Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 76
74
melar að Kattará. Sú á kemur úr dalverpinu Kattardal austan í
Stikuhálsi og fellur í víkina rétt norðan við bæinn. Enn vestar er
svo Stikuháls, ávalur en allhár og teygir sig til norðurs og endar í
sæbröttum klettahöfða, Guðlaugshöfða. Hann skilur milli Hrúta-
fjarðar og Bitrufjarðar. Hreppamörk eru á Stikuhálsi þar sem
hæst ber og landamerki milli Skál holtsvíkur og Þambárvalla í
Bitru. Norðarlega á Stikuhálsi þverbeygja landmerkin til vesturs
í Þórhildarklif við Bitrufjörð. Telja má líklegt að það sé tilkomið
vegna þess að Skálholtsdómkirkja átti rekaítak á Þambárvöllum
og þegar Skálholtsvík var seld frá kirkj unni hafi rekaítakið á
Þambárvöllum fylgt með.
Næst bænum skiptast á melar og mýrlendi gott til ræktunar og
sumarhagar ágætir. Þá er fjörubeit mjög góð. Miðhús er gamalt
býli í miðjum Víkurdal, byggt úr landi Skálholts víkur. Í Jarða-
bókinni frá 1709 er það talin selstaða frá Skálholtsvík. Jörðin
byggðist síðar upp um 1882 og var í byggð til 1946 og er nú nýtt
sem beitiland. Fram í hlíðinni, um kíló metra frá bænum, er
ör nefnið Skriðukot. Þar sér fyrir tóftum og garðhleðslum en
enginn veit um hvenær byggst eða eyðst hefur.
Löngum var stunduð sjósókn frá Víkurbæjum meðan fiskur
gekk á grunnslóð en hin seinni ár eru aðeins veidd hrognkelsi.
Viðarreki er allmikill og býður manni í grun að það sé ástæðan
fyrir því að Skálholtskirkja ásældist jörðina.
Suður af Víkurdal er langur allbrattur múli er liggur til suð-
vesturs. Í daglegu tali er hann kallaður Múlinn en heitir raunar
Viðarmúli. Varla er það nafn tilkomið vegna þess að hann hafi
einhvern tímann verið skógi vaxinn, það er heldur ólíklegt. Hitt
er senni legra, þar sem Múlinn er sléttur þegar upp er komið og
eftir honum endilöngum liggur gata, að þar hafi verið farið um
með viðardrögur frá Skálholtsvík vestur yfir fjallið til Laxárdals í
Dalasýslu enda sennilega besta leiðin suður yfir heiðar. Þar með
hafi skapast örnefnið Viðarmúli.