Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2021, Page 58

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.2021, Page 58
Longobardi 2001 sérstaklega um þetta lögmál í tengslum við setninga - fræð ina). Hugmyndum af þessu tagi hefur nokkuð verið beitt í málfræði - legri umræðu um málbreytingar en hafa þó verið gagnrýndar fyrir að í raun sé gefið í skyn að mál lærist óbreytt frá einni kynslóð til annarrar í setningafræðilegu tilliti og setningafræðin sé því að vissu leyti einhvern veginn fyrir fram gefin (sjá Walkden 2012). Það geti hins vegar ekki verið í ljósi þess að börn læra tungumál byggt á tilgátum sem þau mynda út frá málgögnum sem þau komast í tæri við í ílagi sínu og það eitt og sér geti augljóslega verið uppspretta málbreytinga. Tregðulögmálið, eigi það sér einhvern tilverurétt, hljóti því að vera hamla sem sé hluti af máltökuferl- inu sjálfu eða þá að lögmálið tengist meira félagslegum þáttum á borð við útbreiðslu málbreytinga innan málsamfélagsins (sbr. Walkden 2012:893– 894, 897–898). Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að innan félagsmálvísinda er löng hefð fyrir því að líta svo á að félagsmálfræðileg tilbrigði séu fyrst og fremst „á yfirborðinu“, þ.e. að þau tengist einna helst hljóðum og orðum en miklu síður óhlutbundnum málfræðilegum atriðum eins og setninga- gerð (sjá t.d. Labov og Harris 1986, Labov o.fl. 2011). Þessi kenning er gjarnan nefnd snertiflatarlögmálið (e. Interface Principle) og hefur verið talin setja innri félagsmálfræðilegri vöktun (e. Sociolinguistic Monitor) mál - hafa ákveðnar skorður (sjá t.d. Heimi F. Viðarsson 2019:21–24 og tilv. þar). Þau atriði í setningafræði sem tengjast ekki skýrt tilteknum orðum (eða rótum) kunna því að vera síður „aðgengileg“ svið málfræðinnar. Fyrir fram hefði mátt ætla að tilbrigði eins og þau sem voru til umfjöll- unar í 4. kafla væru háð as-orðaröð í sagnlið, jafnvel að þau væru hluti af þeirri breytingu. Meint tengsl as-orðaraðar og stokkunar eru til dæmis mjög þekkt í málfræðilegri umræðu um mál eins og þýsku, líkt og þegar hefur komið fram (sbr. t.d. Hawkins 1994, 2004, Haider 2005, 2012). Það sem þó mælir beint gegn þessu, ef gögnin í kaflanum hér á undan gefa nægilega trausta mynd, er að jafnt og þétt dregur úr umröðun, löngu áður en halla fer undan fæti hjá as í íslensku (sjá t.d. Þorbjörgu Hróarsdóttur 2000 og síðari skrif). Það væri því nær að segja að orðaröð að fornu hafi verið miklum mun frjálsari en í nútímamáli og að þeirrar breytingar að orðaröð verði fastari sjái fyrr stað í innbyrðis röð andlaga en í röð andlaga gagnvart fallháttum. Vænlegra er að tengja breytinguna við náið samspil upplýsingaflæðis og orðaraðar á eldra skeiði sem hafi tekið breytingum í tímans rás. Að upplýsingaflæði hafi mikil áhrif á stöðu andlaga kom t.a.m. skýrt fram hjá Þorbjörgu Hróarsdóttur (2008) sem sýnir að tengsl liða við fyrri orðræðu Heimir F. Viðarsson58
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.