka líka þörfina fyrir samveru stéttarinnar og les ég í þetta að félagsmenn vilji meira af slíkum viðburðum. Það er skemmst frá því að segja að slíkt er þegar komið á teikniborðið og margt fram undan enda eru svona viðburðir ómetanlegir fyrir hjúkrunarfræðinga til að koma saman og styrkja böndin. 2020 ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra Þó þetta mikla afmælisár sé nú að verða liðið ætlar félag íslenskra hjúkrunarfræðinga að halda áfram að gleðjast á næsta ári en alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WhO) hefur ákveðið að helga árið 2020 hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Þá eru 200 ár liðin frá fæðingu florence nightingale og með þessu vill alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin vekja athygli á því hversu mikilvægu hlutverki hjúkrunarfræðingar og ljósmæður gegna í heilbrigðiskerfinu. Stofnunin hefur þegar hvatt þjóðir heimsins til að fjárfesta betur í hjúkrun, hámarka framlag þessara tveggja stétta og tryggja þannig öllu fólki rétt til heilbrigðisþjónustu án tillits til efnahags þess. félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélag Íslands hafa af þessu tilefni hafið samstarf og ætla að vekja athygli á árinu 2020 og gleðjast um leið. Verið er að skipuleggja viðburði þar sem hjúkrunarfræðingar og ljósmæður munu geta komið saman og fagnað árinu á ýmsa vegu. Einnig munu bæði félögin vera bæði með ein- staka og aðskilda viðburði fyrir sína félagsmenn. jafnframt verður unnið enn frekar að ímyndarmálum beggja stétta og athygli vakin á mikilvægi starfa þeirra í þjóðfélag- inu. Þetta verður því ekki síður spennandi ár en stóra afmælisárið sem nú er brátt á enda. nánari upplýsingar um dagskrá ársins 2020 verður auglýst á vef- og sam- félagsmiðlum beggja stétta þegar nær dregur. að minnsta kosti er óhætt að segja að árið 2020 verður ekki síður skemmtilegt en 2019 þó að það verði með öðru sniði. 4 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 guðbjörg Pálsdóttir, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Formannspistill Samvera einkennandi fyrir afmælisárið Jafnframt verður unnið enn frekar að ímyndarmálum beggja stétta og athygli vakin á mikilvægi starfa þeirra í þjóðfélaginu. Þetta verður því ekki síður spennandi ár en stóra afmælisárið sem nú er brátt á enda.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.