Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 186
19SS
184 —
Stafar þetta af ókunnugleika fólksins
um gildandi lög i þessu efni og hirðu-
leysi að nokkru leyti. Sömu sögu er
að segja um bólusetningu gegn barna-
veiki; sárafáir koma ótilkvaddir með
börn sin til þeirrar bólusetningar. Það
þykir víst óraunhæft að bólusetja börn
gegn þeim sjúkdómi, sem er orðinn
svo sjaldgæfur. Eins og kunnugt er,
var efnt til bólusetningar gegn mænu-
sótt með Salk-bóluefni á s. 1. vori.
Kostaði það mikið umstang og fyrir-
höfn að skrásetja börnin, sem urðu
nokkur hundruð, en svo varð að hætta
við allt á siðustu stundu vegna válegra
frétta frá Bandarikjunum af bólusetn-
ingu þar.
Búðardals. Kúabólusetning ekki
framkvæmd vegna mænusóttar, nema
í Laxárdals- og Haukadalshreppi, þar
sem ljósmóðir hafði bólusett fyrr um
sumarið allmörg börn í 1. sinn. Aðrar
ónæmisaðgerðir mjög fáar.
Reykhóla. Kúabólusetningu frestað
vegna mænuveilcifaraldursins.
Bolungarvíkur. Vegna mikilla veik-
inda í börnum, auk þess sem mænu-
sóttarbólusetning var fyrirhuguð og
óheppilegt talið, að ekki liðu a. m. k.
2—3 mánuðir á milli kúabólusetning-
ar og mænusóttarbólusetningar, féll
kúabólusetning niður.
Árnes. Bóla kom ekki út á neinu
bólusettu barni. Væntanlega óheppi-
legur modus operandi eða lélegt bólu-
efni. Hallast ég fremur að hinu siðar
nefnda.
Ólafsfí. Féllu alveg niður vegna far-
sótta.
Akureyrar. Kúa-, berkla- og barna-
veikisbólusetning var framkvæmd á
beilsuverndarstöð Akureyrar á árinu,
en vegna mænusóttarfaraldursins í
Reykjavík var þó minna um þessar
ónæmisaðgerðir en annars mundi ver-
ið hafa, þar eð ekki þótti ráðlegt að
gera hér neinar ónæmisaðgerðir, eftir
að mænusóttarfaraldurinn hófst i
Reykjavík.
Grenivíkur. Bólusett voru bæði
yngri og eldri börn. Kom bólan ó-
venjulega illa út á frumbólusettum
börnum. Ekkert barnanna veiktist al-
varlega.
Breiðumýrar. Frumbólusetning féli
að mildu leyti niður á árinu. Var
henni fyrst frestað vegna fyrirhug-
aðrar bólusetningar gegn mænuveiki,
en siðan vegna farsótta, mislinga og
inflúenzu.
Húsavíkur. Frumbólusetning féll
niður að þessu sinni vegna óvenjulega
mikilla farsótta fyrra part sumars.
Endurbólusetti þó öll fermingarbörnin.
Seyðisfí. Kúabólusetning hefur fall-
ið niður síðast liðin 2 ár vegna far-
aldra, sem gengið hafa að vorinu og
fram á sumar. Foreldrum hefur verið
gefinn kostur á að fá börn sínu bólu-
sett gegn barnaveiki, en engir hafa
notað sér það árið 1955.
Djúpavogs. Fermingarbörn bólusett.
Annars engar ónæmisaðgerðir fram-
kvæmdar (sjá þó um mislinga). Ástæð-
an var viðloðandi smitafaraldur og
möguleiki á mænusóttarfaraldri.
Vestmannaeyja. Bólusetningar fóru
fram lögum samkvæmt.
21. Mannskaðarannsóknir og önnur
réttarlæknisstörf.
Frá Rannsóknarstofu Háskólans hef-
ur borizt eftirfarandi skýrsla um rétt-
arkrufningar, sem þar voru frani-
kvæmdar á árinu 1955:
1. 6. janúar. Sólarhringsgamalt mey-
barn. Við krufningu fannst rúm-
lega kríueggsstór cysta, allt að 5
sm á lengd, full af tærum vökva;
gekk hún út frá framanverðu
vinstra heilahveli og þrýstist inn
á milli hvelanna. Bjúgur var i
heilanum. Ályktun: Þrýstingur fra
heilablöðrunni hefur sennilega
valdið dauða barnsins.
2. 8. janúar. H. K-dóttir, 6 ára. Varð
fyrir bil og dó að kalla sam-
stundis. Ályktun: Við krufningu
fannst mikið brot á höfuðkúpU,
beggja megin á kúpubotninum-
Enn fremur mikil sprunga í efra
blaði hægra lunga, og hafði blætt
mikið úr þvi inn i brjósthol.
Hvort tveggja, brotið á höfðinu
og blæðingin úr lunganu, hefur
fljótt valdið bana.
3. 13. janúar. I. S. G-son, 39 ára
kaupmaður. Datt niður, er hann
var að ná i strætisvagn og hneig