Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Qupperneq 6

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Qupperneq 6
4 og jafnvel afurðaminni fullorðnar. Þorri þeirra bænda, sem aldrei hafa hleypt til gemlinga, heldur enn fast við þá gömlu skoðun, að slíkt sé hæpin búskaparaðferð, sem aðeins gefi stundarhag, þegar bezt gegni. Þegar deilt er um þetta mál, vantar fastan grundvöll til þess að byggja umræður á. Engar tilraunir eða skipulegar athuganir hafa verið gerðar hér á landi, til þess að leiða sannleikann í ljós. Bændur hafa að vísu hver um sig sína eigin reynslu, en venjulega án tölulegra sannana. Ráðunautar og aðrir leiðbeinendur hafa svo orðið að mynda sér skoð- anir um málið, bvg'gðar á frásögnum einstakra bænda og lauslegum yfir- litsathugunum. Vegna skorts á raunhæfri þekkingu á þessu máli, ákvað höfundur að nota tækifærið, þegar fjárskiptin fóru fram á tilraunabúinu að Hesti í Borgarfirði haustið 1950, og rannsaka, svo rækilega sem kostur var á, hvaða áhrif það hefur á vöxt og þroska ánna, ef þær taka fang á fyrsta vetri, og enn fremur að hve miklu leyti þær ær ná sér á öðru aldursári, sem ganga með dilkum veturgamlar. Ekki var kostur að gera þessa rann- sókn á eldri ám en veturgömlum og tvævetrum, því þriggja og fjögra vetra ær á Hesti áttu ekki lömb gemlingar, og af 5 vetra ám og eldri voru svo margar fallnar fyrir mæðiveiki og af öðrum ástæðum, að eftirlifandi heilbrigðar ær gátu varla talizt eðlileg sýnishorn af ám úr þeim ár- göngum, sem átt höfðu lömb gemlingar eða verið geldar gemlingsárið. Tilhögun rannsóknanna, efni og aðferðir, Rannsóknir eins og þessar er ekki hægt að byggja á fullkomlega skipulagðri tilraun frá byrjun. Þótt ákveðnum hóp gimbralamba væri að haustinu skipt í tvo jafna flokka af handahófi, þeir væru fóðraðir eins, og gimbrar í öðrum þeirra ættu að verða með lömbum, en í hinum ekki, þá yrði ávallt sú raunin á, að sumar gimbrar, sem ættu að fá, væru ekki orðnar kynþroska, aðrar höfnuðust ekki og sumar myndu missa lamb. Ekki var nokkur vissa fyrir því, að þær gimbrar, sem endanlega kæmu upp lambi, væru rétt sýnishorn af þeim hópnum, sem átti að eiga lömb. Er því varla annað ráð fyrir hendi en láta tilviljun ráða, hvaða gimbrar eiga lömb og koma þeim upp, hverjar inissa þau og hverjar verða algeldar, fóðra þær allar eins og skrásetja reglulega þunga þeirra á fæti og annað, er upplýsingar gefur um þrif þeirra, framfarir og af- urðir. Þessari aðferð var fylgt við þessar rannsóknir, að öðru levti en því, að nokkrum meðallömbum af árganginum, sem fæddur er 1948, var viljandi haldið algeldum gemlingsárið í sambandi við samanburðartil- raunir á hreinræktuðu íslenzku fé og erlendum kynblendingum, sem gerðar voru samtímis á Hesti. Þessar rannsóknir voru einungis gerðar á hreinræktuðum íslenzk- um ám á Hesti, er fæddar voru 1948 og 1949, og slátrað var heilbrigðum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.