Víkurfréttir - 15.12.2022, Qupperneq 40
Gunnhildur Gunnarsdóttir átti heldur
óvenjulega fæðingu en hún eignaðist dóttur
sína á forstofugólfinu á æskuheimilinu sínu.
Gunnhildur og Gylfi Freyr, faðir barnsins,
sýndu mikla hetjudáð þegar barnið kom í
heiminn með flýti þann 11. júlí 2021 áður en
viðbragðsaðilar mættu á staðinn. Stúlkan
fékk síðar nafnið Freyja Mist en Gunn-
hildur segir það hafa verið „skrifað í skýin
því hún hafi eiginlega valið sér þetta nafn.“
Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með
Gunnhildi sem rifjaði upp þennan örlaga-
ríka dag í lífi fjölskyldunnar.
Laugardaginn 10. júlí 2021 fóru þau
Gunnhildur og Gylfi í brúðkaup
hjá bróður hans en þá voru tveir
dagar í settan dag hjá Gunnhildi.
„Ég var þarna í hælaskóm og kjól
og var nær allan tímann að hlaupa
á eftir Gunnari Elís, eldra barninu
okkar. Þegar klukkan var orðin átta
að kvöldi til var ég orðin virkilega
þreytt en reyndi að draga það að fara
heim því þetta var stór dagur í lífi
bróður Gylfa,“ segir Gunnhildur en
hún átti bókaðan tíma í nálastungur
á HSS klukkan níu sama kvöld til
að ná að slaka á og sofa betur um
nóttina. „Þarna klukkan átta fór ég
að verða virkilega þreytt og pikkaði
í Gylfa og spurði hvort við gætum
farið heim, sem við gerðum.“
Gunnhildur fór í nálastungur
klukkutíma seinna og byrjaði þá
að fá verki, hún vissi að það þýddi
að barnið kæmi í heiminn á næstu
klukkutímum eða í það minnsta
á næsta sólarhringnum. Það sem
hún vissi hins vegar ekki var að
ótrúleg atburðarás átti eftir að
eiga sér stað. „Ég svaf ekkert alla
nóttina fyrir verkjum. Þrátt fyrir
það vakti ég ekki Gylfa því ég vildi
að hann myndi ná að hvíla sig vel.
Það gerði ég af fenginni reynslu
en þegar strákurinn okkar kom í
heiminn tók það svo langan tíma
svo ég vildi að hann myndi vera út-
hvíldur til að tækla þessa fæðingu
vel,“ segir Gunnhildur og bætir við:
„Það er ótrúlegt hvernig lífið er, sem
betur fer leyfði ég honum að sofa
svo hann var vel í stakk búinn að
takast á við það sem átti eftir að
gerast. Ég var alla nóttina að berjast
við þessa verki og reyna að liggja í
rúminu. Ég var á þessum tíma búin
að vera í meðgöngujóga hjá Möggu
Knúts og þar lærði ég að anda mig
í gegnum verkina – eitthvað sem ég
kunni ekki þegar ég fæddi strákinn
okkar. Kemur í ljós að þegar maður
andar sig í gegnum verkina leyfir
maður öllu að opnast og líkamanum
að gera það sem hann þarf að gera.
Ég var staðráðin í að ná að anda
mig í gegnum þetta. Ég var uppi í
rúmi með jógatónlist í eyrunum og
andaði dúpt þar til klukkan var orðin
sjö um morguninn. Þá var ég alveg
að drepast úr verkjum og hringdi í
tengdamömmu og bað hana um að
sækja Gunnar Elís, sem hún gerði.
Við vorum svo komin upp á HSS um
níuleytið á sunnudagsmorgninum.“
Pabbinn tók á móti barninu í forstofunni
með neyðarlínuna á öxlinni
Lítil Freyja
fæddist á Freyjuvöllum
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Nýfædd Freyja ásamt foreldrum
sínum á forstofugólfinu.
40 // VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum