Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 29
Suzuki Vitara,
Swift og Jimny hafa
verið mjög vinsælir bílar
síðustu áratugi sem og
margar aðrar týpur af
bílum, hjólum og utan-
borðsmótorum sem við
erum að selja.
Sonja G. Ólafsdóttir, mark-
aðsstjóri Suzuki bíla hf. og
Vatt ehf., segir að gott starfs-
fólk sé mesti auður hvers
fyrirtækis. Suzuki bílar hf.
hafa verið mjög farsælir frá
stofnun fyrirtækisins, starfs-
mannaveltan er afar lág sem
skapar traust á markaði.
Sonja segist vera í draumastarfinu
og að hún sé óendanlega þakklát
fyrir að geta unnið við það sem
hún elskar. „Ég mæti í vinnuna
alla daga full tilhlökkunar,“ segir
hún. „Ég er fædd og uppalin í Vest-
mannaeyjum og æska mín var full
af gleði, hlýju og ævintýrum. Flutt-
ist síðan til Reykjavíkur rúmlega
tvítug, byrjaði að vinna í Suzuki 23
ára gömul og hef unnið þar síðan
í hinum ýmsum störfum. Fyrir tíu
árum dreif ég mig í markaðs- og
sölunám en að því loknu bauðst
mér staða sem markaðsstjóri
Suzuki og hef verið í því drauma-
starfi síðan,“ bætir hún við.
„Grunnur að góðum árangri er
sterk liðsheild og lausnamiðað
hugarfar. Í dag starfa 27 starfs-
menn hjá Suzuki bílum hf. og
fyrirtækið hefur frá upphafi verið
rekið sem fjölskyldufyrirtæki
með áherslu á jákvæða og per-
sónulega þjónustu. Þrátt fyrir
mikinn og góðan vöxt fyrir-
tækisins hefur tekist að viðhalda
þeim sérkennum. Gott starfsfólk
er stærsti auður hvers fyrirtækis,
Suzuki bílar hf. hafa verið mjög
farsælir frá stofnun fyrirtækisins,
starfsmannaveltan er afar lág sem
skapar traust á markaði. Við erum
eins og ein stór Suzuki-fjölskylda.“
Enn betra og stærra fyrirtæki
„Árið 2008 juku Suzuki bílar hf.
starfsemi sína með kaupum á
Suzuki umboðinu ehf. (mótorhjól
og utanborðsmótorar) sem þá var
staðsett í Hafnarfirði en fluttist við
kaupin í Skeifuna 17. Við kaupin
voru bílar, mótor- og fjórhjól og
utanborðsmótorar allt komið á
sama stað, þar með talin öll þjón-
usta og sala á vara- og aukahlutum.
Kaupin voru frábær viðbót og
fyrirtækið stækkaði.
Suzuki-merkið er og hefur ávallt
verið þekkt fyrir áreiðanleika
og mjög lága bilanatíðni. Suzuki
Vitara, Swift og Jimny hafa verið
mjög vinsælir bílar síðustu ára-
tugi sem og margar aðrar týpur af
bílum, hjólum og utanborðsmót-
urum sem við erum að selja. Fyrsti
Suzuki plug-in hybrid-bíllinn,
Across 4x4 jeppi, kom á markað
2020, glæsilegur sportjeppi. Allir
okkar bílar eru orðnir umhverfis-
vænir með strong hybrid eða
plug-in hybrid-kerfi nema Jimny-
töffarinn.“
Traustir viðskiptavinir
„Ég er viss um að við eigum
skemmtilegustu og lífsglöðustu
viðskiptavinina. Ég stofnaði og sé
um allar samfélagsmiðlasíður fyrir
Suzuki á Íslandi. Facebook-síðan
okkar er langstærsta Facebook-
bílaumboðssíða á Íslandi en um
19 þúsund manns fylgja okkur
þar. Facebook-síðan er mjög
fjölbreytt, ég set þar inn myndir
af bílum, hjólum, utanborðs-
mótorum, starfsmannafjöri og
því sem við á hverju sinni. Það
allra skemmtilegasta við síð-
urnar okkar er öll jákvæðnin sem
kemur frá viðskiptavinum okkar,
þeir senda okkur líka reglulega
alls kyns Suzuki-myndir og fleira
skemmtilegt sem við setjum inn á
síðurnar og eru að „merkja“ okkur
á myndir/myndbönd hjá sér. Við
værum ekkert án okkar frábæru og
traustu viðskiptavina,“ segir Sonja.
Suzuki gerir lífið skemmtilegra
„Meðal viðburða er hinn árlegi
Hjóla dag ur Suzuki í Skeifunni 17.
Hayabusa-klúbburinn á Íslandi,
Gaflarar, Raftarnir og fleiri
mótorhjólaklúbbar mæta þá á
svæðið með sín hjól, sum hver
gömul Suzuki-hjól. Þegar sem mest
er eru um 40 mótorhjól á planinu
og er stemningin gífurleg. Hjóla-
dagur Suzuki hefur verið haldinn í
yfir tíu ár,“ bendir Sonja á.
„Fyrsta jeppa- og jepplinga-
ferð Suzuki var haldin 2019. Þá
söfnuðust eigendur slíkra bíla
saman og óku Krísuvíkurhringinn
í Reykjanesfólkvangi í dásemdar
veðri undir forystu starfsmanna
Suzuki. Mætingin var mjög góð
og frábær stemning. Ökuleiðin er
fær bæði jeppum og jepplingum.
Á áfangastað, við Kleifarvatn, sá
Grillvagninn um að elda gómsæta
hamborgara og franskar ofan í
þátttakendur í boði Suzuki. Í lok
ferðar voru þátttakendur kvaddir
með Suzuki-glaðningi. Þessi fyrsti
jeppa- og jepplingadagur var svo
vel heppnaður að þátttakendur
hafa beðið í ofvæni eftir næstu
ferð.“
Miðnæturhlaup Suzuki
„Suzuki-hlaup hefur verið haldið
á Jónsmessunótt undanfarin 29
ár í samstarfi við ÍBR og fleiri
samstarfsaðila. Hlaupið nýtur
mikilla vinsælda og er núorðið
annað stærsta hlaup á Íslandi á
eftir Reykjavíkurmaraþoninu.
Einnig hafa Suzuki bílar hf. verið
styrktaraðili í Reykjavíkurmara-
þoni Íslandsbanka í áratugi og sett
þar árlega upp skemmtistöð með
tónlist, góðgæti fyrir hlaupara og
góða skapið alltaf í fyrirrúmi.
Þá má nefna „Suzuki Clean up
campaign“ sem er spennandi og
umhverfisvæn herferð sem Global
Suzuki stendur fyrir um allan
heim. Söluaðilar Suzuki utan-
borðsmótora og starfsmenn þeirra
fara saman og tína rusl á bökkum
og í sjó á sínum heimaslóðum. Við
erum mjög spennt að taka þátt í
þessu flotta og mikilvæga verkefni
næsta sumar. Covid-ástandið tók
því miður af okkur öll völd síðustu
tvö, þrjú ár, fresta þurfti sumum
af þessum viðburðum en vonandi
getum við endurvakið þá alla á
ný 2023 með pompi og prakt. Það
myndi gleðja okkur mjög og án efa
einhverja fleiri.“
Vatt – umhverfisvænir bílar
„Í september 2020, í miðjum
Covid-faraldri, var Vatt ehf.
stofnað. Það var krefjandi tími
til að opna nýja verslun á þannig
tímum en líka afar lærdómsríkur.
Vatt selur eingöngu 100% raf-
magnsbíla og býður nú upp á þrjú
mjög flott bílmerki: BYD, Maxus
og Aiways, sem öll koma frá Kína.
BYD er stærsti rafbílaframleiðandi
í heiminum, SAIC Motors (Maxus)
er stærsti bílaframleiðandinn í
Kína. Aiways er frekar nýtt bíl-
merki en er að slá í gegn víða um
heim. 100% rafmagnsbílar eru
orðnir mjög vinsælir hér á Íslandi,
þróunin að verða umhverfisvænn
og grænn er mjög hröð hér á landi,“
segir Sonja og heldur áfram:
„Þeim bílamerkjum sem við
erum að selja í Vatt hefur verið
tekið mjög vel og hefur fyrir-
tækið vaxið hratt. Það hefur verið
ómetanlegt að fylgjast með góðum
viðtökum og ævintýralegum vexti
Vatts sem nýs merkis á markaði
í miðjum heimsfaraldri. Okkar
mesta áskorun hefur verið sú sama
eins og flest önnur umboð glíma
við, það er bílaskortur í kjölfar
Covid og er sú staða enn erfið víða
um heim en við finnum þó að
betri tímar eru fram undan. Eftir-
spurnin er mjög mikil og því miður
fengum við ekki nærri því alla þá
bíla sem við pöntuðum á Covid-
tímum en það stefnir allt í að
ástandið lagist með vorinu, þannig
að við horfum björtum augum á
framtíðina.“
Líf og fjör í Vatt
„BYD er nýjasta merkið í Vatt, það
er hágæðamerki sem beðið hefur
verið eftir. Við erum líka að fara að
frumsýna Maxus-pallbíl á næst-
unni sem verður fyrsti 100% raf-
magnaði pallbíllinn í heiminum.
Aiways er líka að bæta við sig
nýrri týpu Aiways U6 sem er mjög
spennandi. Vatt er einnig með
eitt stærsta úrval Íslands af 100%
rafknúnum atvinnubílum, það eru
fáir með jafn mikið úrval og við í
þeim flokki.“
Persónuleg og góð þjónusta
„Markmið Vatt og Suzuki eru þau
sömu, að veita viðskiptavinum
sínum persónulega, góða og fag-
lega þjónustu á öllum sviðum.
Einnig gildi fyrirtækjanna beggja:
Virðing, samvinna, áreiðanleiki og
persónulegt viðmót. Framtíðarsýn
fyrirtækjanna er að viðhalda þeim
góða árangri sem náðst hefur og
byggja undir traust viðskiptavina
á vörumerkjunum. Fram undan
eru spennandi tímar með nýjum
týpum af bílum í hinum ýmsu
merkjum, 100% rafmagnaður
Suzuki-jeppi mun mæta á svæðið í
lok árs 2024 og margt fleira.“
Fjölbreytt og skemmtilegt
„Að vera markaðsstjóri Suzuki og
Vatt er mjög fjölbreytt og skemmti-
legt starf, þróunin er hröð og alltaf
eitthvað nýtt og spennandi að ger-
ast. Ég hef umsjón með allri aug-
lýsingagerð, markaðs- og söluáætl-
unum og styrkjaumsóknum. Ég
stýri einnig allri hugmyndavinnu,
undirbúningi, uppsetningu og
framkvæmd sýninga og viðburða á
vegum fyrirtækjanna og ýmislegt
fleira. Suzuki hefur átt stóran hluta
af hjarta mínu frá mínum fyrsta
degi í fyrirtækinu og Vatt er svo
sannarlega búið að komast á þann
stað líka. Það eru forréttindi að fá
að taka þátt í frekari uppbyggingu
á öllum vörumerkjunum okkar, sjá
þau vaxa og dafna og halda áfram
að þjónusta okkar góða viðskipta-
vinahóp.“ n
Gott starfsfólk er mesti auður fyrirtækis
Sonja G. Ólafs-
dóttir, markaðs-
stjóri hjá Suzuki,
segir að fyrir-
tækið standi
fyrir mörgum
skemmtilegum
og vel sóttum
viðburðum.
MYND/AÐSEND
Sonja segist vera í draumastarfinu en hún hefur unnið lengi hjá Suzuki.
kynningarblað 13FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 FélaG kvenna í atvinnulíFinu