Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 47
sýking er sýking sem sjúklingur fær á sjúkrahúsinu og sýkingin
var ekki á meðgöngutíma þegar sjúklingurinn lagðist inn (Ducell
o.fl., 2002). afleiðingar spítalasýkinga geta verið til dæmis
lengri legutími, notkun sýklalyfja, þörf á aðgerð eða endur -
aðgerð og í versta falli dauði. Þannig eru spítalasýkingar alvar-
legar fyrir sjúklinginn og dýrar fyrir samfélagið. Það ætti að
vera markmið hvers sjúkrahúss að sem fæstir sjúklingar fái
spítalasýkingu í legu sinni.
Verkefni sýkingavarna
Öflugar sýkingavarnir á sjúkrahúsum eru þáttur í að auka ör-
yggi sjúklinga og starfsmanna og mikilvægur mælikvarði á
gæði þjónustunnar sem er veitt á stofnuninni. Verkefni sýk -
ingavarna eru mörg og margvísleg, þar má nefna leiðbeiningar
um daglega framkvæmd sóttvarna á sjúkrahúsi, að hindra far-
aldra og ná stjórn á faröldrum sem eru í gangi, eftir lit með og
skráning á ákveðnum sýkingavöldum og einnig á spítala -
sýkingum sem tengjast meðferð á sjúkrahúsinu, gerð leiðbein-
inga, rannsóknir og greinaskrif, kennsla og fræðsla fyrir starfs -
menn og nema, ráðleggingar við nýbyggingar þar sem sýkinga -
varnir eru hannaðar inn í umhverfið og fyrirbyggjandi aðgerðir
til varnar viðkvæmum sjúklingahópum þegar endurnýjun hús -
næðis og jarðrask er í gangi, samstarf við sóttvarnalækni og
erlenda aðila á sama sviði.
innleiðing og eftirfylgni með vinnubrögðum samkvæmt
grund vallarsmitgát eru mikilvægt verkefni sýkingavarna. grund -
vallarsmitgát eru þær aðgerðir sýkingavarna sem miða að því
að hindra smit frá einstaklingi óháð því hvort vitað er að hann
sé smitandi. horfa ber á einkenni sjúklings og nota rétt verklag
í umgengni við hann samkvæmt leiðbeiningum grundvallar-
smitgátar. Dæmi um verklag grundvallarsmitgátar, sem hefur
það að markmiði að hindra dreifingu örvera, er: handhreinsun
en skartleysi á höndum og stuttar neglur ásamt stutterma-
vinnufatnaði auðveldar handhreinsun og minnkar auk þess
mengun handa, hreinn vinnufatnaður daglega, rétt notkun
hlífðarbúnaðar, þrif á margnota búnaði milli sjúklinga, hreinn
rúmfatnaður og hreinar sængur milli sjúklinga, þrif í um-
hverfi, réttur frágangur á sorpi og óhreinu líni, rétt geymsla á
hreinu líni og hreinni vöru, hreinsun, sótthreinsun og dauð -
hreinsun lækningatækja, val á herbergi fyrir sjúkling (einbýli
eða fjölbýli), notkun öryggisnála og öryggishluta til að fyrir-
byggja stunguóhöpp og líkamsvessamengun og margt fleira
(Ducell o.fl., 2002). Ef sjúklingur er með einkenni sem benda
til snerti-, dropa- eða úðasmits þá er einangrun bætt við. Þetta
geta verið einkenni eins og niðurgangur, hiti og hósti eða sjúk-
lingur greinist með örverur þar sem einangrunar er þörf, til
dæmis nóróveiru, inflúensu, sýklalyfjaónæmar bakteríur eða
aðrar örverur. rétt viðbrögð starfsmanna strax í upphafi geta
komið í veg fyrir faraldra á deildum sjúkrahúsa, eins og nóró-
veirufaraldra eða flensufaraldra.
Þar sem æ oftar greinast sýklalyfjaónæmar bakteríur á Ís-
landi og í öðrum löndum eykst mikilvægi sýkingavarna við að
hindra dreifingu þeirra innan sjúkrahúsa. Í skýrslu jims O’neill,
sem kom út 2016, er því spáð að með sama áframhaldi muni
allt að 10 milljónir manna í heiminum látast af sýkingum af
völd um sýklalyfjaónæmra baktería árið 2050. Það eru fleiri
dauðsföll en af völdum krabbameina eða bílslysa og eykur enn
mikilvægi öflugra sýkingavarna innan sjúkrahúsa. Varnir gegn
sýklalyfjaónæmum bakteríum felast meðal annars í skipulagðri
leit að þessum bakteríum eða skimun sem fer þannig fram að
sjúklingar eru spurðir ákveðinna spurninga og tekin sýni til að
leita að þessum bakteríum ef við á en á þann hátt er hægt að
finna suma þá sem eru með sýklalyfjaónæmar bakteríur. Sýkla-
lyfjagát er leið sem hægt er að fara til að minnka líkur á því að
bakteríur verði ónæmar fyrir sýklalyfjum. Sýklalyfjagát felst í
skynsamlegri notkun sýklalyfja þannig að þau séu ekki notuð
við veirusýkingum, notuð séu þröngvirk sýklalyf en ekki breið -
virk, meðferðarlengd sé hæfileg og skipt úr lyfjagjöf í æð í töflu -
meðferð á réttum tíma. Leiðbeiningar um sýklalyfjagát er meðal
annars að finna í appi sem heiti Microguide og er opið öllum.
Nám og kennsla í sýkingavörnum
Í skýrslu alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá 2016 er
farið yfir mikilvægi sýkingavarna. Samkvæmt henni er mikil-
vægt að á bráðasjúkrahúsum sé sýkingavarnadeild eða ígildi
hennar og þar starfi heilbrigðisstarfsmenn sem hafa þekkingu
og kunnáttu í sýkingavörnum og hafa lagt það nám fyrir sig.
kennsla í grunnatriðum sýkingavarna þarf að vera skylda hjá
öllum nemendum í heilbrigðisvísindum og kennarar með
sérþekkingu í sýkingavörnum skulu sinna þeirri kennslu.
nemar þurfa að búa yfir þekkingu í grunnatriðum sýkinga-
varna þegar þeir hefja verknám á heilbrigðisstofnun og því er
sýkingavarnir á sjúkrahúsum
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 47
Grundvallarsmitgát eru þær aðgerðir sýkinga-
varna sem miða að því að hindra smit frá ein-
staklingi óháð því hvort vitað er að hann sé
smitandi. Horfa ber á einkenni sjúklings og
nota rétt verklag í umgengni við hann sam-
kvæmt leiðbeiningum grundvallarsmitgátar.