Víkurfréttir - 16.12.2021, Síða 68
• Gisting með morgunverði
• Gisting með morgunverði og kvöldverði
• Reykjavík Spa meðferðir
• Sérsniðin gjafabréf
17 HÓTEL UM ALLT LAND
Gjafabréfin gilda á Fosshótelum, Grand Hótel Reykjavík
og Hótel Reykjavík Centrum
GJAFABRÉF ÍSLANDSHÓTELA
gjafabref@islandshotel.is | islandshotel.is/gjafabref
EINSTÖK TILBOÐ
og ótal möguleikar í boði
Hefur rosalega
gaman af því
að baka
Keflvíski knattspyrnumaðurinn Elías Már Ómarsson leikur með
Nimes Olympique í Frakklandi. Fólki finnst erfitt að finna gjafir
handa honum en sjálfum finnst honum sérstaklega gaman að
fylgjast með sonum sínum upplifa jólin og jólaundirbúninginn.
Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Elíasi Má og fjölskyldu en þau
fluttu frá Hollandi til Frakklands í sumar.
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Ég bara fékk fjölskyldumeðlimi til
að fara í verslanir fyrir mig og kaupa
það sem ég hafði valið af netinu.
Hvað með jólaskreytingar, eru þær
fyrr í ár?
Bara eins og vanalega þá fóru þær
upp 1. desember.
Skreytir þú heimilið mikið?
Nei, nei, ekkert rosalega en ég skreyti
alveg eitthvað. Það er sérstaklega
gert fyrir börnin, þeim finnst gaman
að sjá jólaljósin.
Bakarðu fyrir jólin, áttu þér uppá-
haldssmáköku?
Ég var nú ekkert mikið í því í ár en
ég hef samt rosalega gaman að því
að baka og ég hef alltaf haldið mikið
upp á Daim-kökurnar.
Eru fastar jólahefðir hjá þér?
Þegar ég bjó á Íslandi var yfirleitt
svipaður undirbúningur og ákveðnar
hefðir en eftir að ég flutti út þá er
erfitt að halda í hefðirnar þar sem ég
er í minna fríi en áður og fer ekkert
heim til Íslands.
Hvernig er aðventan – hefðir þar?
Nei, ég get ekki sagt það.
Áttu skemmtilega jólaminningu?
Mér dettur fátt í hug. Ég á enga eina
skemmtilega jólaminningu sem
stendur upp úr. Eina er kannski
það að þar sem ég kem minna heim
núna og er ekkert yfir jólin þá saknar
maður smá gömlu jóladaganna
heima með fjölskyldunni.
Hefurðu sótt messu um
jólahátíðirnar í gegnum
tíðina?
Nei, það hef ég ekki gert.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Ég veit það eiginlega ekki, hef
fengið flottar gjafir í gegnum árin en
engin sem virkilega stendur upp úr
svo ég muni í augnablikinu.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að fá í jólagjöf?
Nei, það finnst öllum voða erfitt að
gefa mér gjafir þar sem ég eigin-
lega á allt sem mig langar í. Ég er
bara ánægður með allt og ekkert, er
spenntari fyrir því að sjá strákana
mína tvo opna sínar gjafir.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér á
aðfangadagskvöld?
Það er yfirleitt hamborgarhryggur
og allskonar meðlæti með því.
Hvernig var árið 2021 hjá þér og
þinni fjölskyldu? Hvert var farið í
sumarleyfi?
Það var bara rosa fínt. Við fórum
ekkert í frí en fluttum frá Hollandi
til Frakklands í sumar og höfum
bara verið að koma okkur fyrir. Við
eyddum sumrinu mikið úti þar sem
veðrið var gott og vorum mikið að
fara í leikgarða og þess háttar fyrir
strákana svo þeir fengju útrás yfir
daginn.
Hvernig var árið í fótboltanum?
Það var þokkalegt, ég spilaði vel
og skoraði mikið – en ég er bara
ánægður að vera loksins komin burt
frá Hollandi. Ég var ekki að fíla mig
í liðinu og gæðin þar voru hræðileg.
Eftir að ég kom til Frakklands hef
ég verið að koma mér meira og meira
inn í hlutina hérna. Það talar náttúr-
lega nánast engin ensku þannig ég
þarf bara að fara í frönskukennslu
svo ég skilji þetta fólk. Ég
lenti í smá meiðslum,
meiddist smá í læri, og
missti af einhverjum
fjórum leikjum þannig
það hefur tekið mig
aðeins lengri tíma
en ég vonaðist til að
aðlagast fótboltanum
hérna – en það fer að koma
að því að ég aðlagist 100%.
Gleðileg jól, farsælt
komandi ár. Þökkum
viðskiptin á árinu sem
er að líða.
68 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár