Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 60

Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 60
58 haft að flestar fuglategundir hér á landi sé að finna á hálsunum beggja vegna Hrútafjarðar. Það mun vera einkum tvennt sem gerir þessi heiðarlönd að fuglaparadís. Í fyrsta lagi víðáttan. Í öðru lagi fjölbreytni landslagsins, mikið votlendi og ótal vötn bæði stór og smá. Úr landi Kjörseyrar var 1855 byggð jörðin Kvíslar og var búið þar til 1937 að bærinn fór í eyði. Kvíslar eru langt fram á Laxár- dalsheiði, bæjarstæðið er fram undir Sölva mannagötum. Það er talið að þarna hafi í upphafi verið selstaða enda bærinn stundum kallaður Kvíslasel. Í fyrstu mun bærinn hafa verið nefnd ur Mið- kvíslarmelur en bæjar stæðið er einmitt á mel sem ber þetta nafn. Síðar hefur nafnið svo verið stytt í Kvíslar enda er það þjálla í munni. Framarlega í landi Kvísla, eiginlega beint vestur af Fjarðarhorni, er hóll sem heitir Jónshóll. Af honum er víðsýnt um nágrennið. Þessi hóll er kenndur við Jón þann er segir frá í þjóðsögunni „Sögubrot af Árna á Hlaðhamri“. Ingibjörg, dóttir Finns á Kjörs- eyri, sagði mér að sjá mætti að grafið hefði verið í hólinn og væri þetta sá staður þar sem Jón og Guðrún, dóttir Árna á Hlaðhamri, hefðu falið sig eins og greint er frá í þjóðsögunni. Laxárdalur Það eru forn munnmæli að Laxárdalur og Hlaðhamar hafi upp- haflega verið ein jörð, Lax árdalur sennilega byggst síðar og þá út úr Hlaðhamarslandi og þannig hafi orðið til tvær jarðir. Nafn bæjarins er dregið af grunnu dalverpi sem Laxá rennur eftir en hún saman dregst úr kvíslum framan af Kvíslafjalli og hefur stórt vatnasvið. Laxárdalur er góð bújörð, landið vel gróið og all stórt. Jörðin á ekki land að sjó. Vesturhlíð Laxárdals er vaxin fjölskúðugum gróðri og mjög falleg og litrík í gróandanum. Hlíð- in nær norður yfir Hlaðhamarsland og endar í hæð sem heitir Eldborg, mun það vera forn eldstöð. Hlaðhamar Nafn bæjarins mun dregið af kletta- og klappartanga sem gengur í sjó fram og myndar gott skjól fyrir bátalendingu. Eins er hægt að leggja bát þar að klöpp til hleðslu eða af fermingar. Ólafur Þorsteinsson (f. 1891, d. 1972), sem lengi bjó á Hlaðhamri, nýtti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.