Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2021, Page 50
Nú skal gerð grein fyrir hverjum tölfræðilega marktæku þáttanna eins og
þeir birtast í töflu 1 en þar hefur þeim verið raðað í lækkandi röð, frá hæstu
til lægstu hlutfallslíkinda. Þær breytur sem hafa mest áhrif, mælt í hlutfalls-
líkindum á umröðun, og eru jafnframt sterkt tölfræðilega marktækar (þ.e.
marktækni við p-gildi=0,01 eða minna) eru setningarformgerð, texta-
tegund og orðafjöldi óbeins andlags. Ekki þarf að undra miðað við
fyrri umræðu um umröðun í forníslensku að formgerðarleg atriði í tengslum
við afstöðu liðanna við sagnhaus hafi sterk áhrif (p=0,001) og í líkaninu eru
tæplega tólffaldar líkur á umröðun ef orðaröð í sagnlið er blönduð (=t3). Þetta
er með öðrum orðum staðfesting á því að með t3-orðaröð sé fyrra andlagið
yfirleitt alltaf beint andlag og seinna andlagið óbeint andlag. Til samanburðar
eru tvöfaldar líkur á að finna umröðun með as-orðaröð í gögnunum en þau
áhrif eru aftur á móti fjarri því að vera tölfræðilega marktæk (p=0,306).
Textategund hefur marktæk áhrif (p=0,001) og líkur á umröðun í
trúarlegum textum eru tæplega þrefaldar á við aðrar textategundir. Þessi
breyta er varhugaverð að því leyti að ólíkar textategundir dreifast ekki
jafnt yfir allt tímabilið en í ljósi marktækra áhrifa mætti vísa hér til trúar-
legra texta á 16. öld til þess að skýra þá uppsveiflu sem birtist á því tíma-
bili í gögnunum. Eðlilegt er að ímynda sér að textar af þessu tagi séu í
nánari tengslum við frásagnarhefðina og sömuleiðis við eldri þýðingar
trúar rita en flestar aðrar textategundir og þar geti því eimt eftir af hærri
tíðni umröðunar frá fyrri tíð.
Eins og bent hefur verið á hefur þyngd liðanna veruleg áhrif á mögu-
leika á umröðun. Fyrir fram var því við því að búast að tengsl væru milli
umröðunar og þess að beint andlag væri létt en óbeint andlag væri þungt.
Ein leið til þess að kanna slíkt samspil er að tengja forsagnarbreytur saman
og kanna í hvaða átt áhrifin verka (táknað í líkaninu með stjörnu (*) milli
tveggja breytna). Samspil orðafjölda beina og óbeina andlagsins var þó
ekki marktækt. Það kemur líklega til af því hve margar forsagnarbreytur
eru í líkaninu og hve lítið gagnasafnið er á móti. Að minnsta kosti eru
áhrif orðafjölda marktæk ef breyturnar eru skoðaðar hvor í sínu lagi, þ.e.
fyrir beint andlag annars vegar og óbeint andlag hins vegar.
Umröðun m.t.t. þyngdar óbeina andlagsins er sýnd á mynd 2 og þyngdar
beina andlagsins á mynd 3. Myndirnar eru teiknaðar beint eftir tölfræði -
líkaninu hér að ofan með sjPlot-pakkanum (Lüdecke 2018). Athygli vekur
að jafnvel á forníslensku skeiði er tíðni umröðunar lág (innan við 15%) ef
óbeina andlagið er aðeins eitt orð. Sé óbeina andlagið tvö til þrjú orð eykst
hlutfallið (í u.þ.b. 25–35%) og þrátt fyrir að hlutfall umröðunar sé hærra
að fornu en að nýju skiptir þyngd liðarins engu að síður máli.
Heimir F. Viðarsson50