Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 26
24
Minnsta ummál vinstri framfát-
leggjar. Tafla 16 og línurit 4 sýna, að
minnsta ummál framfótleggjarins í C-
flokki er að meðaltali 0.80 mm minna
en í A-flokki og 1.07 mm minna en í
B-flokki eða 0.6% hærra í B-flokki og
1.7% lægra í C- en í A-flokki. Rann-
sókn frávika sýnir, að munurinn milli
flokka er ekki raunhæfur í 95% til-
fella, en nálgast það þó (F = 2.79).
Má því álíta, að jafnmikill munur og
hér um ræðir á gildleika framfótleggj-
ar, þar sem hann er mjóstur, geti or-
sakazt af tilraunaskekkju, þó líkurnar
séu mjög sterkar fyrir því, að legg-
irnir í C-flokki séu aðeins grennri en
i A- og B-flokki, vegna þess að gimbr-
arnar í C-flokki gengu með lömbun-
um, en hinar ekki.
Minnsta ummál framfótleggjar sem
prósenta af lengd hans. Tafla 16 og
línurit 4 sýna, að í hlutfalli við lengd
er vinstri framfótleggurinn að meðal-
tali aðeins gildastur í B-flokki, en
grennstur í C-flokki. Þetta hlutfall er
0.3% hærra í B-flokki og 2.8% lægra
í C-flokki en í A-flokki. Rannsókn frá-
vikanna, tafla 17, sýnir, að munurinn
á A- og B-flokki er eltki raunhæfur,
en á A- og C-flokki og B- og C-flokki er munurinn raunhæfur i 95%
tilfella.
Þetta sýnir, að þótt gimbrarnar í B-flokki gengju með fóstri og
fæddu það af sér, en misstu lambið strax, þá hefur það ekki dregið
úr þykktarvexti fótleggjanna. Hins vegar hefur það dregið dálítið ur
þykktarvextinuin í C-flokki, að þær gengu með lambi yfir sumarið.
Þgngd vinstri framfótleggjar. Fótleggurinn er að meðaltali aðeins
þyngstur í B-flokki, en léttastur i C-flokki, tafla 16. Þessi munur er
saint sem áður svo lítill, að hann reyndist ekki raunhæfur við rann-
sókn frávika. Lítið vantaði þó á, að svo væri. Höfundur hefur sannað,
Pálsson (1939, 1940), að svo náið samband er á milli þunga fótleggj-
arins og þunga allrar beinagrindarinnar, að hægt er að reikna út þunga
beinagrindarinnar með allmikilli nákvæinni, sé þungi fótleggjarins
þekktur. Er því óhætt að slá því föstu, að meðalþungi beinagrindar
í C-flokki hefur ekki verið nema 3—4% léttari en í A-flokki. Fótlegg-
urinn er 2.8% léttari í C- en A-flokki, en búast má við, að munurinn á
°/° | A-n. 0 B-fl, § c-n.
Línui'it 4. Álirif fangs á fyrsta vetri á
meðalmál og þunga vinstri framfót-
leggjar ánna 16 mánaða (A-fl. = 100)
effect of breeding yearling ewes on
their auerage left fore cannon bone
measurements and weight at 16 months
of age (lot A = 100).