Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 8
Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suður-
nesjum, á skemmtilegar jólaminningar þegar hún var hjá ömmu sinni
og afa þegar hún var lítil. Í lögreglunni hefur vaktavinna haft áhrif á
jólahefðir fjölskyldunnar en jóladagur er þó heilagur náttfatadagur.
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Misjafnt en þetta árið hef ég verslað
helming þeirra á netinu.
Hvað með jólaskreytingar, eru þær
fyrr í ár?
Örlítið fyrr í ár. Hef reyndar alltaf
geymt að setja jólatré upp skömmu
fyrir aðfangadag en hef lofað dóttur
og eiginmanni að vera fyrr á þessu ári.
Skreytir þú heimilið mikið?
Passlega en eykst með auknum áhuga
barnanna.
Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá
helst? Áttu þér uppáhaldssmáköku?
Nei en vildi að ég væri myndarlegri
hvað það varðar. Sem barn voru van-
illuhringir og kókoshringir mitt allra
uppáhalds.
Eru fastar jólahefðir hjá þér?
Nei, get ekki sagt það. Lögreglustarfið
hefur að hlutað til mótað það þannig
hjá okkur. Vaktavinnan hefur verið
fyrirferðarmikil í fjölskyldunni og því
ekki að festa okkur í hefðir. Jóladagur
er reyndar heilagur náttfatadagur.
Hvernig er aðventan – hefðir þar?
Er Covid að trufla undirbúning
jólanna?
Engar hefðir á aðventunni. Við
erum ekki að láta Covid trufla undir-
búninginn heldur reynum við ræða
það sem minnst. Mikilvægt að vera
jákvæður.
Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir? Áttu skemmtilega jólaminn-
ingu?
Fyrstu jólin sem ég man eftir eru
á Hringbrautinni hjá móðurafa og
ömmu. Þar var yndislegt að vera og
finna hlýju þeirra og elsku. Sú jóla-
minning sem kemur fyrst í huga minn
er frá 1984 þegar ég og Guffi frændi
vorum að líka eftir Þórði húsverði og
Bryndísi. Guffi var snemma hnyttinn
og uppátækjasamur og ekkert eðli-
legra en að leika þau fimm og sex ára
gömul.
Hefurðu sótt messu um jólahátíð-
irnar í gegnum tíðina?
Nei.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Engin ein, hver þeirra eftirminnileg
á sinn máta.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að fá í jólagjöf?
Gönguskó
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
Kalkúnn og tilheyrandi. Vonast til
að eiginmaðurinn útbúi jólaís líkt
og hann gerði síðustu jól. Hefðirnar
hafa breyst. Áður var það hamborgar-
hryggur en höfum valið að fara aðeins
„léttari“ leið síðustu ár.
Jóladagur heilagur náttfatadagur
Páll Ketilsson
pket@vf.is
MUNUM EFTIR
AÐ GLEÐJA OG NJÓTA
UM HÁTÍÐARNAR
www.dutyfree.is
Fríhöfnin óskar þér
gleðilegrar hátíðar
og endalausra ævintýra
á nýju ári
8 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár