Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 217
— 215 —
1955
Any further information as to liis care
after leaving this hospital may be ob-
tained from Dr. . .. and the physician
who has taken care of the patient’s
eye since discharge.“
2. í læknisvottorði I vegna umsókn-
ar um sjúkrabætur, dags. 15. septem-
ber 1948, undirrituðu af . .., starfandi
lækni í Reykjavík, er slasaði sagður
vera „í meðferð vegna sjóntruflana og
til eftirlits“.
3. Vottorð .... augnlæknis i Reykja-
vik, dags. 25. október 1948, svohljóð-
andi:
„Undirritaður hef haft S. M-son,
..., til meðferðar undanfarna mán-
uði vegna afleiðinga slyss á höfði.
Skoðun sýndi strabismus divergens
35° á vinstra auga. Sjúklingurinn
kvartaði mjög mikið undan þvi að
geta ekki beitt augunum við lestur, og
var þvi gerð aðgerð á auganu og það
rétt, þannig að nú er divergens 3°.“
4. Læknisvottorð II (dagpeninga-
vottorð), dags. 3. desember 1948, und-
irritað af ..., fyrrnefndum starfandi
lækni í Reykjavik. Kveður læknirinn
sjúklinginn enn vera undir læknis-
eftirliti og hafa verið það siðan um
miðjan september. Sjúklingurinn er
talinn verða óvinnufær vegna slapp-
leika um óákveðinn tíma.
5. Vottorð sama læknis, dags. 4.
marz 1950, svohljóðandi:
„S. M-son, ..., hefur enn ekki náð
sér að fullu eftir áfallið, er hann slas-
aðist á Keflavíkurflugvelli 11. ágúst
1948. S. 1. sumar vann hann, en átti
erfitt með það vegna höfuðverkjar og
taugaslappleika. Hann hefur skánað,
siðan hann hætti vinnu og fór i skóla,
en enn þá eru fyrir hendi sjóntrufl-
anir og höfuðverkur, sem þó er batn-
andi. Vonir standa til, að hann verði
jafngóður með timanum.“
6. Vottorð . .., sérfræðings í tauga-
sjúkdómum, dags. 4. október 1950, svo-
hljóðandi:
„S. M-son, f. 4. maí 1932, . .., hefur
verið hjá mér til skoðunar vegna af-
leiðinga eftir höfuðhögg.
Hann kvartar um truflanir á sjón,
enn fremur sljóleika og þreytu.
Obj. neurologiskt: Dæld á v. enni,
ca. 6 cin löng, og nokkru lengra ör.
Truflun á húðskyni á v. enni.
Obj. psychiskt: Þar eru engin ein-
kenni, er benda á ákveðna tegund
geðveiki. En sjúkl. er sljór og þreytu-
legur, og minnið er slæmt.
Alit: Ástand sjúkl. bendir á truflanir
á starfsemi framheila, þar sem hann
fékk áverka á heila. Minnkandi hæfi-
leiki til að nema og framtaksleysi
bendir og í þá átt (sbr. einkunnabæk-
ur). Sjúkl. á enn fremur á hættu að
fá traumatiska epilepsi."
7. Vottorð . .. [sérfræðings i tauga-
og geðsjúkdómum], dags. 14. mai 1955,
svohljóðandi:
„S. M-son, f. 4. mai 1932, til lieim-
ilis á . .. i Reykjavík, hefur verið til
athugunar hjá mér frá 5. janúar 1954
og til þessa.
S. slasaðist á Keflavíkurflugvelli 11.
ágúst 1948. Slysið bar þannig að, að
hann varð fyrir flugvélarskrúfu, sem
klauf ennið vinstra megin. Skrúfu-
blaðið gekk i gegnum húð og bein og
inn i v. ennisgeira heilans (lobus fron-
talis). Var skurðurinn talinn (í skýrslu
lækna flugvallarspítalans) 5 cm á
lengd, og vall heilagrautur út úr sár-
inu. S. féll til jarðar við höggið og lá
meðvitundarlaus nokkurn tíma. Hann
var tekinn á sjúkrahús Keflavíkurflug-
vallar, var sárið hreinsað og kannað,
og fannst beinflís 1x1% cm, sem
stungizt hafði inn í heilavefinn. Bein-
flísin var tekin og sárið hreinsað og
búið um. Sjúklingurinn raknaði smám
saman við. Lá hann á sjúkrahúsinu til
4. september 1948. Sárið hafðist vel
við og greri fljótt.
Er sjúklingurinn kom af sjúkrahús-
inu, hafði hann sjóntruflanir vegna
augnskekkju, er hann hlaut af slysinu.
. .. [fyrrnefndur] augnlæknir lagaði
augnskekkjuna 1. október 1948 með
skurðaðgerð, og hefur sjón S. verið
góð síðan.
S. var sagður sljór, þreytulegur og
minnislítill eftir slysið, og er honum
þannig lýst i vottorði ... [fyrr-
nefnds] taugalæknis, dagsettu 4. októ-
ber 1950.
Haustið 1949 reyndi S. nám i II.
bekk kennaraskólans, en reyndist ó-