Strandapósturinn - 01.06.2014, Síða 56
54
Kauptúnið Borðeyri
Þáttur um Borðeyri, þar sem rakin er í stórum dráttum saga
verslunar og byggðar á staðnum, var birtur í Strandapóstinum, 45.
árgangi, 2013.
Laugarholt
Laugarholt er nýbýli byggt úr landi Borðeyrarbæjar, varð lögbýli
1966 og tilheyra býlinu 15–16 hektarar lands. Bærinn stendur
nyrst á Borðeyrarmel, um það bil einn kílómetra frá kauptúninu.
Á Borðeyrarmel var sjúkraflugvöllur um nokkurt skeið en nú
aflagður fyrir mörgum árum enda búið að byggja upphleyptan
veg eftir melnum og rækta hluta af honum sem tún. Frá Laugar-
holti er víðsýnt um Hrútafjörð, sér bæði inn í fjarðarbotn og út
til hafs.
Rétt norðan við bæinn er lítil mýri sem heitir Laugarmýri
og er þar jarðhiti. Jarðbor anir ríkisins boruðu þar tilraunaholu
1964 og svo aðra árið eftir. Sú borun gekk illa enda borinn
óheppilegur. Varð því ekki af frekari jarðhitaleit um sinn. Samt
höfðu menn alltaf vonir um að þarna væri jarðhita að finna sem
væri virkjanlegur. Þær vonir rættust síðan þegar hafist var handa
á nýjan leik við boranir í Laugarmýri enda hafði þekking manna
og reynsla við jarðhitaleit vaxið. Þá var svæðið vel kannað og
boruð vinnsluhola sem gefur nægilegt vatnsmagn. Árið 2011 var
svo lögð hitaveita til Borðeyrar í öll hús þar.
Borðeyrarbær
Borðeyrarbær er fornt lögbýli. Jörðin var í eigu Hólastóls um
1550, varð síðan konungs jörð fljótlega eftir siðaskipti en kemst í
eigu ríkisins í byrjun tuttugustu aldar. Bærinn stendur í brekku
rétt ofan þjóðvegar. Rétt sunnan við bæinn liggur vegurinn um
Laxár dalsheiði vestur í Dali (þjóðvegur 59).
Borðeyrarbær er ekki stór jörð, landareignin nær frá Hró-
mundará að læk sem rennur í víkina sunnan Borðeyrar, vestur
um Stóruborg í Fýlingjavötn. Þau eru á merkjum fjög urra jarða
og er þar allgóð silungsveiði. Kauptúnið Borðeyri er í landi
jarðarinnar, versl unarstaður sem á sér langa og merkilega sögu.
Ekki er hægt að skýra af hverju Hólastóll ásældist þessa jörð
nema út frá því að til Borðeyrar var siglt á söguöld og stundaður