Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 13
11
kg
60
50
Æ
'5 40
S
8j 30
«4H
*CÖ
*3d
!20
10
0
Línurit 1. Áhrif fangs á fyrsta vetri á meðalþunga ánna á fæti frá 4—16 mánaða
aldurs effect of breeding gearling ewes on iheir live-weight changes from h to 16
months.
sýnir, að þessi þungamunur hefur þó ekki raunhæft gildi í 95% tilfella,
sem orsakast af því, hve misþungir einstaklingar eru í hverjum flokki.
Þetta réttlætir, að gerður sé beinn samanburður á þunga flokkanna síðar
á þroskaskeiðinu, án þess að tekið sé tillit til þess, að gimbrarnar í C-
flokki voru aðeins þyngri í upphafi. Samt sem áður getur þessi þunga-
munur haft smávægileg áhrif á niðurstöðurnar við síðari vigtanir.
Frá októberbyrjun til febrúarbyrjunar léttast lömbin í A-flokki um
0.50 kg, en þyngjast í B-flokki um 1.18 kg og í C-floklú um 0.47 kg. Þótt
þessi munur á þrifum flokkanna sé lítill, þá kernur þö í ljós, að lembdu
gimbrarnar hafa þrifizt betur en þær geldu. Kemur það heim við skoðun
margra bænda, að gimbrar, sem fá, verði lystugri og þrifabetri en geldar
gimbrar. Sjálfur fósturþunginn er svo lítill 2—4 vikum eftir fengitíma,
að hann getur engin áhrif haft á þunga gimbranna við miðsvetrarvigtun.
Á tímabilinu frá febrúarbyrjun til 5. maí þyngjast gemlingarnir minnst
í A-flokki 3.36, þar næst í B-flokki 5.91 kg og mest í C-flokki 6.34 kg.
Á þessu þriggja mánaða tímabili hafa því gemlingarnir, sem gengu með
fangi, þyngzt að meðaltali 2.55 kg í B-flokki og 2.98 kg í C-flokki meira
en þeir, sem voru algeldir.
Aldur, mánuðir age, months.