Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 49
47
Ljósm.: Lilja Sigurðardóttir.
Norðlingafoss 1999.
Melar
Melar eru landnámsjörð Þrastar og Grenjaðar, sona Hermundar
hokins, en þeir námu vesturströnd Hrútafjarðar inn frá Borðeyri,
segir í Landnámu. Melaland var við landnám feikivíðlent, náði
suður að Hæðarsteini á Holtavörðuheiði, austur að Hrútafjarðará
og vestur á hátind Tröllakirkju, þaðan eftir vatnaskilum norður
yfir Geldingafell og Skegg öxl. Þó að Landnáma segi þá bræður
hafa numið lönd inn frá Borðeyri grunar mig að landnámið hafi
náð að Laxá því að sonur Þrastar Hermundarsonar, Þorkell að
nafni, er sagður í sömu heimildum hafa búið á Kjörseyri. Melar
eru líka sögusvið Hrafns þáttar Guðrúnarsonar sem lesa má í
Íslendingasögum.
Það er ævagamalt bæjarstæði yst og neðst í túninu sem nefnist
Fornibær, það er frið lýst en ókannað af fornleifafræðingum.
Neðan við þetta forna bæjarstæði er síki; það er kaldavermsl og
þar leggur aldrei traustan ís yfir. Síkið er nefnt Árnasíki, kennt
við Árna Einarsson sem var bóndi í Grænumýrartungu en hann
drukknaði í síkinu 13. nóvember 1893 á heimleið úr kaupstað. Á
Melum var bænhús fyrr á tímum og þar er að minnsta kosti eitt