Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 103

Strandapósturinn - 01.06.2014, Page 103
101 Nokk uð var af fatnaði, ílátum og verkfærum, en ekki átti Jón nema hálfa guðsorðabók, sem þar að auki var fúin. Eftir tekt ar- verðust eru matvælin, sem sjaldan er getið í skiptagögnum. Jón átti há karlsafurðir af ýmsu tagi en líka smjör og kornmeti. Mokka er mygla og fjórðungur var tíu pund eða tæp fimm kíló: 27½ pund af þráum tólgi á 2 rbd. 5 pund af smjöri illa útlítandi á 35 sk. 13 fjórðungar af mokkuðum og illa tilhöfðum hákalli á 1 rbd. 34 sk. 5 fjórðungar af skráphákalli slæmum á 25 sk. 9 fjórðungar af lélegum skráp á 1 rbd. 48 sk. ½ tunna bankabygggrjón mokkuð á 4 rbd. 8 sk. ¼ tunna rúgmél gamalt og mokkað á 48 sk. 24 fjórðungar af sumarfengnum hákalli sæmilegum á 3 rbd. 48 sk. 6 fjórðungar af skráphákalli á 42 sk. 1 fjórðungur af lifur á 24 sk. Jafnframt átti Jón þrjá „skinnstakkagarma“, fernar gamlar buxur af skinni og tvö pör skinnsokka, auk tíu punda af skinni; saman- lagt metið á 62 sk. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir því að hann hafi róið á skipi sem var gert út í sveitinni og verkað sinn hlut úr hákarlinum til eigin neyslu eða sölu í kaupstað. Sé tekið mið af lýsingum Lúðvíks Kristjánssonar var lifrin yfirleitt tekin úr við borðstokkinn en hákarlinum sundrað og skipt, ýmist um borð eða í landi. Hann var svo kasaður í gryfjum eða gjótum í tvo til þrjá mánuði, með eða án skráps, en að því loknu hengdur upp og hertur í nokkra mánuði. Úr lifrinni var unnið lýsi.8 Má geta sér til að „sumarfenginn hákarl sæmilegur“ hafi veiðst um sumarið og Jón verið nýbúinn að hengja hann upp áður en hann hélt í sína hinstu ferð. Fjórðungurinn var metinn á 26 sk. Mokkaði hákarlinn hefur verið tilbúinn og án skráps, en farinn að spillast hjá Jóni og aðeins metinn á 10 sk. hver fjórðungur. Skráphákarlinn var sennilega hertur líka og taldist enn síðri, metinn á 7 sk. í eðlilegu ástandi og á 5 sk. slæmur. Fjórðungur Jóns af lifur var metinn á 24 sk. og hefur verið í lagi með hana. Til samanburðar var pund af illa útlítandi smjöri virt á 7 sk. sem þýðir að fengist hefðu 70 sk. fyrir fjórðunginn. Þótt lélegar væru námu hákarlsafurðir Jóns samanlagt 7 rbd. 5 sk., sem slagaði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.