Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 60
58
fl A-n. | n-n. ^ c-fi. £j D-n. [) E-n
Minnsta ummál vinstri
framfótleggjar sem pró-
senta af lengd hans.
Tafla 41 og línurit
9 sýna, að hlutfallið
milli minnsta ummáls og
lengdar framfótleggjar-
ins er aðeins hæst í E-
flokki, en lægst í C-
flokki. Þessi munur er
þó fjarri því að vera
raunhæfur (F — 0.75).
Þetta lilutfall er 1.9%
lægra i C-flokki en B-
flokki. Munurinn á
þessu máli í hliðstæðum
flokkum í kafla I nam
2.8% og var raunhæfur
i 95% tilfella. Er þetta
sönnun þess, að ummál
(þykkt) leggsins í hlut-
falli við lengd hans hef-
ur aukizt aðeins meira
frá 16—28 rnánaða ald-
urs i C-flokki, þ. e. á án-
um, sem gengu með
lambi veturgamlar, en í
B-flokki. Þetta hlutfall
hefur þó hækkað meira í E-flokki á þessu tímabili en í C-flokki, sem
eðlilegt er, þar eð ærnar í E-flokki voru lamhlausar tvævetlur.
Þgngd vinstri framfótleggjar. Fótleggurinn er aðeins þyngstur í
B-flokki, en léttastur í C-flokki. Þessi munur nemur aðeins 1.35 gr að
meðaltali eða 3.0%, tafla 41. Munurinn milli flokka er langt frá því
að vera raunhæfur (F — 0.36). Þessar niðurstöður eru í samræmi við
það, sem búast mátti við eftir niðurstöðunum í kafla I, bls. 24, að
dæma, þar eð ekki var raunhæfur þungamunur á vinstri framfótlegg í
A- og C-flokkum við 16 mánaða aldur.
Þungi vinstri framfótleggjar pr. cm. Meðalþungi vinstri frainfót-
leggjar pr. cm er næstum því jafn í A-, B- og E-flokkum, en 3.3%
léttari í D-flokki og 3.4% léttari í C-flokki heldur en í B-flokki, tafla 41.
Þessi mismunur flokkanna er þó ekki raunhæfur (F = 0.85). í kafla I,
bls. 25, töflu 18, var sýnt fram á, að framfótleggurinn í dilkgengnum
gimbrum veturgömlum var léttari pr. lengdareiningu (cm) en í þeim
geldu og að sá munur var raunhæfur í 95% tilfella. Frá 16—28 mánaða
aldurs hefur dregið svo úr þessum mun, að hann er ekki raunhæfur
Lxnurit 9. Áhrif fangs á fyrsta vetri á meðalmál og
þunga vinstri framfótleggjar ánna 28 mánaða (B-fl. =
100) effect of breeding gearling ewes on their average
left fore cannon bone measurements and weight at
28 months of age (lot B — 100).