Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 143
— 141 —
1955
Sækja varð fylgju með hendi í eitt
skipti. Ein kona fékk 39° hita 10 tim-
um eftir fæðingu. Fæðingin hafði
gengið heldur seint og konan verið
slöpp fyrir. Henni var gefin ein
sprauta af pensilini, og datt þá hitinn
niður. Konunni heilsaðist vel. Yfir-
leitt þurfti lítilla aðgerða við. Var
gefið Bi-vítamín og pitúitrin, ef herða
þurfti sótt, einnig methergín eftir fæð-
ingu barna, og flýtti það mjög fyrir
fylgjulosi. Konurnar deyfðar, meðan
á lokahríðinni stóð.
Breiðumýrar. Fæðingar fáar á árinu
og tiðindalausar. Ljósmóðurleysi í 2
hreppum, þar sem % héraðsbúa eiga
heima, veldur mestu um fækkun fæð-
inga innan héraðs, sem aftur á móti
gefur enga hugmynd um viðkomu hér-
aðsbúa. Um fósturlát hjá 2 konum er
mér kunnugt.
Húsavíkur. Lítið um komplikationir.
19 ára primipara fæddi þremur mán-
uðum fyrir tíma. Barnið dó eftir íVs
tíma. 27 ára primipara átti tvíbura.
Fyrra barnið fæddist mjög líflítið, en
lifnaði þó. Hið síðara fæddist andvana
yegna fylgjuloss. Ljósmæður geta ekki
um fósturlát, en 4 konur komu á
sjúkrahúsið vegna abortus imcomple-
tus og fengu viðeigandi aðgerð.
Nokkrar munu hafa misst fóstur, en
ekki þurft læknishjálpar við.
Þórshafnar. 1 andvanafæðing. Barn-
ið ófullburða (6 merkur, 40 sm), og
mun hafa verið um fylgjulos að ræða
hjá móður. 2 praeeclampsiae-fæðingar
án fylgikvilla. 1 eclampsia, og var það
33 ára 11-para, mjög nálægt 300 pund-
um að þyngd, og átti hún heima úti
1 sveit. Iíom ég til hennar á hádegi,
°g hafði hún þá að sögn heimilisfólks
fengið 2 krampaköst um morguninn.
Er ég kom, var hún í coma, mjög
cyanotisk og öndun sogkennd (stri-
dorosa). Rétt á eftir fær hún þriðja
krampakastið. Var þá þegar byrjað á
Stroganoffs-meðferð, og var súrefni
sótt hið skjótasta til Þórshafnar. Allt
um það fær hún tvö krampaköst í við-
bót þenna dag. Um nóttina var konan
óróleg mjög og alltaf í móki. Að
morgni fer vatn frá konunni; og um
2 klukkustundum seinna er komin full
útvíkkun og barnið tekið þá með töng.
Barnið var mjög líflítið og fölt, en
liresstist smám saman af súrefni, þó
aldrei fjörugt, og þurfti nær samfellt
að gefa því súrefni. Mæðgurnar svo
fluttar um kvöldið á sjúkraskýlið á
Þórshöfn. Daginn eftir dó barnið,
blánaði allt í einu upp; var undir eins
sogið upp úr því og því gefið súrefni,
en allt kom fyrir ekki. Konan alltaf í
móki, verður mæðin og fær tachycar-
dia. Konan því digitaliseruð, og lagast
þá öndunin, er var orðin mjög paroxys-
mal, á 3. degi. Komst til fullrar með-
vitundar á 4. degi og smáhresstist úr
því. Fósturlát voru 3, 2 skafin út, en
hið þriðja hreinsaðist af methergíni
og pitúitrini. 1 tilfelli af graviditas
extrauterina, skorið á Akureyri.
Vopnafj. Hjá einni konu, frumbyrju,
bar sitjanda að. Náð í fót, framdrátt-
ur. 3 konur fengu klóróformdeyfingu,
5 pitúitrín. Saumuð spangarrifa 1. Ein
tvíburafæðing fyrir tima, 34 v. Börnin
aðeins með lifsmarki, lifðu skamma
stund. Annars farnaðist konum og
börnum vel.
Egilsstaða eystra. Fósturlát 2 án vit-
anlegra orsaka. Hins vegar nokkrum
sinnum farið þess á leit við lækni, að
hann eyddi fóstri. Voru það hvort
tveggja ógiftar stúlkur og margra barna
mæður. Því hefur ætíð verið neitað,
bæði fyrr og síðar. Mæðrum hefur
verið leiðbeint um takmörkun barn-
eigna og viðeigandi varnargögn ávallt
fyrirliggjandi í lyfjabúð liéraðslæknis.
Bakkagerðis. Vissi um 3 fósturlát.
Fæðingar gengu vel. 1 kona var send
á sjúkrahús Akureyrar vegna fyrir-
sætrar fylgju og þar gerður á henni
keisaraskurður. Ivonu og barni heils-
aðist vel.
Seyðisfj. Allar fæðingar gengu vel.
1 tvíburafæðing. Flestar konurnar
fæddu í sjúkrahúsinu. 1 barn fæddist
líflítið og andaði aldrei eðlilega. Því
var haldið við með súrefnisgjöf, unz
það lézt eftir nokkra daga. Vitað var
um 2 fósturlát, annað í heimahúsi, en
hitt í sjúkrahúsi. Þurfti þar að tæma
legið og skafa vegna mikilla blæðinga.
Nes. í síðustu ársskýrslu var getið
um 1 tilfelli af anencephalia, og virt-
ist þar vanta ca. 8 vikur upp á full-
kominn meðgöngutíma. Um miðjan