Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Blaðsíða 66
64
Tafla 45. Raunhæfni mismunar flokksmeðaltalna á þykkt yfirborðsfitulagsins
ofan á bakvöðvanum (C) í mm.
Significance of lot differences in ihe mean ihickness of backfat at (C) mm.
F milli floUUa between lots = 3.83 RR. Meðalskekkja Tala flokksmeðalt. einstakl.
A-flokkur B-flokkur C-flokkur D-flokkur E-flokkur S. E. of No. of
lot A lot B lot C lot D lot E mean individaals
A-t'loUUur lot A 6.90 ER RR RR ER 0.655 10
B-floUUur lot I) 5.33 ER ER ER 0.535 15
C-floUUur lot C - 4.14 ER ER 0.385 29
D-floUUur lot I) - - 3.80 ER 0.927 5
E-floUUur lot E - - - 4.80 0.927 5
RR = raunhæfur í 99% tilfella significant at 1% level. ER = ekki raunhæfur
not significant.
28.7% lægra en i B-flokki. í C-flokki er þeíta mál 22.3% og í E-flokki
10.0% lægra en í B-flokki, tafla 42 og línurit 10. Munurinn á C-málinu
í A- og C-flokki, 2.76 mm, og A- og D-flokki, 3.10 mm, er raunhæfur
í 99% tilfella, tafla 45, en munurinn á þessu máli milli annarra flokka
er ekki raunhæfur vegna hárrar meðalskekkju flokksmeðaltalna.
Yfirborðsfitan ofan á bakvöðvanum við aftasta rif er á tvævetlunum
í C-flokki 4.14 mm, aðeins örlitið þykkri en hún var á veturgömlu
gimbrunum dilkgengnu í C-flokki i kafla I, 4.09 mm. Sýnir þetta, að
ærnar, sein gengu með lambi veturgamlar og aftur tvævetrar, hafa
ekki getað aukið fitusöfnun ofan á bakvöðvanum frá 16—28 mánaða
aldurs jafnframt því að mjólka lambi og hafa því ekki unnið upp það
þroskatap á fitu á þessum hluta skrokksins frá 16—28 mánaða aldurs,
sem þær urðu fyrir við að ganga með lambi veturgamlar. Tvævetlurnar
í D-flokki hafa þynnra fitulag ofan á bakvöðva við aftasta rif en vetur-
gömlu gimbrarnar í C-flokki í kafla I. Ær, sem ganga með lambi vetur-
gamlar og með 2 lömbum tvævetrar, hafa því minni yfirborðsfitu á
baki tvævetrar en veturgamlar. Tvævetlurnar í B-flokki hafa 1.31 mm
þynnra fitulag ofan á bakvöðvanum en veturgömlu gimbrarnar í A-
flokki i kafla I, en 1.19 mm þykkra en tvævetlurnar í C-flokki. Ærnar í
B-flokki virðast því hafa inisst um 20% af yfirborðsfitulaginu ofan á
bakvöðvanum við aftasta rif frá 16 mánaða aldri til 28 mánaða aldurs,
við að ganga með lambi um sumarið. Tvævetlurnar í E-flokki hafa 10%
lægra C-mál en tvævetlurnar í B-flokki, sem sýnir, að þrátt fyrir það,
að þær fyrrnefndu voru lamblausar tvævetrar, hafa þær ekki náð alveg
sömu fitusöfnun á baki eins og dilkgengnar tvævetlur, sem voru geldar
veturgamlar.
Þijkkt fitulagsins ofan á háþorni næstaftasta brjósthrgggjarliðs, D.
Þetta mál er lægst í C-flokki eða 57% lægra en í B-f!okki, en hæst í
A-flokki 75% hærra en í B-flokki, tafla 42 og línurit 10. Tafla 46 sýnir,
að munurinn á þessu máli milli A- og B-flokks, A- og C-flokks og A-
og D-flokks er raunhæfur í 95% tilfella, en munurinn milli annarra