Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 69
67
hvert þeirra fyrir sig hinn raunverulega mun flokkanna á fitumagni
fallanna. Tafla 49 sýnir þrjú fitumálin, C, J og Y, samanlögð í öllum
flokkum og raunhæfni mismunar flokkanna á þessum málum saman-
lögðum.
Tafla 49. Raunhæfni mismunar flokksmeðaltalna á C + J + Y málunum í mm.
Significance of lot differences in the mean thickness of fat at C + J + Y mm.
F milli flokka hetween tots = 9.39 RRR.
Meðalskekkja Tala
flokksmeðalt. einstakl.
A-flokkur B-flokkur C-flokkur I)-fIokkur E-flokkur S.E. of No. of
lot A lot B lot C lot D lot E mean i individuals
A-flokkur lot A 28.70 RRR RRR RRR R 1.939 10
B-f]okkur lot B 18.46 ER ER ER 1.578 15
C-flokkur lot C - 15.48 ER R 1.139 29
D-flokkur lot D - - 15.00 ER 2.742 5
E-flokkur lot E - - - 21.60 2.742 5
RRR = raunhæfur i 99.9% tilfella significant at 0.1% level. R = raunhæfur í
95% tilfella significant at 5% level. ER = ekki raunhæfur not significant.
Þessi 3 fitumál samanlögð eru langhæst í A-flokki, 28.7 mm eða
55.5% hærri en í B-flokki, þar næst í E-flokki, 21.6 mm eða 17% hærri
en í B-flokki, næstlægst í C-l'lokki, 15.48 mm eða 16.1% lægri en í
B-flokki og lægst í D-flokki eða 18.9% lægri en í B-flokki. Munurinn
á A-flokki og öllum hinum flokkunum er raunhæfur og sömuleiðis
munurinn á C- og E-flokki, en á hinum flokkunum er munurinn eklti
raunhæfur, tafla 49.
Niðurstöður af samanhurði fitumálanna hjá þessum 5 flolckum af
tvævetlum sýna, að það hefur rnjög mikil áhrif á fitusöfnun þeirra,
hvort þær ganga með lambi tvævetrar eða eru þá lamblausar, en þess
gætir tiltölulega litið á fitusöfnun tvævetlnanna, hvort þær gengu með
lambi eða ekki veturgamlar. Samt sem áður eru þær tvævetlur, sem
gengu með lambi veturgamlar, aðeins magrari tvævetrar en hinar, sem
voru algeldar veturgamlar (sbr. ærnar í B-fk, og C-fl. og í A-fl. og E-fk).
Þessi munur er þó svo Htill, að rannsókn frávika sýnir, að hann nær
því ekki að vera raunhæfur i 95% tilfella, nema munurinn á þremur
fitumálunum samanlögðum (C-j-J-j-Y) í A- og E-flokki.
Munurinn á fitumálum flokkanna eftir þvi, hvort ærnar gengu með
lambi veturgamlar eða ekki, er þó nokkru meiri en munurinn á vöðva-,
heina- og útvortismálum fallanna. Það er í samræmi við niðurstöð-
urnar í kafla I og sýnir enn fremur, að ær, sem ekki hafa náð eðli-
legum þroska til 16 mánaða aldurs vegna þess, að þær gengu með lambi
veturgamlar, ná að vinna upp til 28 mánaða aldurs hlutfallslega minna
af því, sem dró úr fituvextinum en úr vexti annarra líkamsvefja til
16 mánaða aldurs.
Áhrif á hæd háþornanna, S. Tafla 50 sýnir meðalhæð háþornsins,
S, á næstaftasta brjóstkassahryggjarlið í öllum flokkum og raunhæfni
mismunar flokksmeðaltalna þessa máls.
9'