Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 20
Dómnefnd FKA 2023 Fimm efstu í flokki FKA
Hvatningarviðurkenningar 2023Það er dómnefnd sem velur
konur úr hópi tilnefndra sem
hljóta FKA þakkarviður-
kenningu, FKA viðurkenn-
ingu og FKA hvatningar-
viðurkenningu. Við skipan
dómnefndar er leitast við
að einstaklingar hafi sem
breiðastan bakgrunn. FKA
þakkar dómnefnd fyrir sinn
dýrmæta tíma og þátttöku í
ferlinu, sem var afar ánægju-
legt.
Árni Sigfússon
Árni Sigfússon, fyrrverandi
borgarstjóri Reykjavíkur og fyrr-
verandi bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar. Fæddur í Vestmannaeyjum,
kennaramenntaður í grunninn og
telur málefni barna vera stærsta
málaflokkinn í sveitarstjórnar-
málum. Hann vakti máls á ólíkri
forgjöf er kemur að uppsöfnuðum
lífeyrisréttindum hjóna nýverið,
sem vakti athygli.
Chanel Björk Sturludóttir
Chanel Björk Sturludóttir, fjöl-
miðlakona í dagskrárgerð í Kast-
ljósi á RÚV, var á topplista yfir
„Framúrskarandi unga Íslendinga“
fyrir framlag til barna, heimsfriðar
og/eða mannréttinda. Mannflóran,
fræðsluvettvangur um fjölmenn-
inguna á Íslandi, er í hennar umsjá
og er hún meðstofnandi „Hennar
rödd“ sem eru félagasamtök sem
starfa með það að markmiði að
auka vitund meðal almennings á
stöðu kvenna af erlendum upp-
runa í íslensku samfélagi.
Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir, formaður
dómnefndar, stjórnarkona FKA og
deildarstjóri Fastus, hefur komið
að stofnun fjölmargra fyrirtækja,
bæði hér á landi og í Bandaríkj-
unum. Guðrún hóf innflutning
á heilbrigðisvörum árið 1992,
stofnaði Fastus ásamt félögum
sínum en starfar nú sem deildar-
stjóri heilbrigðisdeildar Fastus eftir
að hún seldi fyrirtækið.
Kathryn Gunnarsson
Kathryn Gunnarsson, stofnandi
og framkvæmdastjóri Geko Con-
sulting, ráðgjafar- og ráðningar-
fyrirtækis sem sérhæfir sig í að
vinna innan tækni- og nýsköp-
unargeirans á Íslandi.
Logi Pedro Stefánsson
Logi Pedro Stefánsson, lista-
maður og fyrrum liðsmaður
hljómsveitarinnar Retro Stefson.
Logi hefur unnið að tónlist fyrir
fjölmargt fremsta tónlistarfólk
landsins og hlotið 17 tilnefningar
til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Logi er stjórnarmaður og með-
eigandi framleiðslufyrirtækisins
101 Productions, sem framleitt
hefur seríur eins og Æði, Áttavillt
og Hugarró með GDRN.
Magnús Harðarson
Magnús Harðarson, forstjóri
Nasdaq Iceland, Kauphallarinnar.
Magnús hefur starfað hjá Nasdaq
síðan 2002 en áður var hann hag-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun
og efnahagslegur ráðgjafi. Hann
hefur Ph.D. gráðu í hagfræði frá
Yale University.
Margrét Guðmundsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir,
stjórnarmaður og fyrrverandi
forstjóri Icepharma. Margrét hefur
setið í stjórn ýmissa félaga innan-
lands sem erlendis og situr í dag í
stjórn Eimskip, Festi og Heklu.
Það eru í stafrófsröð þær Edda Konráðs-
dóttir, ein af stofnendum Nýsköpunarvik-
unnar, Grace Achieng, stofnandi og eigandi
Grace landic, Inga Tinna Sigurðardóttir,
hugmyndasmiður Dineout, Laufey Lín Jóns-
dóttir tónlistarkona og Þórey Vilhjálms-
dóttir Proppé, eigandi og stofnandi Empo-
wer, sem skipa fimm efstu sætin í flokki
FKA Hvatningarviðurkenningar 2023.
Hvatningarviðurkenning FKA er veitt konu í
atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða
nýjungar. Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, þakkar
almenningi og atvinnulífinu fyrir tilnefningarnar
sem bárust í ár í öllum flokkum og dómnefnd hefur
metið.
Þær konur sem hafa verið heiðraðar í gegnum árin á
hátíðinni hafa fundið á eigin skinni hvernig Viður-
kenning FKA verður hreyfiafl í lífi þeirra í stóru og
smáu.
Aðgengi að fjármagni má nefna í þessu sambandi
sem og sýnileika fyrir hlutaðeigandi sem skiptir máli
í f lugtaki nýrra hugmynda.
Það er kjarkur, þor, kraftur og úthald sem einkennir
konurnar sem hér eru nefndar þegar við birtum
annað árið í röð lista yfir fimm efstu, að mati dóm-
nefndar, í f lokki Hvatningarviðurkenningar FKA.
Takk fyrir að ryðja brautir, vera góðar fyrirmyndir
og gangi ykkur öllum sem best! n
Edda Konráðsdóttir
sérfræðingur nýsköpunarsamfélagsins og stofn-
andi Iceland Innovation Week
Edda hefur starfað innan íslenska nýsköpunarsam-
félagsins í nokkur ár, hefur stýrt frumkvöðlakeppn-
inni Gullegginu, skipuleggur ferðir fyrir íslensk
startup-fyrirtæki til dæmis í Kísildalinn, hefur
verið að kenna nýsköpunarnám við Listaháskóla
Íslands, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Hún starfar í dag hjá Foobar, fjárfestingasjóði með
fókus á loftslagsmál. Edda hefur stýrt mörgum
alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum, hún er einnig
meðstofnandi Iceland Innovation Week, rekur eigið
ráðgjafarfyrirtæki með áherslu á viðskiptaþróun
fyrir frumkvöðla og listamenn og var hjá Icelandic
Startups um tíma þar sem hún vann náið með frum-
kvöðlum og fjárfestum.
Grace Achieng
stofnandi og eigandi Gracelandic
Grace Achieng er fædd og uppalin í Kenía og þegar
hún flutti til Íslands vildi hún starfa við tískugeirann
en fékk hvergi slíka vinnu. Hún gerði sér þá lítið fyrir
og keypti sér saumavél, efni, lærði að sníða og byrjaði
að sauma og hanna og rekur nú tískumerkið Grace-
landic sem hefur ratað í breska Vogue. Grace hefur
orðið mikil fyrirmynd fyrir konur af erlendum upp-
runa, fyrir allar konur á Íslandi og vakið athygli fyrir
hönnun sína, meðal annars þegar Eliza Reid forseta-
frú klæddist fatnaði úr hennar smiðju þegar Friðrik,
krónprins Danmerkur, mætti á Bessastaði og þannig
mætti lengi telja.
Inga Tinna Sigurðardóttir
hugmyndasmiður Dineout
Inga Tinna er meðal annars hugmyndasmiðurinn að
Dineout sem ruddi gormabókum, Excel og tölvupóst-
um út úr veitingageiranum með borðabókunarkerfi
sem hefur stökkbreyst í hugbúnaðarhús sem byggðist
upp í takt við þörf á markaði og stækkar hratt. Hún
hefur heldur betur sótt í sig veðrið og er í dag með
miklu meira en hugbúnað fyrir veitingastaði, komin
í útrás og virðist njóta sín vel í umhverfi sem breytist
jafnvel á einni nóttu. Mögnuð vegferð þar sem hún
byrjar með autt blað en stýrir hugbúnaðarfyrirtæki
sem stækkar ört og tekið er eftir.
Laufey Lín Jónsdóttir
listakona og djass-söngkona
Laufey Lín hefur náð mjög langt á sínum tónlistarferli
og er hvatning fyrir aðrar ungar konur til að þróa sinn
einstaka stíl og vera samkvæmar sjálfum sér. Hún
byrjaði að spila á píanó þegar hún var fjögurra ára og á
selló einhverju síðar, fór svo að syngja mjög ung. Hún
útskrifaðist frá Berklee College of Music 2021, er með
nokkur hundruð fylgjenda á miðlum og komst á topp-
lista Spotify. Sinfóníuhljómsveit Íslands og plánetan
jörð eru hennar leikvöllur enda búið að vera magnað
að fylgjast með henni skjótast uppá stjörnuhimininn
með einlægni. Platan Everything I Know About Love
heyrist víða og hefur hún flutt tónlist sína í spjallþætti
Jimmy Kimmel og hjá okkar eina sanna Gísla Marteini.
Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé
stofnandi og framkvæmdastjóri Empower
Þórey hefur lengi verið fyrirmynd annarra kvenna og
verið með persónulegan stíl með mikinn drifkraft.
Hún stofnaði fyrirtækið EMPOWER sem selur lausnir
á sviði jafnréttis, sérhæfir sig í jafnrétti og fjölbreytni
á vinnustöðum og hefur starfað með leiðandi fyrir-
tækjum og stofnunum. Hug búnaðarlausn in Empower
NOW ger ir fyr ir tækj um og stofn un um kleift að ná
yf ir sýn yfir stöðu jafn rétt is mála, setja sér mæl an leg
mark mið og fræða starfs fólk í gegn um sta f ræn ar leiðir
sem eru góðar fréttir. Það er gríðarleg eftirspurn eftir
lausnum er varða jafnrétti og fjölbreytni og Empower
stefnir að því að verða leiðandi á þeim markaði. Fyrir-
tækið er stofnað af konum og rekið af konum.
4 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAg KvennA í AtvinnulíFinu