Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 24
Vil ég í starfi mínu
tryggja tækifæri
samfélagsins til að njóta
sérfræðiþekkingar og
reynslu kvenna.
Andrea Róbertsdóttir er
framkvæmdastjóri Félags
kvenna í atvinnulífinu.
Hún segist vera spennt fyrir
viðurkenningahátíð FKA á
Hótel Reykjavík Grand í dag.
Þrjár konur fá viðurkenn-
ingu en slíkar viðurkenn-
ingar hafa verið veittar frá
árinu 1999.
„Já, það verður spennandi fyrir
gesti að sjá hvaða þrjár konur við
klöppum upp á Viðurkenninga-
hátíð FKA sem fer fram á Hótel
Reykjavík Grand í dag,“ segir Andr-
ea, sem rifjar upp hvernig hátíðin
hefur verið haldin síðustu tvö ár.
„Frá fyrstu Viðurkenningahátíð
hafa öll kyn úr framlínu íslensks
viðskipta- og atvinnulífs mætt á
Viðurkenningahátíð FKA, enda
ríkir ávallt mikil eftirvænting fyrir
því hver fær FKA viðurkenningu,
FKA þakkarviðurkenningu og FKA
hvatningarviðurkenningu.
Svo á tímum heimsfaraldurs
kórónuveiru, síðustu tvö ár, var
Viðurkenningahátíð FKA haldin
hátíðleg í sjónvarpsþætti á Hring-
braut í geggjuðu samstarfi, en
mikið er gleðilegt að vera aftur að
koma saman á glæsilegri hátíð og
njóta stundarinnar,“ segir Andrea
um hátíðina, sem einnig verður
streymt á heimasíðu Fréttablaðs-
ins.
Einföld ,,NoTech life hack“
Andrea er í fjölbreyttu starfi hjá
FKA og segist njóta sín vel. „Það
er óhætt að segja að það sé nóg að
gera og ávallt mikið um að vera í
félagi sem telur um 1.350 konur
um landið allt. Ég hef alltaf lúmskt
gaman af því þegar hringt er og
beðið um markaðsdeildina eða
eitthvað álíka þegar það er ég sem
er eini starfsmaðurinn á plani.
Það eru félagskonur sem taka
þátt í nefndum og deildum í
sínum frítíma og saman töfrum
við ýmislegt fram,“ segir Andrea
og bætir við: „Ég hvet konur til að
láta til sín taka og koma með, enda
er þátttaka í FKA frábær leið til
að nýta styrkleika sína og stækka
sviðið. Síðan er ég sannfærð um
að félagsaðild bæti líðan og styrki
konur í leik og starfi. Einföld
,,NoTech life hack“ eins og að vera
í einhverju sæti í lífinu, leyfa sér
að eiga áhugamál, næra sig og
vera ávallt að læra nýja hluti, er
nokkuð sem er að virka,“ segir hún
og bætir við: „Það er ekki verið að
tala um að vera ávallt í fyrsta sæti,
heldur tryggja að við konur séum
með okkur í einhverju sæti og þá
er félagsaðild að FKA svo góður
kostur til að setja sig á dagskrá.
Það er svo misjafnt hvað konur
vilja gefa og fá frá FKA en mark-
miðið er að ólíkar konur finni
eitthvað við sitt hæfi og eflist við
þátttöku. Konur í félaginu eru að
taka inn þekkingu, miðla sjálfar og
svo er ýmislegt nýtt sem þær þurfa
að tileinka sér til að halda félag-
inu gangandi í takti við nýja tíma
og þá öðlast þær hæfni sem nýtist
þeim persónulega og almennt vel í
leik og starfi, sem er frábært.“
Við erum ein hrúga af fyrra lífi
„Það hefur ekki síður verið mikill
skóli fyrir mig að reka félagið á
tímum heimsfaraldurs við oft afar
krefjandi aðstæður, en þar sem ég
hef víðtæka reynslu úr atvinnulíf-
inu hefur þetta gengið afskaplega
vel enda gjarnan í góðum félags-
skap. Við erum ein hrúga af fyrra
lífi og eigum að vera óhrædd við
að skapa okkur og endurskapa,“
segir Andrea og kemur með dæmi
af herbergi þar sem eru doktor,
smiður, fyrirtækjaeigandi, rektor,
blaðakona, ritstjóri, fararstjóri,
útgefandi, fjárfestir, garðyrkju-
fræðingur, skíðakona, hóteleigandi
og kennari. „Hvað eru þetta
margar konur?“ spyr Andrea glöð
í bragði.
„Ég skal segja þér það, þetta er
sönn saga af tveimur félagskonum
í sama herbergi. Það eru magnaðar
neglur í þessu félagi, með guð má
vita hvað marga hatta og það er
sama hvaða dagur er, ég er alltaf að
heyra sögur af konum og kynnast
konum sem ég sé bara fyrirsagn-
irnar frussast af. Algjörir meistarar,
sigurvegarar með þvílíka seiglu,
kraft og hæfni. Nú, svo þegar það
er svona margt um að vera og
þriðja, fjórða og fimmta vaktin eru
þarna alltumlykjandi þegar konur
eiga í hlut, er mikilvægt að brenna
ekki upp í báða enda.
Félagsstörf eru án staðsetninga
hjá FKA og hver og ein kona
stjórnar ferðinni fyrir sig einmitt
vegna alls sem við erum með í
fanginu. Þá er eðlilegt að vera ekki
alltaf virk á öllum vígstöðvum og
konur verða að passa að hlúa vel að
sér og heilsunni.“
Besti dagurinn til að
gera eitthvað er NÚNA!
„Á sama tíma og það er mikilvægt
að skella sér af stað í eitt og annað
þá er þetta fín lína. Ég persónulega
haga mér stundum eins og ég sé að
fara að deyja á morgun og langur
kafli í þeim gír endar gjarnan með
viðvörunarljósum,“ segir Andrea
alvarleg. „Besti dagurinn til að gera
eitthvað er núna. Það væri frábært
að geta byrjað í fyrra eða í síðustu
viku að gera eitt og annað, en það
er ekki í boði og þá er það dagur-
inn í dag sem er málið og þá á ég
það til að taka að mér allt of mikið,
en er fljót að koma mér í jafnvægi
aftur sem betur fer. Það er svona
að elska mánudaga og janúar og
vera í gefandi starfi,“ segir Andrea,
sem bendir á að hver og ein félags-
kona FKA sé dýrmætur hlekkur í
keðjunni.
„Mér er umhugað um tæki-
færi allra kynja, að öll njótum við
sannmælis og fáum verðskulduð
tækifæri en ekki síst vil ég í starfi
mínu tryggja tækifæri samfélags-
ins til að njóta sérfræðiþekkingar
og reynslu kvenna. Ég held að það
þurfi ekki fleiri fræðslustundir um
kosti og mikilvægi jafnréttis. Við
erum með heilu doðrantana sem
benda á það. Held að næsta skref
sé að grípa til aðgerða til að koma
hlutunum í almennilegt lag er
kemur að jöfnum tækifærum, því
okkur er það öllum ljóst að jafn-
réttið er ekki að koma af sjálfu sér,
né með vinsamlegum tilmælum
og fræðslu og sumt ekki einu sinni
með lagasetningu. Þá tel ég þörf
á að vaða í aðgerðir, svona alvöru
grjóthart kellingavæl sem mörg
kalla forræðishyggju og bull,“ segir
Andrea glottandi.
„Að öllu gamni slepptu þá eru
jafnréttismál öryggismál, mann-
réttindi og mál okkar allra og við-
urlög við brotum á lögum er kemur
að jafnrétti eru því umhyggja. Það
er athyglisvert hvað stjórnvöld
elska að hnykla jafnréttisvöðvana
á alþjóðavísu og segja stolt frá
jafnréttisparadísinni Íslandi, þegar
jafnréttinu hefur ekki verið náð
hér á landi og bakslag og stöðnun
blasir við. Góðu fréttirnar eru að
við getum tekið ákvörðun um að
breyta og um að gera enn betur í
stóru og smáu.“ n
Að hnykla jafnréttisvöðvana á alþjóðavísu
Sigmundur Ernir Rúnarsson, Katrín S. Óladóttir sem hlaut FKA þakkarviðurkenninguna 2022 og Andrea í myndveri. myndir/Silla PálS og fleiri
Dr. Ásta Dís Óladóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs, Andrea, Bragi Valdimar
Skúlason, Birgir Jónsson og Ásta Fjeldsted á ráðstefnu FKA.
Í fjörinu á Akranesi með Tinnu Ósk úr stjórn FKA Vesturland, sem er Skaga-
maður ársins, Söndru Margréti, Stefaníu formanni FKA Vesturland og Dagnýju.
Andrea segir sér líða vel í fjölbreyttu starfi bak við tjöldin í þjónustu við fé-
lagskonur og atvinnulífið.
Heimsfaraldur stöðvaði ekki FKA í að heiðra konur í takt við sóttvarnarreglur.
8 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAg kvennA í AtvinnulíFinu