Strandapósturinn - 01.06.2014, Side 68
66
er reist var ný rétt á Stóru-Hvalsá. Norðan við Réttartanga er
Brimvík. Þar fyrir utan er land Litlu-Hvalsár.
Fyrir góðvilja ábúenda fékk Ungmennafélagið Harpa aðstöðu
til íþróttavallargerðar á sléttum mel rétt ofan þjóðvegar. Þar hefur
félagið komið sér upp þokkalegum afgirtum íþróttavelli til æfinga
og mótahalds.
Árið 1882 var mikið hallæri hér við land. Stórkostlegur fellir
varð á búfé og fólk leið hungur. Hafís fyllti fjörðinn en fram
undan Kollsá var nokkuð stór vök. Þar lokaðist inni stórhveli
sem ekki komst neitt fyrir samfrosta ís. Kollsárbóndinn, sem þá
var Tómas Jóns son, hagur vel og annálaður sjósóknari, smíðaði
lagvopn og vann á hvalnum með hjálp heimamanna. Þetta var
steypireyður, 30 álna löng. Þetta varð mikil matbjörg fyrir ná -
grennið. Húsráðendur á Kollsá gáfu megnið af hvalnum svo ekki
var hvalurinn veiddur í auðgunarskyni. Eftirmál urðu nokkur þar
sem Gilsbakkakirkja í Hvítársíðu taldist eiga hlut í hvalreka á
Kollsá. Gerði presturinn á Gilsbakka, séra Magnús Andrés son, sér
ferð norður í Hrútafjörð og fékk sýslumann Stranda sýslu, Sigurð
E. Sverrissen í Bæ, með sér að Kollsá til að heimta hlut kirkjunnar.
Tómas harðneitaði þessum kröfum, ekki væri um reka að ræða
heldur hefði hvalurinn verið veiddur úti á sjó og ætti kirkjan
því engar kröf ur á hendur honum. Sagt er að honum hafi verið
hótað fangelsi ef hann léti ekki að vilja prestsins. Á hann að hafa
svarað hvatskeytislega og sagt: Setjið mig þá inn. Þá mun sýslu-
manni hafa verið nóg boðið og miðlað málum og féllu kröfur
kirkjunnar niður.
Móðir Tómasar, Gróa Jóhannsdóttir, var mikil atkvæðakona.
Hún beitti sér fyrir því að brú yrði reist á Laxá og hafði það fram
árið 1895. En slíkt var fátíð framkvæmd á þeim tíma.
Niður á sjávarbakka hafa afkomendur Brands Tómassonar
(sonar Tómasar Jónssonar) breytt gamalli hlöðu af mikilli hug-
kvæmni í snoturt vistlegt sumarhús.
Við Fossá, rétt við veginn, hafa fyrrverandi ábúendur á Kollsá
byggt lítið sumarhús.
Litla-Hvalsá
Litla-Hvalsá var áður ein af konungsjörðum Strandasýslu. Bæjar-
stæðið er á syðri bakka Hvalsár á grundum niður við árósinn