Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 44
44 tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 Scoping Review: hvenær, hvernig og af hverju? Marianne Elisabeth Klinke og Helga Ólafs tóku saman Fræðimenn leitast sífellt við að samþætta fyrirliggjandi þekkingu en til eru nokkrar mismunandi aðferðir til að veita slíkt yfirlit. Scoping review er tiltölulega ný aðferð í flokki yfirlitsgreina. Til að fræðast betur um þá aðferð bauð fagdeild vísindarannsakenda í hjúkrun, Hanne Konradsen, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla og dósent við Karólínska háskólann í Svíþjóð, í heimsókn til Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga 13. september síðastliðinn. hanne konradsen, prófessor við kaup mannahafnarháskóla og dósent við karólínska háskólann í Svíþjóð. hanne hefur stuðst við þessa aðferð með góðum árangri undanfarin ár og því fengur að fá innsýn í þessa aðferðafræði hjá henni. hún gerði greinarmun á þrenns konar flokkum yfirlitsgreina sem falla ekki undir kerfisbundið yfirlit, en þær eru auk scoping review, staða þekkingar (state of the art or science) og fræðileg samantekt (literat- ure/narrative review). Scoping review er tiltölulega ný leið til að samþætta fyrirliggj- andi þekkingu. Þessi leið er frábrugðin hefðbundnum yfirlitsgreinum eða fræðilegum samantektum að því leyti að ekki er nauðsynlegt að meta gæði greina auk þess að nóg er að einn höfundur sé að slíkri yfirlitsgrein. Tegundir yfirlitsgreina Tegundir yfirlitsgreina Samantekt Skilgreining Scoping review hvað er til um efnið? Bráðabrigðamat gert á umfangi og inntaki á þekkingu innan sviðsins. kannað hvað auðkennir fyrirliggj- andi þekkingu og jafnvel skoðuð notkun á mismunandi hugtökum. Staða þekkingar hvað er nýtt? Einblínt á fyrirliggjandi rannsóknir (State of the art or science) og þekkingu. Sett fram ný sjónarmið og kennsl borin á göt í þekkingu sem framtíðarrannsóknir þurfa að brúa. fræðileg samantekt hvað er til um efnið og fundin samheiti eða sameiginlegir (Literature/narrative review) hvað einkennir það? þættir sem einkenna tengd hugtök. Skoðuð fyrirliggjandi gögn. getur verið mismunandi að inntaki og dýpt. heimild: Peters o.fl., 2017; Tricco o.fl., 2018. fyrsta greinin sem byggð var á scoping review er frá 2005 (arksey and O’Malley, 2005). Síðan hefur þessi aðferð verið notuð í vaxandi mæli meðal hjúkrunarfræðinga, að sögn hanne. Mikilvægt er að geta tekið afstöðu til þess hvenær scoping review eða fræðilegri samantekt er beitt, en til þessa hefur skort leiðbeiningar um hvenær scoping review er beitt frekar en öðrum tegundum fræðilegra samantekta. algengar ástæður þess að greinum sé hafnað í birtingarferli fræðitímarita er að þær bæta ekki við núverandi þekkingu, þær eru of sérhæfðar, ekki er skýrt samhengi á milli markmiðs, aðferðar, niðurstöðu og ályktunar, aðferðafræði er ábótavant eða hún illa skilgreind, eða úrtakið er of lítið. Yfirlitsgreinar styðja við kerfisbundna hugsun að því leyti að viðfangsefnið er kortlagt og samþætt fyrirliggjandi þekkingu, t.d. með litlum úrtaksrannsóknum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.