Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1955, Blaðsíða 173
171
1955
ar, að færslur séu í fullu samræmi við
greinda auglýsingu.
Fer hér á eftir nokkurt yfirlit um
færslu bóka þessara:
1) Vörukaupabækur eða vörukaupa-
spjaldskrár. Nú yfirleitt betur vandað
til færslu bókar þessarar en áður. I
a. m. k. þrem lyfjabúðum voru slrrár
þessar þó alls ekki haldnar, og á
nokkrum stöðum var fundið að óreiðu
i færslum.
2) Vinnustofuspjaldskrá. Skrá þessi
er nú víðast lialdin, en mikið skortir
þó enn á, að fyllstu nákvæmni sé gætt
alls staðar. Þokast þó allt í rétta átt.
3) Símalyfseðlabók. Bók þessi er
yfirleitt haldin, þar sem ávisanir á lyf
uni síma eru tíðkaðar. Á fimm stöð-
um kváðu lyfsalar símalyfseðla ó-
þekkta.
4) Eftirritunarbók. Alls staðar hald-
in, en litillegrar ónákvæmni varð vart
i færslum á 8 stöðum (9 árið áður).
5) Eiturbók var haldin i öllum lyfja-
liúðum landsins að tveim undantekn-
um. Fundið var að færslum bókar
bessarar á einum stað.
6) Eyðslubók. Bók þessi, er gefur til
kynna hvers konar notkun ómengaðs
vínanda i lyfjabúðum, var yfirleitt
samvizkusamlega færð. Á nokkrum
stöðum (4) var þó gerð athugasemd
vegna færslu eyðslubókar.
Magn það af neðangreindum áfeng-
istegundum, sem lyfjabúðirnar öfluðu
sér á árinu frá Áfengisverzlun rikis-
ins, var sem hér segir:
Alcohol absolutus ........... 1,250 kg
Spiritus alcoholisatus . . 2085,000 —
— bergamiae ............... 386,500 —
•— denaturatus ........... 9120,000 —
Misferli í lyfjabúðum o. fl.
1) Ein lyfjabúð var ekki eftirlitin á
árinu. Rekstri þessarar lyfjabúðar hef-
Ur verið mjög áfátt mörg undanfarin
ár. Þegar sýnt þótti, eftir að skoðun
hafði verið gerð i lyfjabúð þessari
sumarið 1954, að lyfsali væri staðráð-
inn í því að hafa að engu fyrirmæli
eftirlitsmanns lyfjabúða um að bæta
úr þvi, er að hefði verið fundið við
rekstur lyfjabúðarinnar undanfarin ár,
var.farið fram á aðstoð ráðuneytis í
þessum efnum. Lýsti eftirlitsmaður
lyfjabúða sig jafnframt ábyrgðarlaus-
an að þvi, er af kynni að leiða, ef
ráðuneytið léti málið ekki þegar til
sin taka.
2) Kvörtun barst um það frá lækni,
að lyfið Gelatum alumini hydroxidi,
er sjúklingur hans hafði fengið gegn
lyfseðli í lyfjabúð, væri sterkara en
hann ætti að venjast. Rannsókn leiddi
í ljós, að piparmyntuolíumagn lyfsins
reyndist vera mun meira (rúml. 4%)
en almennt er tiðkanlegt að nota í
lyf, þegar olian er aðeins notuð sem
bragðbætandi efni. Sjúklingurinn beið
ekki tjón af inntöku lyfs þessa. Atvik
þetta gaf tilefni til athugana á sams
konar lyfjum úr öðrum lyfjabúðum.
Niðurstöður þeirra athugana sýndu,
að mjög er misjafnt það magn af oliu
þessari, sem notað er í lyfjabúum til
að bragðbæta greint lyf. Var samtök-
um lyfsala gerðar niðurstöður þessara
athugana kunnar, með ósk um, að þeir
beittu sér fyrir því, að samræmdar
væru forskriftir lyfjabúða á lyfjum
sem þessu, og með þvi tryggt, að neyt-
endur fengju sams konar lyf með sama
bragði, útliti o. s. frv., í hvaða lyfja-
búð sem það svo væri keypt.
3) Ósk barst um það frá spitala að
rannsaka lyfið Injectabile theophyla-
mini mite Ph.D., þar eð spítalalækni
þótti ástæða til að ætla, að lyfið væri
með öðrum hætti en mælt er fyrir um
i lyfjaskrá. Rannsókn leiddi i ljós, að
grunur þessi hafði ekki við rök að
styðjast.
4) Beðið var um að framkvæma
rannsókn á laktókreósótsaft (Syr. lac-
tokreosoti codeicus Ph.D.), sem keypt
hafði verið gegn lyfseðli i lyfjabúð.
Taldi hlutaðeigandi sig hafa ástæðu
til að efast um, að saft þessi væri rétt
til búin. Rannsókn leiddi i ljós, að
grunur þessi hafði ekki við rök að
slyðjast.
5) Athygli eftirlitsmanns var vakin
á því á árinu, að óhófleg sala suðu-
vínanda til áfengissjúklinga ætti sér
stað i tiltekinni lyfjabúð. Var erindi
þessu vísað til ráðuneytis, sem tók
málið til viðeigandi meðferðar.