Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 11
1. KAFLI
Áhrif fóstur- og mjólkurmyndunar gemlinga á vöxt
þeirra og þroska.
Rannsóknarefni og aðferðir.
Við þær rannsóknir, sem lýst er í þessum kafla, voru notaðar 43
ær á tilraunabúinu á Hesti, sem voru veturgamlar haustið 1950, er
fjárskiptin fóru fram, og reyndust heilbrigðar við slátrun, eins og skýrt
er frá á bls. 5 hér að framan. Þeim er skipt í þrjá flokka eftir því, hvort
þær höfðu verið algeldar, átt lamb og misst það eða átt lamb og gengið
með það til hausts. Flokkarnir eru kallaðir A, B og C. Þær algeldu 11
að tölu eru í A-flolcki, þær, sem misstu laml), 11 að tölu, í B-flokki, og
þær, sem komu upp lambi, 21 að töiu, í C-flokki. Af gemlingunum, sem
misstu, létu 5 fóstri skömmu fyrir tal, 4 misstu í fæðingu, en tófa drap
viku til hálfs mánaðar gömul lömb undan tveim þeirra. Þessar 43
gimbrar vógu allar á fæti að meðaltali 36.98 kg haustið 1949, er þær
voru lömb um 4 mánaða gamlar. Þær, sem urðu algeldar, vógu þá 35.86
kg, þær, sem misstu, vógu 35.73 kg, en þær, sem komu upp lambi 38.21
kg. Gimbrarnar, sem gengu með lömburn, hafa því vegið 2.35—2.48 kg
meira að meðaltali sem haustlömb heldur en þær, sem urðu algeldar
eða misstu. Ber að hafa hliðsjón af þessum upprunalega þyngdarmun
flokkanna, þegar dregnar eru ályktanir af endanlegum samanburði
þeirra. Af gimbrunum, sem urðu algeldar (A-fl.), voru 6 einlembingar
undan fullorðnum ám, 1 lambgimbrarlamb, 3 tvílembingar og 1 þrílemb-
ingur. Af þeim, sem misstu (B-fl.), voru 3 einlembingar og 8 tvílemb-
ingar, en 1 þeirra hafði gengið ein undir. Af þeim, sem komu upp lambi
(C-fl.), voru 9 einlembingar og 12 tvílembingar, en 2 þeirra höfðu
gengið einir undir. Má því rekja upphaflegan þungainun flokkanna að
mestu leyti til þess, að hlutfallslega fleiri tvílembingar voru í B-floklti
en í hinum flokkunum, og þrílembingurinn í A-flokki var langléttasta
lambið þetta haust, aðeins 27.5 kg.Kyngæði gimbranna í öllum flokkunum
virðast lík, sainkvæmt athugun á ættartölum þeirra. Þær eru allar heima-
aldar á Hesti út af ágætu foreldri. Þó hefur tilviljun valdið því, að af
11 dætrum Önguls lenti aðeins 1 í A-flokki, 3 í B-flokki og 7 í C-flokki,
en af 10 dætrum Smára hafa 6 lent í A-flokki, 3 í B-flokki og aðeins 1
í C-flokki. Dætur annarra hrúta hafa skipzt jafnara í flokkana. Þótt
Smári og Öngull væru ekki mjög líkir einstaklingar, sá fyrrnefndi lakari
að gerð, þá eru þeir báðir af sama ættstofni, Ólafsdalsfénu. Smári
keyptur beint frá Ólafsdal, en hinn frá Ásgarði af Ólafsdalsætt. Ætti
2