Fréttablaðið - 26.01.2023, Síða 26
Við erum þátttak-
endur á þeim
sviðum sem brýn eru
fyrir íslenskt samfélag og
erum staðráðin í að skila
betra samfélagi til kom-
andi kynslóða og gefum
engan afslátt af þeim
áformum.
Helga Sigrún Harðardóttir
Það fallega við stöðlun og
staðlagerð er að í heimi
viðskipta, þar sem mikil
samkeppni ríkir, koma keppi
nautar saman sem samherjar
og sammælast um viðmið og
lausnir. Í vefverslun Staðla
ráðs má finna 70.000 staðla,
þar af um 30.000 íslenska,
sem viðkoma öllu milli
himins og jarðar.
Fæstir hugsa um staðla dagsdag-
lega, hvað þá alla daga, allan ársins
hring. Það á þó ekki við um Helgu
Sigrúnu Harðardóttur, fimm barna
ömmu og framkvæmdastjóra
Staðlaráðs Íslands. Eftir að hafa
lokið fimmta háskólaprófinu og
bætt við sig lögmannsréttindum að
auki tók hún að sér framkvæmda-
stjórn ráðsins og hefur ekki leiðst
einn dag í vinnunni síðan.
Áður hafði hún rekið höfunda-
réttarsamtök, verið á þingi, unnið
við ráðgjöf og kennslu, dagskrár-
gerð og sitthvað fleira. Aðspurð
segir Helga Sigrún að það fallegasta
við stöðlun og staðlagerð sé að í
heimi viðskipta, þar sem mikil
samkeppni ríki oft, komi keppi-
nautar saman sem samherjar og
sammælist um viðmið og lausnir
sem auðveldi hlítni við lög, neyt-
endavernd, gæðastjórnun og traust
viðskiptavina svo eitthvað sé nefnt.
„Í mörgum tilvikum hafi stöðlun
einnig haft bein áhrif á fjárhag
almennings vegna staðlaðra lausna
og samvirkni, sem lækka kostnað
við vörur og þjónustu. Má þar nefna
til dæmis stöðlun flutningagáma og
tengd kerfi.“
Sparnaður og traustara regluverk
Staðlaráð á aðild að evrópskum
og alþjóðlegum staðlasamtökum,
samráðsvettvangi um stöðlun og
staðla sem ná til 95% mannkyns.
„Staðlar innihalda samandregna
þekkingu bestu sérfræðinga sem
þeir að auki hafa sammælst um.
Venjulega eru staðlar nokkurs
konar sjálfsreglusetning hagaðila
en það færist í vöxt að stjórnvöld
noti þá sem hluta regluverksins.
Þannig er hagaðilum treyst fyrir
því að útfæra regluverkið með
dýpri sérfræðiþekkingu en til er
hjá stjórnvöldunum sjálfum. Í því
felst ómetanlegur sparnaður og
traustara regluverk.“
Staðlar skiptast í nokkra flokka
að sögn Helgu Sigrúnar. „Þeir eru
grunnstaðlar, til dæmis um mál
og vog, kerfisstaðlar sem segja til
um útfærslu á kerfum, hugtaka-
og táknstaðlar sem innihalda
skilgreiningar á íðorðum, vöru-
merkingum, tákn og svo framvegis,
stærðarstaðlar, prófunarstaðlar,
getu- og virknistaðlar og aðferðar-
staðlar, svo sem um vinnulag, ferli
og aðferðir.“
Þarf ekki að finna upp hjólið
Helga Sigrún bætir við að það sé
engin tilviljun að metrinn sé alls
staðar jafn langur og að fjarskipta-
kerfi og alls kyns önnur kerfi vinni
saman sem ein heild. „Það væri
furðulegur og hættulegur heimur
sem við lifðum í ef ekki væri fyrir
staðla því þá þyrftum við að finna
upp hjólið næstum á hverjum degi
og engin trygging væri fyrir því að
hlutir virkuðu eða væru öruggir.“
Þegar staðla vantar tökum við
umsvifalaust eftir því, eins og þegar
við þurfum að kaupa millistykki í
rafmagnsinnstungur erlendis. „Við
hugsum hins vegar minna um þá
þó að stöðlun tryggi virkni grunn-
innviða eins og orkugrunnvirkja,
mannvirkjagerðar, samgangna,
fjármálakerfa og fjarskipta.“
Aukin þátttaka kvenna í stöðlun
er líka gríðarlega mikilvæg til
að staðlar taki örugglega tillit til
samfélagslegra og líkamlegra þarfa
allra, bætir hún við. „Mistök eins
og þau að staðlaðar brúður sem
notaðar eru við árekstrarpróf (e.
crash test dummies) hafa lengst af
allar verið „af karlkyni“ mega ekki
endurtaka sig.“
Mikilvægur hluti innviða
Íslensk stöðlun er mikilvægur hluti
af grunninnviðum landsins, virkni
þess og öryggi fólks. Á vettvangi
ráðsins er markvisst unnið að stöðl-
un og þýðingum erlendra staðla
á sviði mannvirkja- og rafmagns-
mála, upplýsingatækni og fiskimála
auk umhverfis- og loftslagsmála.
„Þá varð jafnlaunastaðallinn ÍST 85
einnig til hjá Staðlaráði. Vísað er til
fjölda staðla í íslenskri löggjöf, ekki
síst þegar kemur að innleiðingu
löggjafar frá Evrópu. Ríflega 4.000
staðlar eru í raun afleidd löggjöf
vegna tilvísunar til þeirra í vöru- og
þjónustutilskipunum ESB, sem inn-
leiddar hafa verið hérlendis. Þeir
eru þannig hornsteinn neytenda-
verndar í allri Evrópu.“
Staðlar auðvelda útfærslu grunn-
krafna í löggjöf að sögn Helgu Sig-
rúnar. Þeir eru mjög mikilvæg við-
bót við hið hefðbundna regluverk
til að auðvelda hlítni við lög, auka
gæði og samræma framkvæmd og
virkni alls kyns mikilvægra hluta
sem við notum daglega. „Staðlar
geta því bæði opnað nýja farvegi
fyrir viðskipti, nýsköpun, traust,
gæði og virkni en eru líka frábært
smurefni með löggjöf.“
Sífellt meiri umhverfiskröfur
Niðurstöður rannsókna á ítrekaðri
framúrkeyrslu opinberra verkefna,
benda til þess að notkun staðlaðra
verkfæra, svo sem við áhættumat,
eignastjórnun og almenna gæða-
stjórnun verkefna, geti breytt þeirri
staðreynd. „Það er að minnsta kosti
reynsla Norðmanna af staðlanotk-
un við undirbúning og framkvæmd
opinberra verkefna sem með lög-
leiðingu krafna um gæðastjórnun
við opinberar framkvæmdir
skilar nú 80% þeirra innan tíma- og
kostnaðaráætlana. Það eru því fjöl-
mörg ónýtt tækifæri til staðlanotk-
unar á Íslandi í ýmsum greinum.“
Það færist svo í aukana að gerðar
séu auknar umhverfiskröfur til
alls kyns vara og má nefna að á
komandi árum verða endurskoð-
aðir rúmlega 700 staðlar, sem segja
til um kröfur til CE-merkingar
byggingarvara. „Ætlunin er að
bæta við kröfum á sviði umhverfis-
mála, svo sem um endurnýtan-
leika, endingu, viðgerðarhæfi og
fleira. Þátttaka íslenskra hagaðila
skiptir því mjög miklu máli þar til
að virkni og ending endurspegli
íslenskar aðstæður.“
Vilja skila betra samfélagi
Það er því ljóst að Staðlaráði er fátt
óviðkomandi. „Bæði Evrópusam-
bandið og Alþjóðaviðskiptastofn-
unin WTO leggja mikla áherslu á
staðlanotkun til að samhæfa kröfur
og öryggi yfir landamæri og til að
brjóta niður viðskiptahindranir á
milli landa.“
Í vefverslun Staðlaráðs má finna
70.000 staðla, þar af um 30.000
íslenska, sem viðkoma öllu milli
himins og jarðar. „Staðlagerð er
á fullu þar sem þróun er hröð, til
dæmis vegna orkuskipta, staf-
rænnar þróunar, gervigreindar og
loftslagsmála. Við erum þátttak-
endur á þeim sviðum sem brýn
eru fyrir íslenskt samfélag og erum
staðráðin í að skila betra samfélagi
til komandi kynslóða og gefum
engan afslátt af þeim áformum.“ n
Staðlar gera heiminn öruggari og betri
Hjá Staðlaráði
eru fjórir starfs-
menn af sjö
konur. Saman-
lagður starfs-
aldur þeirra
er 83 ár. F.v.
eru Kristbjörg
Richter, Helga
Sigrún Harðar-
dóttir, Anna
Þóra Bragadóttir
og Arnhildur
Arnaldsdóttir.
Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, segir mýmörg tækifæri til að ná betri árangri með stöðlum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Félag kvenna í atvinnulíFinu10 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGUR