Strandapósturinn - 01.06.2014, Side 94
92
Flakk
Bréf d. 20. jan. 1821.
Frá: Sýslumanninum í Strandasýslu hr. Jóni Jónssyni Melum við
Hrútafjörð.
Til: Sýslumannsins í Snæfellsnessýslu hr. Krigs Cancl. Sekretær
Ísak Jakob Bonnesen.
„Svo er Strandasýslu innbúum orðið tilfinnanlegt flakk og umferð
betlandi húsgangsfólks frá framandi sveitum, einkum frá Snæ-
fells nessýslu, sem sumar eftir sumar flykkist án passa og allra skil-
ríkja í fátæka hreppa þessarar sýslu, sumt svo vanfært og heilsubilað
að ei getur án fylgdar og flutnings farið frá einum bæ til annars
og fólk verður að takast frá heyverkum og nauðsynlegustu heimilis-
störfum til að ryðja af sér þvílíku þroti er jafnvel hætta búin af
sumra sjúkdómum, að ég ei nefni óléttar konur sem reynslan
hefir sýnt að undanfarin ár ei hefur vantað í téðan betlara flokk,
af hverra þunga sveitum þeim þær betlandi í gegnum flæmast
eru búin stórkostlegustu vandræði og þyngslamót. Sumt aftur svo
misjafnlega kynnt að ráðvendni að ekki er vogandi að hýsa það
næturlangt, en sumt er frískt, heilbrigt og á besta aldri; ber óræk
merki inngróins náttúrufars að vilja nærast á annarra sveita en ei
sínum eigin. Svo er þetta orðið tilfinnanlegt segi ég þar fjöldi
ofanskrifaðra betlara vex nú í besta árferði, ár frá ári, sem með
óforskammaðri frekju útsýgur bestu aura og lífsnæringar meðöl
efnalítillra bú enda og barnamanna að það mætti virðast afskipt
og hirðuleysi, já, forakt við útkomin Kon ungleg boðorð og yfir-
valda þar á grundaðar ráðstafanir ef slíkt skyldi óumtalað og
óstraffað líðast eftirleiðis hvað einungis hafa almennings útörmun
og óstraffaða óknytti til afleiðinga. Þess vegna óska ég þénustu-
sam legast að yðar velbyrðugheitum mætti þóknast eftir fremstu
möguleikum að fyrirbyggja ofannefndra betlara flakk og ferða lög
hingað í sveitir frá Snæ fellsnessýslu héruðum eftirleiðis. Samt tek
[ég] mér þau fríheit að tilkynna yður að téður betl andi og
passalaus húsgangur sem hér eftir hittist hér í sýslu verður sam-
kvæmt boðum […] af 3. mars 1784 og tilskipun af 10. sama