Víkurfréttir - 15.12.2022, Page 57
GLEÐILEGA HÁTIÐ
og farsælt komandi ár
Fyrsta áfanga Hlíðahverfis í
Reykjanesbæ lýkur í júlí 2020
ÍBÚÐIR Á SÖLU HJÁ FASTEIGNASÖLUM
grófu gríni. Okkur finnst gaman að
vera með létt grín og vera skemmti-
lega óviðeigandi. Það er kannski rétt
að taka það fram að við erum að taka
fullt af lögum þar sem grínið er ekki
klúrt á nokkurn hátt.“
Hópurinn syngur þó ekki aðeins
jólalög í dónalegum búningi heldur
líka þessi hefðbundnu sem við
könnumst flest við. En eiga þær
það aldrei til að syngja gríntextana
þegar þær koma fram sem Jólabjöll-
urnar en ekki Drjólapjöllurnar?
„Mörg af lögunum sem eru með
dónatexta eru upprunalega ein-
hver lög sem við syngjum líka. Við
eigum þá alveg ótrúlega erfitt með
að ruglast ekki, sérstaklega í lagi sem
heitir Hátíðarsköp, sem er í raun
lagið Hátíðarskap í nýjum búningi.
„Ég kemst í hátíðarskap“ verður
þá að „ég er með hátíðarsköp“. Við
eigum alveg á hættunni að ruglast
og það hefur alveg gerst en það er þá
yfirleitt bara ein okkar sem ruglast
en það heyrist oftast ekki þar sem
hinar syngja réttan texta.“
Hvert er uppáhaldsjólalagið þitt og
hvert er uppáhaldsgrínlagið þitt af
þeim sem þið syngið?
„Uppáhalds fallega jólalagið sem
við syngjum er I’ll be home for
Christmas, það er mjög erfitt að
velja uppáhaldsdónalagið því það
eru svo mikið af nýjum lögum sem
við erum að taka í ár og þau eru
svo ótrúlega skemmtileg. Ég hugsa
að það sé lag sem við erum ósam-
mála um hvað heitir en við köllum
það yfirleitt Guttorm. Mér finnst það
mjög skemmtilegt lag en það fjallar
um að árið 2013 var umfjöllun í fjöl-
miðlum um að starfsfólkið í Hús-
dýragarðinum borðaði dýrin sem var
slátrað á jólahlaðborði eða eitthvað
svoleiðis og það er í raun megin inn-
takið í þessu lagi. Ég held að það lag
sé í uppáhaldi eins og er, en það er
fljótt að breytast.“
Hvernig verða jólin í ár hjá þér per-
sónulega?
Ég er rosalega mikið fyrir hefðir
svona í kringum hátíðir, þá sér-
staklega jólahefðir. Ég vil bara hafa
hlutina eins og þeir eru og hafa
alltaf verið. Jólin fyrir mér snúast
fyrst og fremst um að vera með
fjölskyldunni minni. Á Aðfangadag
er alltaf möndlugrautur í hádeginu
og svo förum við í messu klukkan
sex og komum svo heim, pabbi sér
yfirleitt um matinn þar sem hann
er lærður kokkur - sem er algjör
lúxus. Það er aldrei neitt sparað í
þessa máltíð en undanfarin ár hefur
alltaf verið humar í forrétt, anda-
bringur í aðalrétt og Toblerone ís í
eftirrétt. Mamma og pabbi eru búin
að vera að berjast núna í þónokkur
ár að breyta því en okkur, mér og
litlu frænku minni, þykir það mjög
erfitt. Við erum svolítið vanafastar
og viljum hafa hlutina eins og þeir
hafa alltaf verið. Í ár fengu þau leyfi
til að breyta þessu en við þurftum
að funda um þetta og það var sam-
þykkt að aðalrétturinn yrði lamba-
hryggur, gegn því að við myndum
fá andabringur við eitthvað annað
tilefni. Við þurfum ennþá að fá anda-
bringurnar okkar en þær þurfa ekki
að vera þarna akkúrat á aðfangadag,
það var niðurstaðan eftir stífar
samningaviðræður. Annars ætla
ég að syngja með Jólabjöllunum og
reyna að vera sem mest með fjöl-
skyldunni og hafa það kósý.“
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
„Í dag er vinsælast
að fá okkur í svona
„dónaprógram“,
við erum aðallega í
því en tökum hitt að
sjálfsögðu líka að
okkur með glöðu geði“
VÍKurFrÉttir á suÐurNesJum // 57