Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 14
Ef það yrði gerð bíó-
mynd um líf mitt held
ég að George Clooney
ætti að leika mig. Hann
er frábær leikari og
eiginkona mín telur að
hann væri tilvalinn í
hlutverkið.
Það skiptir ekki máli
hvernig við spilum. Ef
þú ert á Ferrari og ég á
litlum bíl þarf ég að
brjóta stýrið þitt eða
setja sykur í bensín-
tankinn þinn til að
sigra.
Ef félagið ákveður að
reka mig vegna slæmra
úrslita er það bara hluti
af leiknum. Ef það
gerist verð ég milljóna-
mæringur og fæ annað
starf nokkrum mán-
uðum síðar.
4
Mourinho hefur
fjórum sinnum verið
valinn besti þjálfari
heims og það fyrir störf
sín hjá fjórum mis-
munandi félagsliðum.
6
Mourinho er altalandi
á sex mismunandi
tungumálum. Portú-
gölsku, ensku, kata-
lónsku, ítölsku og
frönsku.
60%
Portúgalinn státar
af 60% sigurhlutfalli
í ensku úrvalsdeild-
inni en af þeim 363
leikjum sem hann
hefur stýrt í deildinni
vann hann 217.
100%
Knattspyrnustjórinn
knái er sannkallaður
Evrópumeistari enda
aldrei tapað úrslita-
leik í Evrópukeppnum
félagsliða, 100% sigur-
hlutfall.
Sá einstaki sextugur
Portúgalski knattspyrnu-
stjórinn José Mourinho er 60
ára í dag. Fáir knattspyrnu-
stjórar hafa komið inn af jafn
miklum krafti og Mourinho
gerði í knattspyrnuheiminn á
sínum tíma.
sport@frettabladid.is
Fótbolti Temmilegur skammtur
af hroka og húmor varð til þess
að ferskir vindar blésu um helstu
deildir heims með tilkomu Mour-
inho, hann setti markið hátt og
náði árangri. Titlaði sjálfan sig
„Hinn einstaka“, gælunafn sem fór
honum vel. Sparkspekingurinn
Jóhann Már Helgason er stuðn-
ingsmaður Chelsea. Hann segir
Mourinho hafa breytt miklu með
komu sinni til félagsins 2004.
„Móri, eins og ég vandi mig strax
á að kalla hann, kom með ákveð-
inn metnað og hroka sem Chelsea
hafði vantað. Hann sparkaði upp
hurðinni á Brúnni og sagði á fyrsta
blaðamannafundinum að nú hefði
Chelsea einstakan stjóra. Hann
þorði að gera kröfur og þorði að
segja það upphátt að Chelsea ætti
að vinna deildina. Hann kom með
sigur hugarfar í félag sem hafði ekki
unnið deildina í 50 ár.“
Chelsea vann ensku úrvalsdeild-
ina á fyrstu leiktíð Mourinho.
„Maður áttaði sig mjög f ljót-
lega á því að það væri
eitthvað sérstakt að fara að gerast.
Liðið byrjaði frábærlega, hann fann
strax mjög sterkan kjarna af leik-
mönnum sem voru bókstaklega til
í að henda sér fyrir liðsrútuna fyrir
liðið og Móra. Þetta voru John Terry,
Frank Lampard, Petr Cech, Didier
Drogba og auðvitað Eiður Smári
Guðjohnsen. Mourinho breytti
leikmönnum eins og Lampard og
Terry úr því að vera góðir úrvals-
deildarleikmenn yfir í heimsklassa
fótboltamenn. Árangurinn á fyrsta
tímabilinu var auðvitað lygilegur,
segir Jóhann, en þá vann Chelsea
deildina örugglega, setti stigamet
og fékk aðeins á sig fimmtán mörk.“
Þegar Jóhann var beðinn um að
nefna sína uppáhaldssögu af hinum
skrautlega Mourinho kom margt
upp í hugann.
„Fyndnasta sagan er auðvitað
þegar hann faldi sig í þvottagrind-
inni til að geta hitt liðið í hálf leik
þegar hann var í banni gegn FC
Bayern í 8- liða úrslitum Meistara-
deildarinnar,“ segir hann. „Af því
sem maður sá beint var þegar hann
og hans erkióvinur, Arsene Wenger,
lentu hreinlega í áflogum á hliðar-
línunni í leik Chelsea og Arsenal
árið 2014. Móri er miklu minni en
Wenger en lét það ekki stoppa sig
og ýtti honum úr boðvanginum.“ n
Tuttugu og sex titlar til þessa:
Porto 2002–2004:
1x Meistaradeild Evrópu
2x Portúgalska úrvalsdeildin
1x Evrópubikarinn
1x Portúgalski bikarinn
1x Portúgalski ofurbikarinn
Chelsea 2004–2007,
2013–2015:
3x Enska úrvalsdeildin
1x Enski bikarinn
3x Enski deildarbikarinn
1x Samfélagsskjöldurinn
Inter Milan 2008–2010:
1x Meistaradeild Evrópu
2x Serie A
1x Ítalski bikarinn
1x Ítalski ofurbikarinn
Real Madrid 2010–2013:
1x La liga
1x Spænski bikarinn
1x Spænski ofurbikarinn
Manchester United
2016–2018:
1x Evrópudeildin
1x Enski deildarbikarinn
1x Samfélagsskjöldurinn
14 íþróttir FRÉTTABLAÐIÐ 26. jAnúAR 2023
FiMMtUDAGUr