Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 74
72
en þær, sem voru algcldar veturgamlar og með einu lambi tvævetrar,
B-fl. Munurinn á vænleika, afurðaþunga og málum fallanna í þessum
flokkum var þó svo lítill, að hann reyndist ekki raunhæfur, nema
munurinn á mörþunganum, 1.0 kg E-flokk í vil, var raunhæfur í 95%
tilfella. Munurinn á fitumálunum yfirleitt var hlutfallslega mun meiri,
E-fl. í vil, en á vöðva- og beinamálum. Þetta sýnir, að ær, sem koma upp
lambi veturgamlar, en verða svo lamblausar tvævetrar, hafa 28 mánaða
gamlar náð fyllilega sama þroska á öllum líkamsvefjum og meiri fitu-
söfnun en jafngamlar ær, sem voru algeldar veturgamlar og með einu
lambi tvævetrar.
Þroski ánna í E-flokki og l’itusöfnun er ekki meiri en það, að engin
sérstök ástæða virðist vera til þess að slátra geldum tvævetlum, sem
hafa gengið með lambi veturgamlar, sé um eðlisgóðar kindur að ræða.
Hins vegar eru tvígeldu tvævetlurnar, A-fl., svo þroskaðar og feitar,
að óhyggilegt má telja að setja slíkar kindur á vetur, a. m. k. þar sem
fé er vel fóðrað, af því að slíkar tvævetlur leggja sig mjög vel, eru
óvissar með að koma upp lainbi, þótt þær séu settar á vetur og að
lokum bæta líklega litlu sem engu við vænleika sinn, þótt þær verði
geldar þrevetrar. Þessa ályktun virðist mega draga af því, að tvígeldu
tvævctlurnar höfðu aðeins 3.0 kg þyngra fall, 0.94 kg mör og 0.46 kg
þyngri gæru en algeldar giinbrar veturgamlar í kafla I. 4.4 kg sölu-
hæfra afurða er lítil framleiðsla fyrir gott æreldi og sýnir hvílíkt tjón
það er, að ær séu lamblausar. En freinur sýnir þetta, hve vel uppaldar
gimbrar hafa tekið mikið út af heildarþroska sínuxn veturgamlar að
liaustinu.
Samanburðurinn á tvævetlunum, sem voru algeldar veturgamlar og
með einu lambi tvævetrar, B-fl„ og jafngömlum ám, sem gengu með
lambi bæði veturgamlar og tvævetrar (C-f 1.), sýnir, að þær síðarnefndu
hafa 28 mánaða að allverulegu en ekki að öllu leyti unnið upp það
þroskatap, sem þær urðu fyrir innan 16 mánaða aldurs við að ganga
með lambi veturgamlar. Þyngdaraulcning C-flokks á fæti frá 4—28 mán-
aða aldurs var 3.46 kg lægri en B-flokks. Meðalþungi C-flokks á fæti
var 2.95 kg lægri en B-flokks (tafla 27) og fallþunginn var 2.02 kg eða
8.6% lægri í C-flokki. Söluhæfar afurðir alls voru að meðaltali 2.24 kg
eða 7.3% lægri í C-flokki en í B-flokki (tafla 31). Munurinn á þyngdar-
aukningu B- og C-flokks frá 4—28 mánaða aldurs og fallþungamunurinn
reyndist raunhæfur í 95% tilfella.
Meðalmunur veturgömlu gimbranna (16 mánaða) í hliðstæðum
flokkum A-fl. og C-fl. í kafla I var á þunga á fæti 9.21 kg (tafla 1),
á fallþunga 5.22 kg eða 21.3% og á afurðum alls 7.81 kg eða 23.5%
(tafla 5). Tvævetlurnar í C-flokki hafa því frá 16—28 mánaða aldurs
náð að vinna upp fyllilega % hluta þess heildarþroskataps, sem þær
urðu fyrir fram til 16 mánaða aldurs við að ganga með lambi vetur-
gamlar, samanborið, við að hafa þá verið algeldar. Samanburður meðal-
mála fallanna og fótleggjanna af tvævetlunum í B- og C-flokki sýnir,