Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 20
18
Tafla 10. Raunhæfni mismfunar meðalmörþunga flokkanna í kg.
Significance of lot differences in the mean weight (kilos) of kidney fat plus caul fat.
F milli flokka betmeen lots = 30.77 RHR.
Meðalskekkja Tala
flokksmeðaltalna einstaklinga
A-flokkur B-flokkur C-flokkur S. E. of No. of
lot A lot B lot C mean individuals
A-flokkur lot A .. 3.82 RRR RRR 0.178 11
B-flokkur lot B . 2.82 RR 0.178 11
C-flokkur lot C - - 2.10 0.129 21
RRR = raunhæfur í 99.9% tilfella significant at 0.1% level. RR = raunhæfur i
99% tilfella significant at 1% level.
Mörinn er því eina tegund afurðanna, þar sem munurinn á A- og
B-flokki er svo mikill að vera raunhæfur, enda er hlutfallslega miklu
meiri inunur á mörþunga allra flokkanna en munurinn á kjöt- og
gæruþunga eða þunga þeirra á fæti, tafla 5 og línurit 2. Meðalmörinn
í B-flokki er 73.8% og C-flokki aðeins 55% af meðalmörþunga A-
flokks. Gimbrarnar í B-flokki hafa safnað 1 kg minni mör en þær í
A-flokki. Orsök til þess virðist aðeins vera sú, að þær fyrrnefndu nærðu
fóstur um meðgöngutímann og tóku að sér um burð, þótt þær misstu
nýbornar og gengju lamblausar yfir sutnarið. Þetta er tnjög mikill
munur á mörsöfnun, þegar litið er á, hve litill munur er á fallþunga
gimbranna í A- og B-flokki, aðeins 1.32 kg eða 5.4%. Meðalmörjmngi
í C-f!okki er 0.72 kg minni en í B-flokki og' 1.72 kg' minni en í A-flokki,
svo hvað mörsöfnun snertir er minni munur á dilkgengnu gimbrunum
og lambsgotunum en á þeim síðarnefndu og algeldu gimbrunum.
f. Afurðir alls. Samanlagður meðalþungi afurða: kjöts, gæru og
mörs er í A-flokki 33.24 kg, í B-flokki 30.85 kg og í C-flokki 25.43 kg.
Af þunga gimbranna á fæti reyndust því þessar afurðir nema 56.4%
í A-flokki, 54.4% í B-floltki og 51.1% í C-flokki, tafla 5. Gimbrarnar í
B-flokki leggja sig því að meðaltali með 2.39 ltg eða 7.2% minna af
söluhæfum afurðum án sláturs en gimbrarnar í A-flokki. Þessi munur
er aðeins meiri en munurinn á meðalþunga þessara flokka á fæti, sem
var 2.22 kg. Munurinn á meðalafurðum A- og C-flokks án slátnrs
nemur 7.81 kg eða 23.5%, tafla 5, línurit 2. Munurinn á meðalþunga
þessara flokka á fæti nam 9.21 kg eða 1.40 kg meira en munurinn á
meðalafurðaþunga þessara flokka. Hefði garnmör verið veginn, myndi
munurinn á afurðaþunga A- og C-flokks hafa orðið nokkru meiri en
7.81 kg, liklega um 9 kg. Þessar niðurstöður sýna því, að þungamunur
á fæti, á veturgömlum gimbrum algeldum, lambsgotum og dilkgengnum
liggur allur í kjöti, gæru og mör. Haus, fætur og innyflin, ásamt inni-
haldi þeirra, vega því í heild jafnmikið i algeldu og dilkgengu gimbr-
unum. Dilkgengnu gimbrarnar hafa því getað umsett svo mikla næringu,
að þrátt fyrir vöxt fóstursins og mjólkurmyndun handa lambinu allt
sumarið, hafa þær haft næga næringu aflögu til þess, að bráðþrosk-