Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.10.1953, Side 64
62
ganga íncö lambi veturgamlar, cn verða lamblausar tvævetrar, vinna
þá að fullu og öllu upp þroskatapið á þykkt bakvöðvans, sem þær
verða fyrir innan 16 mánaða aldurs við að gang'a með lainbi veturgamlar.
í B-flokki er bakvöðvi ánna 2.07 mm eða 8% þynnri en í A-flokki,
og virðist munurinn orsakast eingöngu af því, að þær fyrrnefndu gengu
með lambi tvævetrar. Ærnar í B-fl. hafa því þynnri bakvöðva 28 mánaða
en þær munu hafa haft 16 mánaða, þá geldar. Þessi munur liggur
óefað að nokkru, ef ekki öllu leyti, í því, að minni fita liggur milli
vöðvaþráðanna í dilkgengnu tvævetlunum, B-fk, en þeim geldu, A-fl.
Það er þó hugsanlegt, að mjólkandi ær geti ekki umsett svo mikla
næringu, þótt fyrir hendi sé, að hún geti mjólkað lambi vel og haldið
vöðvaþráðum líkamans í fullri þykkt. Tvílemburnar, D-fk, hafa þynnst-
an bakvöðva af öllum tvævetlunum, aðeins 0.7 mm þykkri en dilk-
gengnar ær veturgamlar, C-fl., kafli I, og bendir það til þess, að mikil
mjólkurmyndun verði að nokkru leyti á kostnað vöðvaþykktarinnar.
Ær, sem ganga með 2 lömbum, mjólka ávallt meira, en ef þær ganga
aðeins með 1 lambi, Wallaee (1948).
Lögun bakvöðvans, B/A ■ 100. Æskilegasta Iögun bakvöðvans er,
að hlutfallið B/A-100 sé sem hæst, sjá kafla I, bls. 28. Þetta mál er
hæst í E-flokki, örlítið lægra í A-flokki, 15% Iægra í B- og C-flokki en
í E-flokki og 2.9% lægra í D-flokki en B-flokki, tafla 42 og línurit 10.
Rannsókn frávika sýnir þó, að munurinn milli flokka er ekki raun-
hæfur í 95% tilfella (F==2.14). Að enginn munur skuli vera á þykkt
bakvöðvans í hlutfalli við breidd hans á B- og C-flokki, þrátt fyrir
mikinn og raunhæfan mun á þessu máli í A- og C-flokki, kafli I, tafla 21,
svnir, að ær, sem gengu með lambi bæði veturgamlar og tvævetrar,
hafa náð sömu bakvöðvalögun 28 mánaða eins og jafngamlar ær, sem
voru geldar veturgamlar og með lambi tvævetrar, þótt við 16 rnánaða
aldur hefðu þær fyrrnefndu mun þynnri bakvöðva, vegna þess að þær
gengu ineð lambi veturgamlar, en hinar ekki.
Þykkt vöðva á síðu, X. Tafla 42 sýnir, að vöðvar ásamt fitulögum
milli vöðva á miðjum síðunum eru þykkastir í A-l'Iokki, 28.1% þvkkri
en i B-flokki, og þynnstir í C-flokki, 10.9% þynnri en í B-flokki. Munur-
inn á A- og B-flokki og A- og C-flokki er raunhæfur í 99% tilfella og
á A- og D-flokki í 95% tilfella, en munur á öðrum flokkum er ekki
raunhæfur, tafla 44.
Allverulegur hluti af mismun flokkanna á X-málinu mun liggja
í mismun fitulaganna milli vöðvanna á síðunni, því munurinn á þessu
máli í A- og E-flokki er t. d. hliðstæðari muninum á fitumálum þessara
flokka en muninum á bakvöðvamálunum. Munurinn á X-máli B- og
C-flokks nemur aðeins 10.9%, en á 16 mánaða gömlum ám í hlið-
stæðum flokkum, A- og C-flokki, kafla I, töflu 19, nemur þessi munur
18.9%. Sýnir þetta, að tvævetlur, sein gengið hafa með lamhi bæði
veturgamlar og tvævetrar, hafa 28 mánaða gamlar unnið upp allt að
helming af því þroskatapi, sem þær urðu fyrir á vexti vöðva- og fitu-