Náttúrufræðingurinn - 2019, Page 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
143
Ólafur Arnalds
Landbúnaðarháskóla Íslands
Árleyni 22, Keldnaholti
IS-112 Reykjavík
oa@lbhi.is
www.moldin.net
Pavla Dagsson-Waldhauserová
Landbúnaðarháskóla Íslands
Árleyni 22, Keldnaholti
IS-112 Reykjavík
pavla@lbhi.is
Sigmundur Helgi Brink
Landbúnaðarháskóla Íslands
Árleyni 22, Keldnaholti
IS-112 Reykjavík
brink@lbhi.is
Ólafur Arnalds hefur lokið BS-prófi í jarðfræði við
Háskóla Íslands, MS-prófi í jarðvegsfræði við Montana
State University og hlaut PhD-gráðu frá Texas A&M Uni-
versity árið 1990. Hann hefur starfað sem sérfræðingur
á sviði jarðvegsfræða, landnýtingar og landhnignunar
allt frá 1980. Hann hafði forystu í vinnu við kortlagn-
ingu jarðvegsrofs í landinu öllu á árunum 1991–1998 en
hefur beint sjónum að ryki á síðustu árum. Ólafur var
sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins
með hléum frá árinu 1980, samfellt árin 1990–2005 en
síðan sem prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands frá
stofnun hans árið 2005.
Pavla Dagsson-Waldhauserová lauk MS-prófi í eðlis-
rænni landfræði við Karlsháskólanum í Prag í Tékklandi
og doktorsprófi við Háskóla Íslands og Landbúnaðarhá-
skóla Íslands árið 2014. Hún hlaut rannsóknastöðustyrk
við Háskóla Íslands að loknu doktorsprófi og síðan
nýdoktorsstyrk. Rannsóknir hennar hafa beinst að ryk-
myndun og afdrifum ryks frá Íslandi. Hún starfar nú sem
sérfræðingur við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Sigmundur Helgi Brink lauk BS-prófi í náttúrufræð-
um við Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2009 og hefur
lagt stund á landupplýsingafræði við Háskólann í Lundi
í Svíþjóð. Sigmundur hefur forystu um vinnu við marg-
vísleg landupplýsingakerfi, m.a. við þróun landupplýs-
inga í tengslum við losun gróðurhúsalofttegunda frá
landi. Sigmundur hefur unnið við Landbúnaðarháskóla
Íslands frá 2008.
UM HÖFUNDA
PÓST- OG NETFÖNG HÖFUNDA
/ AUTHORS' ADDRESSES