Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 24
22
alveg eðlilega vegna þess, að mjólkurmyndunin hefur dregið til sín
nokkuð af þeirri næringu, sem gimbrarnar hefðu annars getað nr tað til
síns eigin vaxtar.
Minnsta ummál brjóstkassans, U. Ummál brjóstkassar s er að
meðaltaii 46 mm eða 5.5% minna í C-flokki en A-flokki, tafla 11 og
línurit 3. Þessi munur er raunhæfur í 99.9% tilfella, tafla 15. Þetta mál
er hins vegar aðeins 5.9 mm eða 0.7% minna í B-floltki en A-flokki. Sá
munur er ekki raunhæfur. Aftur á móti er munurinn á B og C-flokki
40.1 cm raunhæfur í 99.9% tilfella.
Tafla 15. Raunhæfni mismunar flokkanna á meðalbrjóstummáli fallanna (U) í mm.
Significance of lot differences in the mean circumference of heartgirth (U) mm.
F milli flokka between lots = 12.57 RRR.
Meðalskekkja Tala
flokksmeðaltaína einstaklinga
A-flokkur B-flokkur C-Í'lokkili' S. E. of No. of
lot A lot B lot C mean individualí
A-flokkur lot A .. . 834.1 ER RRR 8.525 11
B-flokku r lot B . 828.2 RRR 8.525 11
C-flokkur lot C .. - 788.1 6.170 21
RRR =: raunhæfur í 99.9% tilfella significant at 0.1% level. ER = ekki raun-
hæfur not significant.
Það mun láta nærri því, að helmingur þess munar, sem er á brjóst-
ummáli A- og C-flolcks, orsakist af minna holdi á hrjóstkassa gimbranna
í C-flokki, en hinn helmingurinn orsakist af minna rými sjálfrar
br j óstkassagrindarinnar.
Við athugun útvortismála fallanna í heild kemur í ljós, að það
hefur eklci dregið úr lengdarvexti beina í miðjum útlimum, þótt gimbr-
arnar ættu lamb og mjólkuðu því yfir sumarið. Hins vegar hefur það
haft allveruleg áhrif á þroska brjóstkassans, mest á þvermál hans (W),
en minnst á dýpt hans (Th), sjá línurit 3. Munurinn á brjóstkassa-
málum algeldu gimbranna (A-fl.) og þeirra, sem misstu (B-fl.), er svo
lítill, að hann er ekki raunhæfur. Má því telja, hvað lögun brjóstkass-
ans snertir, að gemlingar séu óskemmdir af því að eiga lömb, ef þeir missa
þau strax. Munurinn á þessum málum í A- og C-fl. og B- og C-fl. er hins
vegar svo mikill, að hann er raunhæfur í 99.9% tilfella og mun liggja
jöfnum höndum í því, að vöðva- og' fitusöfnun dilkgengnu gimbranna
er minni en þeirra algeldu, og dilkgengnu gimbrarnar hafa ekki náð
alveg eðlilegri lögun á beinagrind brjóstkassans, þ. e. a. s. rifin virðast
ekki hafa hvelfst og lengst alveg eðlilega, á meðan gimbrarnar gengu
með og' mjólkuðu lömbum sínum. í kafla II verður athugað, hvort
gimbrar, sem gengið hafa með lambi gemlingar, ná sér hvað snertir
þroska og lögun brjóstkassans frá 16—28 mánaða aldurs.