Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 52
50
Tafla 36. Raunhæfni mismunar á meðalmörþunga flokkanna í kg.
Significance of lot difference in the mean weight (kiios) of kidney fat plus caul fat.
F milli flokka between lots = 17.11 RRR. Meðalskekkja flokksmeðalt. Tala einstakl.
A-flokkur lot A B-flokkur C-flokkur lot B lot C D-flokkur lot D E-flokkur S. E. of No. of lot E mean individuals
A-flokkur lot A 4.76 RRR RRR RRR RR 0.256 10
B-flokkur lol B - 2.56 ER ER R 0.209 15
C-flokkur lot C - - 2.52 ER RR 0.150 29
D-flokkur lot D - - - 2.10 RR 0.362 5
E-flokkur lot E - - - - 3.56 0.362 5
RRR = raunhæfur í 99.9% tilfella significant at 0.1% level. RR = raunhæfur i
99% tilfella significant at 1% level. R = raunhæfur í 95% tilfella significant at 5%
level. ER ekki raunhæfur not significant.
Þessar niðurstöður sýna, að mörsöfnunin veltur fyrst og fremst á
því, hvort ærin mjólkar yfir sumarið eða ekki.
Miðað við niðurstöðurnar í kafla I, bls. 18, tafla 10, má ganga út
frá því, að ærnar í B-flokki, sem voru algeldar veturgamlar, hafi þá um
haustið haft meira en 1.5 kg meiri nýrmör og netju en ærnar í C-flokki,
sem gengu með iambi veturgamlar. Sá munur á mörþunga þessara
flokka hverfur því nær alveg við það, að ærnar i þeim báðum ganga
með einu lambi hver tvævetlur. Líklegt er, að mismunur sá á mörþunga
B- og C-flokks, sem var til staðar, er ærnar í þessum flokkum voru
veturgamlar að hausti. hafi að mestu leyti horfið, er þær voru á annan
vetur. Þær sátu þá við sama borð, en ærnar í B-flokki, sem voru feitari
um haustið, hafa þurft meira viðhaldsfóður en ærnar i C-flokki og hafa
því gengið meira á mörinn og aðra fitu en ærnar í C-flokki, enda léttust
ærnar í B-flokki um 3 kg meira að meðaltali en ærnar í C-flokki frá
1. október til 1. fcbrúar, er þær voru á annan vetur, tafla 27.
Það er athyglisvert, að þótt mörinn í tvævetlum í C-fl. væri aðeins
1.6% minni en í þeim í B-flokki, þá var fallið 8.6% léttara af þeim fyrr-
nefndu, tafla 31. Þetta er öfugt við það, sem verið hefur, þegar þær
voru veturgamlar. Miðað við niðurstöðurnar í kafla I, töflu 5, hefur
verið hlutfallslega mun meiri munur á mörþunga en fallþunga ánna í
B- og C-flokki, er þær voru veturgamlar (16 mánaða), sjá línurit 2 og 7.
Tvær orsakir munu liggja til þessa. í fyrsta lagi hefur gengið meira
saman með B- og C-flokki á annan vetur, hvað snertir mörþunga en
fallþunga, því þegar kind leggur af, lætur hún fyrst fituna, en síðar
vöðva og aðra bráðþroskaðri vefi líkamans. í öðru lagi orsakar mjólkur-
myndun áa, sem ganga með lambi, það, að þær safna tiltölulega lítilli
fitu, einkum í seinþroskuðustu fituvefi likamans á yfirborði fallsins
og netju og nýrmör, því sú næring, sem ærin meltir, meðan hún mjólkar
lambi, gengur fyrst og fremst til mjólkurmyndunar og svo til viðhalds
og' vaxtar hinna lífsnauðsynlegu og bráðþroska líffæra — og líkams-
vefja, ef ærin er enn á vaxtarskeiði, — en hinir seinþroskuðustu likams-