Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 18
16
innan hvers flokks, getur því orsakast af öðrum ástæðum en þeim, að
gimbrarnar áttu lömb og misstu. Samt sem áður eru allar líkur til þess,
að það hafi eitthvað dregið úr fallþunga gimbranna i B-flokki, að þær
gengu með fóstri, því mismunurinn hefði verið raunhæfur í 95% til-
fella, ef hann hefði numið 2.04 kg. Munurinn á meðalfallþunga A- og
C-flokks og B- og C-flokks er raunhæfur í 99.9% tilfella. Meðalskekkja
mismunar þessara flokka er aðeins 0.748 og er því munurinn á fall-
þunganum í A- og C-flokki 7 sinnum og í B- og C-flokki rúmlega 5
sinnum hærri en meðalskekkja mismunarins.
Tafla 7. Raunhæfni mismunar meðalfallþunga flokkanna í kg.
Significance of lot differences in the mean dressed carcass weight (kilos).
F milli flokka between lots = 28.77 RRR
Meðalskekkja Tala
flokksmeðaltalna einstaklinga
A-flokkur B-flokkur C-flokkur S. E. of No. of
lot A lot B lot C mean individuals
A-flokkur lot A .. . 24.50 ER RRR 0.606 11
B-flokkur tot B . - 23.18 RRR 0.606 11
C-flokkur lot C .. - - 19.28 0.439 21
RRR = raunhæfur í 99.9% tilfella significant at 0.1% level. ER = ekki raunhæfur
not significant.
Tafla 5 og línurit 2 sýna, að meðalföllin í B-flokki vega 5.4%
minna og í C-flokki 21.3% minna en meðalföllin í A-flokki. Munurinn
á meðalfallþunga flokkanna er því hlutfallslega meiri en munurinn
á meðalþunga þeirra á fæti, línurit 2, vegna þess, hve gimbrarnar í B-
og C-flokki hafa Iægri kjötprósentu en gimbrarnar í A-flokki.
Þessar athuganir sýna, að það dregur gríðarlega úr þroska fallsins,
ef gemlingar eiga lömb og ganga með þau yfir sumarið, þótt þeir hafi
í upphafi verið væn ásetningslömb og vel fóðraðir lambsveturinn. Hins
vegar dregur það lítið úr þroslta fallsins, þó gemlingurinn fái og fæði
af sér lamb, ef hann missir það nýfætt. Sé gengið út frá því, að þær
kindur, sem hér um ræðir, hafi, er þær voru lömb haustið 1949, haft
sömu kjötprósentu eins og gimbrar þær af íslenzku kyni, sem slátrað
var á Hesti haustið 1950 eða 42.69%, en þá var öllum gimbrunum
þar slátrað, en 1949 aðeins þeim lélegustu, þá hefðu gimbrarnar í
hverjum flokki lagt sig með fallþunga sem hér segir: t A-flokki 15.31
kg, í B-flokki 15.25 kg og í C-flokki 16.31 kg. Byggt á þessari áætlun,
hafa algeldu gimbarnar (A-flokkur) bætt við fallþunga sinn að meðal-
tali yfir árið 9.2 kg, þær, sem misstu (B-flokkur) 7.93 kg og þær, sem
gengu með lambi (C-flokkur) 2.97 kg. Það hefur því dregið úr þroska
meðalfallsins nm 6.23 kg, að gimbrarnar í C-flokki gengu með lömbum.
Lömbin undan þessum gimbrum lögðu sig að meðaltali með 15.21 kg
falli. Hefur því kjötframleiðslan eftir hverja dilkgengna gimbur orðið
að meðaltali 8.98 kg eða 97.6% meiri yfir árið en eftir þær algeldu.