Náttúrufræðingurinn - 2019, Blaðsíða 30
Náttúrufræðingurinn
102
0
5
10
15
20
25
30
35
62 64 66 68 70 72 74 76 78 80 82 84 86 88 90 92 94 96 98 00 02 04 06 08 10 12 14 16
Ár / Year
H
lu
tf
al
l v
or
go
ts
sí
ld
ar
(%
)
P
er
ce
nt
ag
e
of
s
p
rin
g-
sp
aw
ne
rs
28°V
62°
62°
62°
62°
62°
62°
28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V 28°V
~2006–09
~2010–13
~1987–03
~1974–86
sÍld
Clupea harengus
atlaNtshafssÍld (Clupea harengus) er að finna bæði í
vestur- og austurhluta Norður-Atlantshafs. Evrópumegin
finnst hún á öllum hafsvæðum frá ströndum Frakklands að
Novaja Semlja í Barentshafi og frá New Jersey að Labrador
í Norður Ameríku. Á útbreiðslusvæðum hennar hefur verið
greint á milli fjölda stofna, sem eru jafnan skilgreindir út frá
hrygningartíma og hrygningarstað. Víða má því finna misvel
aðgreinanlega hrygningarstofna hvern innan um annan.
Síldin er uppsjávarfiskur en finnst allt frá yfirborði niður
á yfir 400 m dýpi. Fæða síldar er sviflæg krabbadýr sem
hún finnur í efri lögum sjávar. Síld er torfufiskur og myndar
að öllu jöfnu sérstaklega þéttar og stórar torfur þegar hún
er í vetursetu. Hún breytir reglulega um vetursetusvæði og
tengjast þær breytingar oft því að stórir árgangar ganga inn
í kynþroskahluta stofna.a Vetursetusvæðin einkennast oft af
kaldari sjó en í nágrenni þeirra sem hjálpar síldinni að spara
orku, því hún étur ekkert á þessum tíma. Vetursetusvæðin er
einkum að finna á strandsvæðum og í fjörðum sem geta veitt
gott skjól fyrir afræningjum. Far sumar- og vorgotssíldar er
frábrugðið að sumu leyti. Eftir vetursetu að vori fer sumar-
gotssíld í fæðuleit, leitar svo á hrygningarslóð til hrygningar
og fer svo aftur í fæðuleit áður en hún dregur sig á vetursetu-
svæði. Vorgotssíld fer hins vegar úr vetursetu á hrygningar-
a Guðmundur J. Óskarsson, Ásta Guðmundsdóttir & Þorsteinn Sig-
urðsson 2009. Variation in spatial distribution and migration of
Icelandic summer-spawning herring. ICES Journal of Marine Science
66. 1762–1767. [Breytileiki í útbreiðslu og farmynstri íslenskur sumar-
gotssíldarinnar.]
b Guðmundur J. Óskarsson, Jónbjörn Pálsson & Ásta Guðmundsdóttir
2017. An ichthyophoniasis epizootic in Atlantic herring in marine wa-
ters around Iceland. Canadian Journal of Fisheries and Aquatic Sci-
ence 75. 1106–1116. doi.org/10.1139/cjfas-2017-0219. [Ichthyophon-
us-sýkingarfaraldur í síld við Ísland.]
svæði og þaðan á fæðuslóð þar sem hún dvelst fram að hausti
þegar hún snýr aftur á vetursetusvæðin. Fjarlægðir milli vet-
ursetu-, hrygningar- og fæðuslóða eru breytilegar milli síldar-
stofna og ára, en norsk-íslenska vorgotssíldin fer jafnan lengst.
Síldveiðar við Ísland fram að hruni síldarstofnanna í lok
sjöunda áratugarins beindust að þremur stofnum, norsk-
íslenskri vorgotssíld fyrir norðan og austan land á sumrin,
íslenskri sumargotssíld sunnanlands að hausti og vetri, og
íslenskri vorgotssíld að sumri, hausti og vetri í bland við
hinar. Nú er veitt úr tveimur þessara stofna við Ísland, sumar-
gotssíld og norsk-íslenskri vorgotssíld.
Á síðustu árum hefur töluvert verið fjallað um slæmt
ástand sumargotssíldarinnar í ræðu og riti. Tengist sú
umræða einkum sýkingarfaraldri í stofninum. Faraldurinn er
af völdum frumdýrsins Ichthyophonus sp.b og hefur verið við-
varandi frá árinu 2008 til dagsins í dag. Þessi faraldur hefur
ásamt lélegri nýliðun undanfarin ár haft veruleg neikvæð
áhrif á þróun stofnstærðar síldarinnar. Þessu til viðbótar varð
í tvígang gríðarmikill síldardauði í Kolgrafarfirði veturinn
2012–2013 þar sem drápust um 55 þúsund tonn.c Ástæðan
var talin súrefnisskortur. Þetta eru ástæður þess að stofn-
inn hefur verið á niðurleið allt frá árinu 2006 þrátt fyrir að
veiðar séu hóflegar.d
c Guðmundur J. Óskarsson, Sólveig R. Ólafsdóttir, Þorsteinn Sigurðs-
son & Héðinn Valdimarsson 2018. Observation and quantification of
two incidents of mass fish kill of Icelandic summer spawning herring
(Clupea harengus) in the winter 2012/2013. Fisheries Oceanography
27. 302–311. doi:10.1111/fog.12253 [Rannsóknir og mat á umfangi
tveggja tilfella af síldardauða í Kolgrafafirði veturinn 2012/13.]
d Hafrannsóknastofnun 2018. Ástand nytjastofna sjávar og ráðgjöf
2018: Síld. Slóð (skoðað í ágúst 2019): https://www.hafogvatn.is/is/
veidiradgjof/sild
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir