Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 77
75
voru tekin 14 mál af hverju falli og vinstri framfótleggur hverrar kindar
hreinsaður, veginn og mældur til þess að rannsaka þroska heina.
5. Allar niðurstöður voru sannprófaðar með því að leggja á þær
stærðfræðilegt mat.
6. Lainbsveturinn þyngdust algeldu gemlingarnir (A- og B-flokkur)
2.98 kg að meðaltali, en þeir lambfullu (C-, D- og E-flokkur) 6.72 kg
eða næstum því nákvæmlega jafnmikið og hliðstæðir flokkar gemling-
anna, sem rannsóknirnar í kafla I eru gerðar á. Yfir árið frá 4—16
mánaða aldurs þyngdust algeldu gimbrarnar 20.0 kg og þær dilkgengnu
13.09 kg að meðaltali. Lambgimbralömbin undan þeim síðarnefndu
lögðu sig með 13.61 kg falli, 0.92 kg mör og 2.96 kg gæru.
7. Sextán mánaða gamlar voru ærnar í B-floltki 7.87 kg þyngri en
ærnar í C-flokki. Frá 16—28 mánaða minnkaði þungamunur þessara
flokka um 62.5% og nam ekki nema 2.95 kg við 28 mánaða aldur. Á
þessu tímabili þyngdust ærnar, sem voru lamblausar tvævetrar, að
meðaltali 7.70 kg í A-flokki og' 9.40 kg í E-flokld, en þær, sem gengu
með lömbum tvævetrar, bættu aðeins við sig 3.19 kg í C-flokki, 1.40 kg
í D-flokki og létlust um 1.73 kg í B-floltki að meðaltali.
8. Eins og í kafla I kom í ljós við slátrun, að munurinn á meðal-
þunga ánna í flokkunum á fæti lá næstum því eingöngu í mismun niður-
lagsafurða. Tvílemburnar vógu þó hlutfallslega meira á fæti miðað við
niðurlagsafurðir en hinar ærnar.
9. Meðalþungi tvígeldu tvævetlnanna (A-fl.) var mestur (27.50 kg)
og var raunhæfur munur á fallþunga þeirra og' ánna í hverjum hinna
flokkanna. Ærnar í E-flokki höfðu næst þyngst meðalfall (24.30 kg)
og var raunhæfur munur á fallþunga þeirra og ánna í C- og D-flokki,
cn ærnar í B-flokki höfðu aðeins 1.87 kg léttara fall en ærnar í E-flokki
og var sá munur ekki raunhæfur. Ærnar í C-flokki höfðu 2.02 kg eða
8.6% léttara meðalfall en ærnar í B-flokki, og er sá munur raunhæfur í
95% tilfella, en nemur þó aðeins 38.7% af mismuninum, sem var á
hliðstæðum flokkum við 16 mánaða aldur (C- og A-flokki í kafla I).
Fallþungi ánna í C- og D-fl. var næstum því jafnmikill.
10. Ekki var raunhæfur rnunur á meðalmörþunga ánna í flokkunum,
sem gengu með lambi eða lömbum tvævetrar, hvort sem þær voru geldar
cða ekki veturgamlar (B-, C- og D-fl.), þó var aðeins minnstur mör í
tvílembunum (D-fl.). Hins vegar var raunhæfur munur á meðalmör-
þunga geldu flokkanna (A- og E-fl.) og á mörþunga þeirra hvors um
sig og dilkgcngnu flokkanna hvers fyrir sig.
11. Ekki var raunhæfur munur á milli noltkurra hinna 5 flokka
á eftirtölduin útvortismálum fallanna: T, F og Th. Ekki var heldur
raunhæfur munur á milli flokkanna, sem gengu með lainbi tveggja
vetra, á hinunx útvortismálunum, nema ærnar í B-flokki höfðu meira
þvermál brjóstkassa (W) en ærnar í C-flokki. G,-, W- og U-málin voru
hærri í geldærflokkununx (A- og E-fl.) en í mylkærflokkunum (B-, C-
og D-fl.). Hæst voru þessi 3 mál í A-fl. og var raunhæfur munur á þeim
10