Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 25
23
D. Áhrif á lögun og þunga vinstri framfótleggjar.
Tafla 16 sýnir meðaltöl lengdar, minnsta ummáls og þunga vinstri
framfótleggjar í A-, B- og C-flokki og einnig meðalþyngd leggjarins á
lengdareiningu (gr. pr. cm) og minnsta ummál leggjarins sem prósentu
af lengd hans. Þyngd leggjarins á lengdareiningu, er mun betri mæli-
kvarði á meðalþroska beinvaxtar leggjarins á þykktina en minnsta
ummál hans, því síðarnefnda málið sýnir aðeins þykkt hans, þar sem
hann er grennstur, Pálsson (1939 og 1940). Sami höfundur hefur
einnig sýnt, að minnsta ummál leggjarins, reiknað sem prósenta af
lengd hans, er betri mælikvarði á gildleika leggjarskaftsins en minnsta
ummálið sjálft, því að stuttur leggur, með sama minnsta ummáli og
annar lengri, er hlutfallslega mun g'ildari.
Tafla 16. Meðalmál og þungi vinstri framfótarleggjar í mm og g.
Average measurements and meight of the left fore cannon in mm and grams.
Meðaltal, mm og g Hlutföll (A-fl. = 100)
Mál mm, og þungi g Average, A-fl. mm and grams B-fl. C-fl. Proportiom A-fl. i (lot A B-fl. = 100) C-fl.
Measurements mm and weiglit grams lot A lot B lot C lot A lol B lot C
Lengd length 131.3 131.5 132.7 100 100.2 101.0
Minnsta ummmál min. circumference 47.09 47.36 46.29 100 100.6 98.3
Minnsta ummál min. circ. 100 x 100 lengd length 35.9 36.0 34.9 100 100.3 97.2
Þyngd weight 44.84 45.27 43.61 100 101.0 97.2
Lengd 1Q() length ^ Þyngd weight 34.13 34.39 32.84 100 100.8 96.2
Tala einstaklinga no. of individuals 11 11 21
Tafla 16 og línurit 4 sýna einnig mál vinstri framfótleggjar í B-
og C-flokki, í hlutfalli við sömu mál í A-flokki, þ. e. sem prósentu af
þeim. Gefur það bezt til kynna, hvaða áhrif það hefur haft á lögun og
þyngd þessa beins, að gimbrarnar í B-flokki áttu lömb og misstu og
þær í C-flokki áttu lömb og mjólkuðu þeim yfir sumarið.
Lengd vinstri framfótleggjar, M. Tafla 16 og línurit 4 sýna, að
framfótleggurinn er næstum því alveg jafnlangur i ölluin flokkum,
aðeins 1% lengri í C-flokki en A-flokki. Þessi munur er svo lítill, að
hann er langt frá því að vera raunhæfur. Þetta mál er hægt að taka
með sérstakri nákvæmni. Er því óhætt að slá því föstu, að ekkert
hefur dregið úr lengdarvexti fótleggjarins við það, að gimbrarnar í
C-flokki gengu með lömbum. En þess ber að gæta, að lengdarvöxtur
fótleggjanna er mjög bráðþroska eiginleiki, þ. e. vex mjög ört snemma
á vaxtarskeiði kindarinnar og því getur eitthvað hafa dregið úr lengdar-
vexti seinþroska beina eins og t. d. rifjanna í C-flokki, þótt ekki drægi
úr lengdarvexti fótleggja og langleggja (sbr. bls. 20 og 21).