Strandapósturinn - 01.06.2014, Side 102
100
fyrirliggjandi vitneskju um hákarlaveiðar sem einkum lýtur að
síðustu áratugum 19. aldar og byggir á frásögnum sem hafðar
eru eftir körlum sem stunduðu þær eða þeir skrifuðu sjálfir.3
Verður fyrst rakið það sem dánarbúsuppskriftir gefa til kynna um
nýtingu hákarls. Þá fylgja nýfengnar tölur um útgerð og afla með
dæmum af skipakosti og veiðarfærum.
Afurðirnar
Jón Sverrisson húsmaður í Stóru-Ávík í Trékyllisvík lést 23. ágúst
1825 að Kolbeinsá við Hrútafjörð. Hann var utan sveitar maður,
fæddur um 1770 á Rauðabergi í Fljótshverfi í Vestur-Skafta fells-
sýslu, þriðji í röðinni af 24 systkinum. Árið 1801 var hann bóndi
á Seglbúðum í Landbroti (32 ára), kvæntur Halldóru Þorláks-
dóttur (46 ára). Hún var áður gift Grími Ormssyni bónda á
Seljalandi í Fljótshverfi og voru tvö af sex börnum þeirra á
heimilinu, 12 og 13 ára. Börn þeirra Jóns og Halldóru voru
Jón átta ára og Ólöf fimm ára, en Margrét dóttir Jóns framhjá
Halldóru var sex ára gömul hjá móður sinni Vilborgu Jónsdóttur
á Seljalandi.4 Vorið 1816 var Jón Sverrisson kominn þvert yfir
landið og taldist húsmaður í Drangavík í Árneshreppi á Strönd-
um. Fullyrðir Gísli Konráðsson í Strandamanna sögu (frá um
1860) að Jón hafi strokið frá konu sinni eystra og verið grunaður
um þjófnað á peningum, sem hann svo dysjaði í urð í Skjalda-
bjarnarvík. Gísli segir tröllasögur af Jóni og ósennilegt er að
nokkuð sé að marka orð hans.5
Andrés Guðmundsson bóndi á Kolbeinsá lét Jón Jónsson sýslu-
mann á Melum í Hrútafirði vita af andláti Jóns Sverrissonar.
Sýslumaður skrifaði Jóni Salómonssyni faktor á Kúvíkum og
hrepp stjóra í Árneshreppi 2. september 1825 og óskaði eftir
uppskrift á eftirlátnum eigum húsmannsins. Bréfinu fylgdu fjór-
ir lyklar sem Jón hafði verið með og sýslumaður taldi líklegt að
gengju „að kofa hans og hirðslum í Stóru-Ávík“.6 Eignirnar voru
skráðar 17. október og sendi hreppstjóri uppskriftina samdæg-
urs ásamt þremur skuldaheimtuseðlum til sýslumanns, sem fékk
gögnin 13. nóvember.7 Andvirðið nam 40 ríkisbankadölum og
85 skildingum (framvegis stytt í rbd. og sk.). Húskofa átti Jón
með hurð á járnum og skrá, metinn á 40 sk., og hafði haft sex
kindur á fóðrum í nágrenninu, metnar á 7 rbd. 48 sk. samanlagt.