Víkurfréttir - 16.12.2021, Page 81
„Elsku Jón Björn sér um matargerðina á aðfangadag, hann er bestur í sparimat,“ segir Hilma Hólm-
fríður Sigurðardóttir verkefnastjóri fjölmenningarmála hjá Reykjanesbæ. Hilma segist mjög þakklát
þeim sem fundu upp á því að selja tilbúið deig í verslunum. „Það er stórkostlegt að geta leyft krökk-
unum að raða kökum á ofnplötu og þær eru tilbúnar örfáum mínútum síðar. Það er algjört uppáhald.“
Hvernig hagar þú jólagjafainn-
kaupum?
Ég reyni að byrja snemma á jólainn-
kaupum, ég reyni líka að versla hér
á Suðurnesjum og reyni að nýta af-
slætti og tilboð.
Það er samt ekki þar með sagt að
ég geri þetta allt. En stundum.
Ég verð mjög óreiðukennd í
þessum málum, er stundum búin
að kaupa þrjár gjafir handa einum
og ekkert handa öðrum og þarf svo
að stilla þetta af þegar jólin nálgast.
Hvað með jólaskreytingar, eru þær
fyrr í ár?
Já, ég er ekki frá því. Við settum úti-
ljósin upp frekar snemma upp í ár.
Það er gott að fá jólaljósin upp þegar
það fer að dimma.
Skreytir þú heimilið mikið?
Fyrir mér á jólaskraut að vera ófull-
komið og helst svolítið gamalt.
Heimilið mitt verður eiginlega
eins og jólaskreytt bekkjarstofa hjá
6. bekk í grunnskóla. Sem mér finnst
bæði rómantískt og kósý.
Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá
helst? Áttu þér uppáhaldssmá-
köku?
Ég er mjög þakklát þeim sem fundu
upp á því að selja tilbúið deig í
verslunum. Það er stórkostlegt að
geta leyft krökkunum að raða deigi
á ofnplötu og fá tilbúnar kökur ör-
fáum mínútum síðar. Það er algjört
uppáhald. Mitt stærsta jólaundir-
búningsverk snýr samt að bakstri.
Ég reyni alltaf að baka brúntertuna
frá ömmu Fríðu, sem er hin hefð-
bundna lagterta með hvítu kremi og
rabarbarasultu á milli. Þegar sú bök-
unarlykt kemur í húsið mitt þá er að-
ventan í hámarki Þetta hnoðtertan
og þetta tekur mig heillangan tíma
að gera þetta – ég þarf alltaf heilan
dag til verksins. Það þótti ömmu
minni og nöfnu alltaf fyndið. Enda
gat hún hent hún í margar lagtertur
fyrir hver jól og bjó til nokkrar smá-
kökusortir á meðan.
Eru fastar jólahefðir hjá þér?
Mér finnst gaman að hefðum og
á þær nokkrar en þær eru ekki
heilagar. Mér finnst í góðu lagi þó
brugðið sé út af vananum og vil allra
síst að hefðir séu kreistar fram þegar
það er ekki tími eða rými fyrir þær.
Samverustundir með fjölskyld-
unni er sú hefð sem aldrei bregst,
hvernig sem þeim stundum er háttað
eða hvað er á boðstólnum.
Hvernig er aðventan – eru hefðir
þar?
Mér finnst gaman að sjá börnin
mín spila og dansa fyrir jólin. Jóla-
tónfundir tónlistarskólans og dans-
sýningar Danskompanís veita mér
ánægju og gleði. Tengdafjölskyldan
mín hittist yfirleitt í laufabrauðsút-
skurði þar sem Kristjánslaufabrauð
hefur alltaf vinninginn þegar kemur
að bragðinu en svili minn þykir skera
út fallegustu kökurnar. Ég er búin
að undirbúa mig vel fyrir árið í ár og
ætti að ná að toppa hann. Svo er ég
svo lánsöm að tilheyra nokkrum dá-
samlegum vinahópum sem hafa haft
þá hefð að hittast á aðventunni. Það
er þó þannig með okkur fjölskyldu-
fólkið, sem erum með börn á til-
teknum aldri, að við eigum oft erfitt
með að finna tíma. Einn hópurinn
minn hefur fært jólahefðina sína yfir
í nýárshefð í janúar, sem mér finnst
bara algjörlega yndislegt að eiga
inni eftir jólahátíðina. Annars segi
ég stundum að það sé tvennt sem ég
sé ekki sterk í, það er alltaf og aldrei.
Mér finnst betra og skemmtilegra að
leyfa hlutunum svolítið að koma til
mín. Ég lifi út frá því að hvert tímabil
í lífinu hafi sinn sjarma. Nú er ég á
barnauppeldistímabilinu og þá er
aðventan undirlögð ævintýrum sem
tengjast þeim og þeirra lífi.
Hver eru fyrstu jólin sem þú manst
eftir? Áttu skemmtilega jólaminn-
ingu?
Ég er alin upp í Sandgerði og man
eftir rólegum jólum með foreldrum
mínum og bróður. Við vorum oft
fjögur saman á aðfangadagskvöld
og ég á notalegar minningar frá þeim
stundum. Þegar ég var 12 ára fluttist
skiptinemi inn á heimilið okkar. Það
var 18 ára stúlka frá Ástralíu sem ég
leit mikið upp til og geri enn. Ég man
eftir því hvað okkur fjölskyldunni
fannst skemmtilegt að upplifa jólin
með henni og kynna hana fyrir ís-
lenskum jólahefðum. Svo þegar ég
var 15 ára fór ég ein til Ástralíu og
upplifði jólin með henni og hennar
fjölskyldu. Það er mjög eftirminni-
legt að hafa verið í sólinni á jólunum
og fengið að kynnast hefðum ann-
arrar fjölskyldu.
Hefur þú sótt messu um jólahátíð-
irnar í gegnum tíðina?
Ég tók þátt í kirkjustarfi sem barn,
enda held ég að ég hafi bara almennt
tekið þátt í öllu því barnastarfi sem
boðið var uppá í Sandgerði. Ég var
bæði í KFUK og sótti sunnudaga-
skólann. Ég hef samt örsjaldan farið
í messu á aðfangadag.
Eftirminnilegasta jólagjöfin?
Við systkinin fengum eitt sinn skíði
með öllu tilheyrandi í jólagjöf. Það
gladdi okkur mjög enda fannst
okkur gaman að skíða. Ég á bæði
skemmtilegar minningar úr skíða-
ferðalögunum með skólanum og
frá heimsóknum til ömmu Fríðu á
Húsavík. Að ólgeymdri stórbrekk-
unni við Bjarmaland í Sandgerði hjá
Rúnu frænku og Gæja frænda.
Er eitthvað sérstakt sem þig langar
að fá í jólagjöf?
Mér þykja fallegar heimatilbúnar
jólagjafir frá börnunum mínum alltaf
bestar. Annars finnst mér upplifun-
arjólagjafir snilld. Nú eru skemmti-
legar sýningar í gangi hjá leikhús-
unum og margt sem mig langar að sjá
þar. Samverustundir eru eðalgjafir.
Svo segi ég bara eins og Laddi: Ég
óska mér helst að það verði friður á
jörð milli manna og meyja.
Að öllu gamni slepptu þá óska ég
mér þess helst að við látum okkur
aðra verða, verðum vinaleg og
hugsum fallega og hlýlega til þeirra
sem í kringum okkur eru og þá helst
þeirra sem hafa fáa í kringum sig.
Það á enginn að vera einmana um
jólin.
Hvað verður í jólamatinn hjá þér
á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í
mat?
Frá því að krakkarnir fæddust og
við höfum haldið okkar eigin jól.
Þá höfum við verið með gamaldags
hefðbundinn lambahrygg með öllu
tilheyrandi. Elsku Jón Björn sér um
matargerðina á aðfangadag, hann er
bestur í sparimat. Ég sé um stöku
meðlæti en aðallega er það mitt hlut-
verk að dreifa hátíðarstemningunni
yfir heimilið á aðfangadag og gera
huggó. Við höfum náð góðu sam-
starfi með skýrri verkaskiptingu
þann daginn.
Stundum búin að kaupa
þrjár gjafir handa einum
og ekkert handa öðrum
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum Í 40 ár // 81
Sendum viðskiptavinum okkar og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð
og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin
á árinu sem er að líða!
AÐALSKOÐUN
Hótel
Grásteinn ehf
81