Fréttablaðið - 26.01.2023, Qupperneq 27
Krónan hlaut Hvatningar-
verðlaun jafnréttismála
Samtaka atvinnulífsins og
Háskóla Íslands árið 2022.
Viðurkenninguna hljóta
fyrirtæki sem sett hafa jafn-
rétti á oddinn og skapað góða
fyrirtækjamenningu, þar
sem jafnrétti og virðing fyrir
fjölbreytileika samfélagsins
er í hávegum höfð.
„Við erum afar stolt og þakklát
fyrir hvatningarverðlaunin,“
segir Guðrún Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Krónunnar.
„Fjölbreytileiki skiptir svo
sannarlega máli og við viljum
gefa starfsfólki okkar tækifæri á
að vaxa í starfi óháð kyni, kyn-
þætti eða þjóðerni, kynhneigð,
aldri, trú, skoðunum eða fötlun.
Við vitum að jafnrétti gerist ekki
sjálfkrafa og því er meðvitund um
málið mikilvæg.“
Guðrún segir stjórnendur Krón-
unnar vera vakandi fyrir ómeð-
vitaðri hlutdrægni og einsetja sér
að forðast einsleitni í ráðningum.
„Fjölbreytileiki leiðir af
sér skapandi umræðu, aukið
umburðarlyndi, skilning fyrir
ólíkum sjónarmiðum og víðsýnni
mynd á áskoranir og tækifæri.
Fjölbreytileiki eykur einfaldlega
samkeppnishæfni. Við erum alls
konar í okkar samfélagi og vinnu-
staðir eiga að endurspegla það í
ráðningum sínum.“
Krónan og Festi
hafa sýnt gott fordæmi
Guðrún hóf störf í Krónunni í lok
árs 2020, þá komin sex mánuði á
leið með sitt annað barn.
„Tímarnir eru svo sannarlega
að breytast og það er aukinn
skilningur og sveigjanleiki fyrir
því í atvinnulífinu að það þarf
að ríkja ákveðið jafnvægi á milli
vinnu og einkalífs. Það að vera
kona á barneignaraldri á ekki að
draga úr tækifærum þínum á að
láta til þín taka í atvinnulífinu
ef áhuginn liggur þar. Hér finnst
mér Krónan og Festi sem móður-
félag sýna frábært fordæmi,“ segir
Guðrún og heldur áfram: „En það
er auðvitað ekki nóg að jafna hlut-
föllin fyrir konur heldur þarf að
taka tillit til allra hópa og tryggja
að jöfn tækifæri séu til staðar.“
Krónan hefur í tæp tuttugu ár
verið í samstarfi við Vinnumála-
stofnun í verkefni sem kallast
Atvinna með stuðningi.
„Þar fá einstaklingar sem búa
við skerta starfsgetu þjálfun
í starfi og stuðning. Við hjá
Krónunni erum einnig með skýra
stefnu, tilgang og markmið í mál-
efnum starfsmanna af erlendum
uppruna þar sem við meðal annars
bjóðum upp á fræðslu þar sem
farið er yfir menningarmun og
fjölbreytileika á vinnustað og
hvernig það er að vera af erlendu
bergi brotnu og á íslenskum vinnu-
markaði,“ greinir Guðrún frá.
Fá fjölbreytt viðhorf og ólíka
einstaklinga að borðinu
Að sögn Guðrúnar hefur náðst
sýnilegur árangur á undanförnum
tveimur árum.
„Kvenkyns verslunarstjórum,
samkynhneigðum verslunar-
stjórum og verslunarstjórum af
erlendu bergi brotnu hefur fjölgað
í Krónunni. Einnig stýrir kona
veltuhæstu einingu Krónunnar
og almennt hefur konum fjölgað
í starfsmannahópi Krónunnar,“
segir Guðrún og bætir við:
„Þetta er okkur mikilvægt og
við ætlum svo sannarlega að halda
áfram á þessari vegferð. Fyrir
utan virði þess að fá fjölbreytt
viðhorf að borðinu þá er líka bara
skemmtilegra að vera í umhverfi
þar sem ólíkir einstaklingar með
mismunandi bakgrunn og skoð-
anir fá að njóta sín.“
Krónan sé eftirsóttur
vinnustaður
Guðrún segir markmið Krónunn-
ar að vera eftirsóttur vinnustaður.
„Við teljum ánægt starfs-
fólk vera lykilinn að því. Það er
útgangspunktur okkar að starfs-
fólki líði vel í vinnunni og það
hlakki til að mæta og takast á við
verkefni dagsins. Það eru ýmsir
þættir sem við lítum til sem stuðla
að þessu en í grunninn erum við
til staðar fyrir hvert annað og ég
held að fólk finni fyrir því þegar
það hefur störf hjá okkur. Þetta,
ásamt okkar einlæga vilja til að
gera alltaf betur í dag en í gær, er
hluti af okkar DNA og það skín í
gegn.“ n
Sjá allt um Krónuna á kronan.is
Krónan hlýtur Hvatningarverðlaun
jafnréttismála árið 2022
Frá vinstri: Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, María Guðrún Jósepsdóttir, verslunarstjóri
Krónunnar í Mosfellsbæ, og Ásthildur María Jóhannsdóttir, verslunarstjóri Krónunnar í Lindum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gott að setja sér markmið
og stefna hátt
Ásthildur María Jóhannsdóttir
hefur alla tíð verið áhugasöm
um verslunarstörf. Hún var ekki
nema sextán ára þegar hún hóf
störf hjá Nóatúni í JL-húsinu og
var ung að árum þegar hún vann
sig upp í að verða vaktstjóri.
„Síðan þá hef ég unnið öll störf
innan verslunar, verið á kassa, í
kjöti, grænmetinu og á lager. Það
er einmitt fjölbreytileikinn sem
gerir verslunarstörf svo skemmti-
leg,“ segir Ásthildur sem nú hefur
sinnt verslunarstörfum í 23 ár.
„En auðvitað reikaði hugurinn
í aðrar áttir. Ég lauk BS-námi
í tannsmíði við HÍ og vann
samhliða náminu í Nóatúni
um helgar. Árið 2015 fékk ég
svo tækifæri til að vinna í fullu
starfi í Nóatúni, sem ég þáði.
Það átti að vera í skamman tíma
en verslunarstarfið er bara svo
skemmtilegt að ég er hér enn,“
segir Ásthildur kát.
Að mati Ásthildar er enginn
dagur eins hjá verslunar-
stjóra því starfið sé bæði mjög
flæðandi og verkefnin fjölbreytt.
„Mér finnst mikilvægt að byrja
hvern dag á að heilsa starfs-
fólkinu og bjóða góðan dag. Svo
tekur við hringur um búðina til
að athuga stöðuna og í stórri
búð eins og Lindum er í mörg
horn að líta. Verslunarstjóri ber
ábyrgð á öllum rekstri og þarf
að hafa umsjón með öllu sem
viðkemur búðinni, allt frá því að
ekki sé rusl á bílaplani til þess að
ekki vanti vörur sem viðskipta-
vini vantar og svo mætti lengi
telja.“
Ásthildur segir kaflaskipti hafi
orðið þegar Ásta Fjeldsted, sem
nú er forstjóri Festi, var ráðin
framkvæmdastjóri Krónunnar.
„Ásta kom inn með slíka orku
að eftir var tekið og hún varð
manni innblástur um að maður
gæti stefnt hærra og þangað var
stefnan sett.“
Ásthildur segir mikilvægt að
konur fái tækifæri til jafns við
karla því hæfni en ekki kyn eigi
að stjórna því hvort einstaklingur
sé hæfur stjórnandi. „Þegar ég
var ung að hefja störf sem stjórn-
andi var þetta mjög karllægur
bransi. Nánast allir verslunar-
stjórar voru karlmenn á miðjum
aldri, konur voru frekar aðstoðar-
verslunarstjórar eða vaktstjórar.
Hugarfarið var á þá lund að
viðvera verslunarstjóra væri það
mikil að konur sem áttu börn og
fjölskyldu gætu ekki með nokkru
móti sinnt starfi verslunarstjóra,
en með tilkomu nýrra stjórnenda
og í anda Krónunnar er ég hér og
var einstæð tveggja barna móðir
þegar ég varð verslunarstjóri hjá
Krónunni.“
Ásthildur segir Krónuna styðja
vel við starfsþróun starfsfólks
og að miklir möguleikar séu
fyrir þá sem vilja að ná langt.
„Fyrir tilstuðlan Krónunnar er
ég nú í námi í viðskiptafræði og
verslunarstjórnun á Bifröst. Þá
sýndi Ólafur Rúnar, rekstrarstjóri
Krónunnar, mér mikið traust
þegar hann fól mér að stýra
stærstu verslun Krónunnar í
Lindum. Ég þurfti ekki að hugsa
mig lengi um því ég er metnaðar-
gjörn að eðlisfari og allt sem ég
tek mér fyrir hendur geri ég af
heilum hug. Ég stefni alltaf á að
ná lengra og þróast í starfi.“
Ásthildur telur kyn verslunar-
stjóra ekki segja til um hvernig
stjórnendur þeir eru. „En ég
tel að konur hafi góða yfirsýn
yfir rekstur verslunar sem er
að mörgu leyti líkt því að reka
heimili.“
Til að vaxa og dafna í starfi
þykir Ásthildi mestu skipta að
hafa eldmóð og áhuga á starfinu,
og setja sér skýr markmið og
stefna hátt. „Að hafa óbilandi trú
á því sem maður gerir og standa
óhrædd með ákvörðunum sem
maður tekur. Það er ekki að
ástæðulausu sem starfsaldur
innan Krónunnar er hár. Sam-
heldni og góður starfsandi er
ríkjandi og unnið er markvisst að
því að stuðla að vellíðan starfs-
fólksins.“
Alltaf dreymt um að stýra verslun
María Guðrún Jósepsdóttir hóf
störf í Krónunni á Reyðarfirði í
febrúar 2018. Þar starfaði hún
sem aðstoðarverslunarstjóri
en í dag er hún verslunarstjóri
Krónunnar í Mosfellsbæ.
Ætlaðir þú alltaf að verða
verslunarstjóri?
„Já, það hefur alltaf verið
markmiðið að vaxa í starfi. Ég
byrjaði í verslunarbransanum
2006 en ákvað svo að breyta
um starfsvettvang. Hugurinn
leitaði hins vegar alltaf aftur í
verslunarbransann. Ég hef alltaf
átt draum um að stýra verslun
og vera hluti af flottum hóp.“
Hvernig er venjulegur dagur
hjá verslunarstjóra?
„Það er enginn dagur eins
hjá okkur, en heilt yfir hefur
verslunarstjóri yfirsýn og um-
sjón með daglegum rekstri
verslunarinnar ásamt því að
sinna þeim mörgu og fjöl-
breyttu verkefnum sem upp
koma. Í þessu starfi er hægt að
hafa jákvæð áhrif, hvort sem
það við kemur rekstri verslunar
eða samskiptum við viðskipta-
vini og starfsfólk. Það höfðar
mikið til mín.“
Finnst þér mikilvægt að jafna
kynjahlutföllin?
„Mér finnst mikilvægt að allir
fái sömu tækifæri óháð kyni.
Hæfni einstaklings ætti að ráð
úrslitum þegar verið er að ráða
inn fólk.“
Hvernig hefur Krónan stutt við
þína starfsþróun?
„Krónan hefur hvatt mig
til þess að þróast í starfi með
ýmsum leiðum, meðal annars
með því að bjóða upp á nám og
námskeið. Ég er til dæmis núna
í námi sem heitir Fagnám versl-
unar og þjónustu í Verzlunar-
skóla Íslands. Einnig hef ég verið
í leiðtogaþjálfun hjá KVAN.“
Hvað finnst þér skipta máli til
að vaxa og dafna í starfi?
„Það skiptir máli að hafa
stuðning og traust yfirmanns
og til að vaxa og dafna í starfi
þarf maður að sinna starfinu
af áhuga. Sem verslunarstjóra
finnst mér mikilvægt að ná vel
utan um teymið og að við séum
ein liðsheild. Við erum í þessu
saman og þannig náum við
árangri.“
kynningarblað 11FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag Kvenna í atvinnulíFinu