Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Side 51
sárin til að hlífa þeim og stuðla að góðu umhverfi fyrir sára -
græðslu (Tavares o.fl., 2017). Til eru margs konar svampar og
gæti þurft að nota sílikonumbúðir vegna viðkvæmrar húðar.
aldrei skal vanmeta aðstoð við reglulegar klósettferðir því ef
hægt er að komast hjá því að útskilnaður liggi við húðina er
ekki hætta á ferðum (Beeckman o.fl., 2011; Wounds interna-
tional, 2015).
Tilfelli
jónas er áttræður og hefur á sjúkraferlinum greinst með
geðrænan kvilla, sykursýki, ofþyngd og söfnunaráráttu. hann
lagðist inn á Landspítala vegna rákvöðvaleysingar (rhabdo-
myolysis) og brunasára. hann hafði dottið heima og lá í þvagi
og hægðum í meira en sólarhring. Í upphafi innlagnar var
hann mjög ruglaður, máttlaus og þurfti alla aðstoð við aDL
og að snúa sér í rúminu. hann fékk þvaglegg strax við komu
vegna þvagtregðu og til að hlífa húðinni við frekari bleytu.
jónas er einstæðingur og á fáa að. hann býr í mjög þröngri og
lítilli íbúð sem er full af dóti sem hann hefur safnað að sér.
Þetta olli því, þegar hann datt, að hann gat enga björg sér veitt
því hann var fastur á milli hluta.
húðin var í byrjun eldrauð og vessandi. roðinn náði upp
á neðri hluta baks og niður lærin að framan og aftan. Þessu
fylgdu miklir verkir svo að vart mátti koma við hann. Í byrjun
fólst meðferðin í jelonet-grisjum, umbúðapúðum til að taka
vessann og svo lá hann á állökum til að halda þessu hreinu.
hann þurfti morfín fyrir sáraskiptin og fylgdi því sársauki að
taka vaselíngrisjurnar af húðinni auk þess sem neðanþvottur
var sársaukafullur. hann gat ekki setið á rassinum vegna sárs-
auka og hafðist því við í rúminu fyrst um sinn. fimm dögum
eftir innlögn á legudeild var byrjað að nota áburðinn „Cavilon
advanced skin protectant“. Þessi áburður er borinn á húðina
og hefur þann verkunarmáta að það myndast himna sem
verndar húðina fyrir frekara áreiti raka. Einnig er í vökvanum
græðandi efni sem hjálpa húðinni að gróa eftir brunann.
Meðferðina átti að framkvæma tvisvar í viku. hann fór í sturtu
fyrir hvert skipti og þá þurfti að gæta þess að setja engar
umbúðir yfir heldur hafa sárasvæðið opið og lofta um eins og
hægt var. hann lá þó alltaf á állökunum. Í fyrsta skipti sem Cavi-
lon advanced var borið á húðina, fann jónas fyrir sviða og
verkjum. næstu tvo daga bar á niðurgangi og því voru settar
bleyjur á hann. hann fann fyrir óþægindum ef lök eða bleyjur
festust í sárunum. Stundum komu blæðingar úr húðinni. næsta
meðferð með Caviloninu var þremur dögum síðar. Þá þegar leit
húðsvæðið betur út, minni vessi var til staðar auk þess sem jónas
sagðist finna minna til þegar áburðurinn var borinn á með -
ferðar svæðið. fjórum dögum síðar var enn meiri framför, jónas
fann ekki til sársauka við sáraskiptin en var byrjaður að fá kláða.
næstu skipti gengu vel og jónas varð alveg sársaukalaus á svæð -
inu. Vegna niðurgangs þurfti stund um að grípa til þess að nota
bleyjur og þá varð smávægileg aftur för á sáragræðslunni en í
heildina gekk sárameðferðin vel. Vessi minnkaði stöðugt og
hætti alveg tæpum 4 vikum eftir að meðferð hófst. jónas var í
sárameðferðinni á legudeildinni í alls mánuð.
húðbruni vegna þvag- eða hægðarleka
tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 95. árg. 2019 51
húðbruni eftir innlögn og fyrir Cavilon-meðferð.
húðbruni 17 dögum eftir upphaf meðferðar.
húðbruni 24 dögum eftir upphaf meðferðar.
húðbruni 4 dögum eftir upphaf meðferðar.