Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 67
65
flokka, þótt allmikill sé, er ekki raunhæfur, enda er meðalskekkja
flokksmeðaltalna há. Fitulagið ofan á háþorni hryggjarliðsins á tvíg'eldu
ánum (A-fl.) er álíka þykkt og á algeldu gimbrunum veturgömlu, A-fl.,
kafli I, bls. 30, og aðeins þynnra á tvævetlunum í C- og D-flokki en á
dilksognu gimbrunum veturgömlu, C-fl., kafli I. Þótt munurinn á D-
málinu í B- og C-flokki sé ekki raunhæfur, þá er hann svo mikill, 57%,
að allt bendir til þess, að í þessu efni búi ærnar í C-flokki að því, að
þær gengu með lambi velurgamlar, en hinar ekki.
Tafla 46. Raunhæfni mismunar flokksmeðaltalna á þykkt fitulagsins ofan á
háþorni næstaftasta brjósthryggjarliðs (D) í mm.
Significance af lot differences in the mean thickness of backfat
over spinousprocess (D) mm.
F milli flokka between lots = 4.50 RR. Meðalskekkja Tala
flokksmeðalt. cinstakl.
A-flokkur B-flokkur C-flokkur D-flokkur E-flokkur S. E. of No. of
lot A lot B lot C lot T) lot E mean individuals
A-flokkur lot A 3.50 R R R ER 0.567 10
B-flokkur lot B 2.00 ER ER ER 0.463 15
C-flokkur lot C - 0.86 ER ER 0.333 29
D-flokkur lot D - - 1.20 ER 0.803 5
E-flokkur lot E - - - 2.40 0.803 5
RR = raunhæfur í 99% tilfella significant at 1% level. R = raunhæfur í 95%
tilfella significant at 5% level. ER = ekki raunhæfur not significant.
Þijkkt yfirborðsfitiilagsins efst á siðu, J. Munurinn á þessu máli
milli flokka virðist orsakast mun meira af því, hvort ærnar gengu með
lambi eða ekki tvævetrar heldur en, hvort þær voru með lambi eða
geldar veturgamlar, tafla 42, 47 og Hnurit 10. Það er aðeins lítill og
óraunhæfur munur á J-málinu í B-, C- og D-flokki, tafla 47. Það er
aðeins 14.3% lægra í D-fl. og 11.6% lægra í C-flokki en í B-flokki,
tafla 42. Hins vegar er J-málið í E-flokki 26.7% hærra en í B-flokki.
Sá munur er þó ekki raunhæfur í 95% tilfella, tafla 47, en munurinn
á þessu máli í C- og E-flokki, 4.12 mm, er raunhæfur í 95% tilfella.
Langhæst er J-málið í A-flokki, 17.7 mm eða 65% hærra en i B-flokki.
Munurinn á þessu máli í A- og B-fI„ A- og C-fl. og A- og D-fl. er raun-
hæfur í 99.9% tilfella, en munurinn á A- og E-flokki, 4.1 mm, nær því
ekki að vera raunhæfur í 95% tilfella, tafla 47. Þessi munur á A- og
E-flokki og hinn Iitli munur á B- og C-flokki, 1.25 mm, þótt óraun-
hæfur sé, bendir til þess, að við 28 mánaða aldur séu tvævetlur, sem
gengu með lambi veturgamlar, ekki búnar að ná alveg jafnmikilli
fitusöfnun efst á síðu við aftasta rif, eins og ef þær hefðu verið geldar
veturgamlar. Samanburður á töflu 25 og 47 og á línuriti 5 og 10 sýnir,
að algeldar tvævetlur eru aðeins örlítið feitari efst á síðu en algeldar
gimbrar veturgamlar, og dilkgengnar tvævetlur eru álíka feitar á þessum
stað eins og dilkgengnar gimbrar veturgamlar.
9