Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Side 13

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Side 13
11 kg 60 50 Æ '5 40 S 8j 30 «4H *CÖ *3d !20 10 0 Línurit 1. Áhrif fangs á fyrsta vetri á meðalþunga ánna á fæti frá 4—16 mánaða aldurs effect of breeding gearling ewes on iheir live-weight changes from h to 16 months. sýnir, að þessi þungamunur hefur þó ekki raunhæft gildi í 95% tilfella, sem orsakast af því, hve misþungir einstaklingar eru í hverjum flokki. Þetta réttlætir, að gerður sé beinn samanburður á þunga flokkanna síðar á þroskaskeiðinu, án þess að tekið sé tillit til þess, að gimbrarnar í C- flokki voru aðeins þyngri í upphafi. Samt sem áður getur þessi þunga- munur haft smávægileg áhrif á niðurstöðurnar við síðari vigtanir. Frá októberbyrjun til febrúarbyrjunar léttast lömbin í A-flokki um 0.50 kg, en þyngjast í B-flokki um 1.18 kg og í C-floklú um 0.47 kg. Þótt þessi munur á þrifum flokkanna sé lítill, þá kernur þö í ljós, að lembdu gimbrarnar hafa þrifizt betur en þær geldu. Kemur það heim við skoðun margra bænda, að gimbrar, sem fá, verði lystugri og þrifabetri en geldar gimbrar. Sjálfur fósturþunginn er svo lítill 2—4 vikum eftir fengitíma, að hann getur engin áhrif haft á þunga gimbranna við miðsvetrarvigtun. Á tímabilinu frá febrúarbyrjun til 5. maí þyngjast gemlingarnir minnst í A-flokki 3.36, þar næst í B-flokki 5.91 kg og mest í C-flokki 6.34 kg. Á þessu þriggja mánaða tímabili hafa því gemlingarnir, sem gengu með fangi, þyngzt að meðaltali 2.55 kg í B-flokki og 2.98 kg í C-flokki meira en þeir, sem voru algeldir. Aldur, mánuðir age, months.

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.